Fréttablaðið - 22.10.2011, Side 18
18 22. október 2011 LAUGARDAGUR
Volvo S60 R-Design Verð frá 5.690.000 kr. Spyrðu um aðrar gerðir Volvo í R-Design sportútgáfu. Kynntu þér sérpöntunarþjónustu Volvo.
Vertu m
aður sportlegur og þú kem
ur við sögu á hverjum
degi
Nýttu þér gott sýningartilboð í dag
sýning
Í DAG
MILLI
12 - 16
KAFFI &
KONFEKT
Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara, að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Volvo.
Við myndun núverandi ríkis-stjórnar var það eitt af yfirlýst-
um markmiðum að breyta þeirri
ranglátu ójafnaðarstefnu sem ein-
kenndi skattkerfið eftir tólf ára
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar. Strax á fyrstu mán-
uðum var unnið að því að innleiða
nýja skattastefnu sem byggðist á
sjónarmiðum jöfnuðar. Sú stefna
er hófleg að því leyti að hún still-
ir Íslandi rétt um miðbik OECD-
ríkjanna, og hefur að auki verið
blessuð í bak og fyrir af AGS sem
sjálfbær skattastefna.
Núna, tveimur árum eftir að
Jóhanna og Steingrímur hófu að
breyta skattkerfinu, er hægt að
mæla árangurinn. Niðurstaðan er
sú, að á einungis tveimur árum
hefur tekist að færa yfir á hin
breiðari bök samfélagsins veru-
legar skattbyrðar af millistéttinni
og láglaunafólki, sem sannarlega
liðu fyrir gömlu skattastefnuna.
Það er sögulegur árangur á svo
skömmum tíma.
Árangursríkar jöfnunaraðgerðir
Jóhanna og Steingrímur slógu
nýjan tón strax sumarið 2009 þegar
þau birtu „Áætlun um jöfnuð í
ríkis fjármálum“. Þar var lýst með
skýrum hætti leiðum til að mæta
tekjufalli ríkissjóðs og hnitmið-
uðum aðgerðum til að vinda ofan
af ranglátri skattastefnu. Aðall
hinnar nýju stefnu sem byggð var
á norræna módelinu var félags-
legt öryggi, jafnræði og sanngjörn
dreifing skattbyrða. Þó allt innan
marka hóflegra skattahækkana,
sem óhjákvæmilegar voru til að
mæta gríðarlegum herkostnaði við
hrunið.
Jóhanna og Steingrímur lýstu
yfir að þessum markmiðum yrði
einkum náð með þriggja þrepa
skattkerfi, hækkun á fjármagns-
tekjuskatti með frítekjumarki
fyrir lágar vaxtatekjur, og auð-
legðarskatti á mestu eignir.
Stjórnar andstaðan heldur því fram
í síbylju að norræna velferðar-
stjórnin okkar hafi reynst sama
ójafnaðarstjórn og hinar fyrri. Því
fer fjarri. Nú höfum við loksins
gögn sem sýna að ný skattastefna
ríkisstjórnarinnar flytur veru-
legar byrðar af sköttum frá lág-
tekjufólki og millistéttinni yfir á
þá ríkustu í samfélaginu sem hafa
sterkari bök.
Þetta má sjá svart á hvítu í tölum
sem fjármálaráðherra hefur látið
vinna um þróun skattbyrði hjóna
og sambúðarfólks. Þau eru byggð
á tölulegum upplýsingum frá emb-
ætti ríkisskattstjóra um álagningu
skatta á miðju þessu ári á tekjur
ársins 2010 og á eignir í lok þess.
Þá voru ofangreindar skattaaðgerð-
ir komnar til framkvæmda og því
unnt að mæla árangurinn.
Millistétt og lágtekjufólk njóta
Niðurstaða mælingarinnar er
mjög skýr. Í anda norræna módels-
ins hefur verulegur tilflutningur
á skattbyrði átt sér stað frá fólki
með lægri tekjur yfir á hátekjufólk:
1. Helmingur hjóna, ca. 31.000
hjón, greiðir nú lægra hlutfall
af tekjum sínum í tekjuskatta
þ.m.t. fjármagnstekjuskatt en
þau gerðu árið 2008. Að hækk-
un bóta meðtalinni er fjöldi
þeirra sem greiða lægra hlut-
fall í skatt um 37.000.
2. 65% hjóna greiða engan eða
innan við 1% fjármagnstekju-
skatt og 77% hjóna greiða nú
lægri fjármagnstekjuskatt en
þau hefðu gert skv. 10% flötum
skatti, sem áður var.
3. Auðlegðarskattur er að jafnaði
um 0,8% heildartekna hjóna.
