Morgunblaðið - 27.02.2010, Síða 56
Alþjóðlegu samtökin ,,Kids Parlia-
ment“, sem stofnuð voru og stjórnað
er af skartgripahönnuðinum Hend-
rikku Waage, gerðust í vikunni
formlegir samstarfsaðilar Samein-
uðu þjóðanna. Á fundi sem fram fór í
New York, m.a. af þessu tilefni, voru
samtök Hendrikku kynnt. Var þar
margt um frægan manninn en meðal
gesta voru meðal annarra Ban-Ki-
moon, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, Sarah Ferguson,
hertogaynja af York og Geena Dav-
is, Óskarsverðlaunahafi með meiru.
,,Það er altalað að þátttaka og for-
ysta kvenna er mikilvæg til að
byggja upp sterkt efnahagskerfi,
stöðugra þjóðfélag og ná mark-
miðum sem eru viðurkennd al-
þjóðlega á sviðum mannréttinda og
þjóðfélagsþróunar,“ segir Hend-
rikka. Hún segir undirbúning að-
ildar að SÞ hafa verið mikinn en við-
burðurinn í New York „einstaklega
ánægjulegan“.
MANNRÉTTINDI
Góðgerðarsamtök Hend-
rikku í samstarf við SÞ
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 58. DAGUR ÁRSINS 2010
Heitast 1 °C | Kaldast 13 °C
Austlæg átt og
hvessir NV- lands eftir
hádegi. Gengur í suð-
austan 8-13 undir
kvöld. »10
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-)
)./,*0
)*),-+
*0,1-0
*),2)3
)3,.12
)).,-0
),100+
).2,*3
)31,*
456
4 *2" 7585 *-)-
)*+,0*
)./,3
)*),10
*0,13)
*),2+)
)3,...
)).,02
),10+
).2,+/
)31,2.
*0-,0211
%
9: )*+,20
).2,)3
)*),3+
*0,/0.
*),31/
)+,-/*
)).,2.
),11**
).3,10
)3/,)+
FÓLK Í FRÉTTUM»
TÓNLIST»
Tyler er kominn upp á
hnakkinn aftur! »51
FSU og FB tóku þátt
í laufléttri Mogga-
keppni í tilefni af
Gettu betur og háðu
hugumdjarfir harða
hildi. »52
SJÓNVARP»
3. umferð
Gettu betur
TÓNLIST»
Valgeir Sigurðsson gefur
út Draumalandið. »48
TÓNLIST»
Bubbi blúsar og blúsar
og blúsar og blúsar. »48
Malneirophrenia
einbeitir sér að
blendingi kvik-
myndatónlistar,
rokks og nýklass-
íkur. »50
Malneiro-
phrenia???
TÓNLIST»
Menning
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Faiza fannst myrt inni í skógi
2. Lést í fæðingu eftir rifrildi lækna
3. Ný Solla stirða tekur við
4. Lögregla hvetur fólk til að ganga
Íslenska krónan stóð í stað.
Steinn Ármann
Magnússon og
Davíð Þór Jónsson
munu leiða saman
hesta sína á sýn-
ingunni Villidýr &
Pólitík í Borgar-
leikhúsinu sem
frumsýnd verður 24. apríl. Sýningin
er byggð á tveim vinsælum uppi-
standssýningum breska leikarans og
grínistans Ricky Gervais, Animals
og Politics. Gervais er þekktastur
fyrir handritsgerð og leik í bresku
þáttunum The Office og Extras en
hefur jafnframt gert það gott í
Hollywood. Leikstjóri sýningar-
innar er Gunnar B. Guðmundsson,
sem á m.a. að baki kvikmyndina
Astrópíu. Sýningin er tvískipt, fyrir
hlé er boðið upp á Villidýr með
Steini og eftir hlé Pólitík með Davíð.
UPPISTAND
Steinn og Davíð byggja
á uppistandi Gervais
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
TUTTUGU milljóna króna húsnæði
í Reykjanesbæ átti að verða auðveld
fjárfesting fyrir Óla Jón Sigurðsson
og Sonju Sigurjónsdóttur þótt af-
borganirnar væru í kringum 160
þúsund krónur á mánuði. Óli Jón er
með meistarapróf í vélaverkfræði
frá Danmörku og var í góðri og vel
launaðri vinnu. Hann missti vinnuna
í desember og Sonja er heimavinn-
andi. Afborganirnar eru nú tæplega
420 þúsund krónur á mánuði, sem er
útilokað að þau geti borgað. Bank-
inn býður hins vegar ekki upp á nein
úrræði. Sonja og Óli Jón eru með
fjögur börn og þau segja verst að
vita ekki hvað er fram undan.
Tannlaus bolabítur
Óli Jón segir í viðtali í Sunnudags-
mogganum að þau hafi átt von á því
að eiga frekar áhyggjulaust líf. „Við
teygðum okkur ekki of langt, á með-
an aðrir keyptu flatskjái og ný sófa-
sett héldum við okkur við lampa-
sjónvörpin og gömlu húsgögnin.