75% skattsins greiða 15%
tekjuhæstu hjónin og yfir 50%
auðlegðarskatts eru greidd af
þeim efstu tveimur prósentun-
um í samfélaginu sem hæstar
tekjur hafa.
4. Vegna breytts fjármagnstekju-
skatts og auðlegðarskatts er
skatthlutfall í efsta hluta tekju-
skalans ekki lengur lægra en í
neðri hlutum hans svo sem áður
var. Breiðu bökin bera meira.
5. Skatthlutföll, einnig að auð-
legðarskatti meðtöldum, voru
á árinu 2010 í öllum tekjubilum
neðri hluta tekjuskalans lægri
en þau voru á árinu 2008. Þeir
sem hafa minna úr að spila,
greiða nú lægri skatta en í
loftbólugóðærinu.
Sögulegur árangur ríkisstjórnar
Samkvæmt þessum sögulegu
tölum er ljóst að í fjármálaráð-
herratíð Steingríms undir öruggri
stjórnarforystu Jóhönnu er búið
að innleiða norræna módelið svo
um munar í skattkerfi Íslendinga.
Á aðeins tveimur árum hefur tek-
ist að flytja þungar skattbyrðar af
fólki í millistétt og lágtekjufólki
yfir á þá sem hafa fjárhagslegan
hrygg til að bera þyngri byrðar.
Hátekjufólkið og stóreignaliðið á
ekki að njóta skjóls af ranglátri
ójafnaðarstefnu skattkerfis Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar. Það
á að leggja sinn réttláta skerf til
uppbyggingar samfélagsins eins
og aðrir þegnar. Þetta er þróun-
in víða um lönd þar sem þeir sem
meira mega sín hafa stigið fram
og beinlínis spurt af hverju þeir
njóti sérstakra skattfríðinda, sbr.
fræg ummæli auðmannsins War-
rens Buffet í Bandaríkjunum.
Undir forystu Jóhönnu og
Steingríms hefur skattkerfið
verið notað eins og áveita til
að dreifa og jafna tekjum sam-
félagsins til þeirra sem þurfa,
frá þeim sem hafa meira en nóg.
Þetta er norræna módelið. Þetta
er íslensk jafnaðarstefna. Þessi
árangur í jöfnun gegnum skatt-
kerfið er ótvíræður sigur fyrir
jafnaðarstefnu núverandi ríkis-
stjórnar.
Það skiptir nefnilega máli
hverjir stjórna.
Grettistaki lyft í jöfnun skattbyrða
Skattamál
Össur
Skarphéðinsson
utanríkisráðherra
Á aðeins tveimur árum hefur tekist
að flytja þungar skattbyrðar af fólki í
millistétt og lágtekjufólki yfir á þá sem
hafa fjárhagslegan hrygg til að bera þyngri byrðar.
Hátekju fólkið og stóreignaliðið á ekki að njóta skjóls
af ranglátri ójafnaðarstefnu skattkerfis Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar.
Vika 43, vímuvarnavikan, verð-ur 23.–30. október í ár en þetta
er áttunda árið sem þessi vika er
tileinkuð vímuvörnum. Vika 43 er
vettvangur félagasamtaka sem hafa
forvarnir að markmiði starfs síns
eða vilja leggja vímuvörnum lið, til
þess að vekja athygli á forvarna-
starfi og áfengis- og vímuefnamál-
um; varpa ljósi á viðfangsefni for-
varna og kynna sérstaklega starf
sem unnið er á vettvangi félaga-
samtaka; vekja athygli landsmanna
á mikilvægi forvarna, einkum for-
vörnum gagnvart börnum og ung-
lingum og; virkja þekkingu, styrk
og samstöðu grasrótarsamstarfs til
eflingar forvarnastarfs.
Að þessu sinni er í viku 43 athygli
beint að rétti barna og ungmenna
til vímulauss lífs og verndun þeirra
gegn neikvæðum afleiðingum
neyslu áfengis og annarra vímu-
efna, eins og mælst er til í yfirlýs-
ingu aðildarríkja Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar frá árinu
2001 og barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Þennan rétt barna þarf
að verja með ýmsum hætti og í vik-
unni verður kastljósi beint að því í
hverju þessi réttur felst og hvernig
Íslendingar standa sig hvað þetta
varðar.
Sem fyrr standa fjölmörg sam-
tök að Viku 43 en upplýsingar um
þau og vímuvarnavikuna má finna
á heimasíðunni www.vvv.is.
Réttur barna
til vímu-
lauss lífs
Forvarnir
Guðni
Björnsson
forvarnaráðgjafi