Eins og sést er þetta ekki nýjasta
nýtt,“ segir hann og lítur í kringum
sig í húsinu þeirra í Reykjanesbæ,
„en við erum ánægð með það, sem
við eigum, og það er búið að borga
fyrir innbúið. En við tókum ekki lán
til að kaupa óþarfa, ef svo má segja.
Við einsettum okkur að fara öruggu
leiðina, kaupa hús, sem við hefðum í
raun efni á, og nota peningana, sem
yrðu umfram, í fjölskylduna sjálfa,
ferðast og gera eitthvað með börn-
unum. Til þessa hefur hins vegar
verið barningur bara að halda hús-
inu og við höfum ekki getað leyft
okkur að gera neitt með börnunum.“
Óli Jón kveðst ekki vera reiður út
í stjórnvöld, en hann hafi orðið fyrir
vonbrigðum. Hann segir að þetta
ástand í samfélaginu sé enn furðu-
legra þegar horft er til þess að á Ís-
landi sé vinstristjórn við völd.
„Þetta er eins og að hafa tann-
lausan bolabít við stjórnvölinn,“ seg-
ir hann. „Maður hefði haldið að þeir
gætu gert eitthvað fyrir venjulegt
fólk, en þeir gera ekki neitt. Það er
frekar hægt að segja að þeir séu að
verja það, sem þeir hafa gert rangt,
en að reyna að gera eitthvað rétt. Ég
er mjög hissa á þessu. Það virðist til
dæmis vera stórmál að ganga í Evr-
ópusambandið, en ég fæ ekki séð að
það sé forgangsmál í augnablikinu.
Vandamálin heima fyrir eiga að hafa
forgang. Ég sé ekki hvernig þeir
eiga að fá þjóðina með sér ef þeir
geta ekki boðið upp á gott líf hér.“
Óli Jón er nú í atvinnuleit og horf-
ir einnig til útlanda, en húsnæðið og
lánin, sem á því hvíla, eru fjötur um
fót. Hjónin vilja þó búa á Íslandi og
taka fram að hvergi annars staðar sé
betra að ala upp börn.
Áttu von um áhyggjulaust líf
Fjölskylda í
Reykjanesbæ
föst í skuldafeni
Ljósmynd/Ellert Grétarsson
Bjartsýn Sonja Sigurjónsdóttir og Óli Jón Sigurðsson ásamt börnunum fjórum, Sigurði Breka, Viktori Inga, Kötlu
Mist og Thelmu Rún á heimili sínu í Reykjanesbæ. Áhvílandi skuldir eru hátt í helmingi hærri en andvirði hússins.
ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ CPO, sem
er með helstu útgefendum á klass-
ískri tónlist í Þýskalandi, gaf á dög-
unum út disk með flutningi Hyper-
ion-tríósins þýska á píanótríóum
eftir Atla Heimi Sveinsson.
Atli Heimir segir að samvinnan
við tríóið hafi komið til á óvenju-
legan hátt: „Þau sögðu mér að þau
hefðu heyrt músík í útvarpinu og
fannst hún svo skrýtin að þau
hringdu í útvarpsstöðina til að
spyrjast fyrir um hvað þetta væri.
Þetta var í Kölnarútvarpinu og þar
sögðu menn þeim að þetta væri nú
einhver strákur sem héti Sveinsson
og hefði einmitt verið í Köln einu
sinni, en ég lærði einmitt þar.
Þau höfðu svo samband við mig
og ég var með eitt tríó tilbúið sem
ég tileinkaði Thor Vilhjálmssyni
vini mínum þegar hann varð sex-
tugur, en annað tríóið tileinkaði ég
honum áttræðum. Svo samdi ég
þriðja tríóið og það stysta og þá
voru þau komin með nóg.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Liðsmenn Hyperion-tríósins þýska
hrifust af Atla Heimi í útvarpinu.
Píanótríó Atla Heimis
gefin út í Þýskalandi
190 EINSTAKLINGAR og hópar og
ellefu eldri listamenn að auki fá út-
hlutuð listamannalaun í ár. Alls bár-
ust 712 umsóknir um listamannalaun
en flestar bárust til launasjóðs mynd-
listarmanna og næstflestar til launa-
sjóðs sviðslistafólks.
Af einstökum úthlutunum má
nefna að tónlistarmaðurinn Bubbi
Morthens fær sex mánaða lista-
mannalaun og er jafnframt eini tón-
listarflytjandinn sem flytur ekki sí-
gilda tónlist. | 46
190 fá lista-
mannalaun
Á hversu mörgum heimilum á Ís-
landi eru báðar fyrirvinnur at-
vinnulausar?
Þau eru nú 446 og hefur fjölgað um
100 frá því í september á síðasta ári
þegar þau voru 350. Í júní 2009 voru
slík heimili 431 talsins.
Hversu mörg börn búa á heimilum
þar sem báðar fyrirvinnur eru at-
vinnulausar?
Alls búa 410 börn við slíkar að-
stæður. Er þetta nokkur fjölgun frá
því í september þegar 327 börn voru
í sömu stöðu.
Hversu margir eru án atvinnu á
Íslandi í dag?
Heildarfjöldi atvinnulausra er um
16.400.
S&S