Fréttablaðið - 22.10.2011, Síða 45
ERNA
Skipholti 3, s.552 0775, erna.is
Fallega Jólaskeiðin
frá Ernu
Í dag gullsmiða-
daginn hreinsum
við skartgrip frítt
milli 11–16 fyrir
viðskiptvini.
Verð 16.500,-
Barnafataverslun | Suðurlandsbraut 52, bláu húsunum Faxafeni | 561 3500
Í Kátum krökkum færðu fallegan og
vandaðan barnafatnað. Komdu í
heimsókn – við tökum vel á móti þér!
Afgreiðslutími:
mán.-fös. 11-18, lau. 11-16
Laugavegi 87 • sími: 511-2004
Dúnsængur og koddar
fyrir veturinn.
Ítölsk rúmföt frá Bellora
YKKAR TÍMI ER
KOMINN
FJÖLSKYLDAN Á SKAUTA
FYRIR VETURINNFyrsti vetrardagur er laugardagurinn að lokinni 26. viku sumars (eða 27. viku sé um sumarauka að ræða). Fyrsta vetrardag ber upp á 21. til 27. október.
Fjalla-Eyvindur og Halla, túlkuð af
Guðmundi Inga Þorvaldssyni og
Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, verða á
fjölunum í kvöld og annað kvöld
í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi.
Það eru síðustu sýningar leikfélags-
ins Aldrei óstelandi á þessu sígilda
verki Jóhanns Sigurjóns sonar um
ástir og örlög þekktasta útilegupars
Íslandssögunnar. Ásamt Guðmundi
Inga og Eddu Björgu leika Valdimar
Örn Flygen ring og Bjartur Guð-
mundsson í verkinu og Marta Nor-
dal er leikstjóri.
Sýningin, sem tekur eina
klukkustund og 20 mínútur, hefur
hlotið lof gagnrýnenda. Hún fékk
tvær Grímutilnefningar, meðal
annars sem besta sýning ársins.
Í dómi sagði Elísabet Brekkan
meðal annars: „Sýningin er heild-
stæð og laus við alla tilgerð.“ - gun
Ástir og örlög
Eyvindar og Höllu
Edda Björg og Guðmundur Ingi í
hlutverkum sínum sem Halla og
Eyvindur.
Hvað ef Harry Potter hefði lotið
í lægra haldi fyrir Voldemort,
Bridget Jones endað með Daniel
Cleaver eða Rómeó og Júlía lifað?
Þetta eru spurningar sem leikmenn
velta upp í svokölluðu „fan fiction“
eða áhugaspuna þar sem þekkt
skáldverk eru klædd í nýjan bún-
ing. Anna Arnardóttir, nemi í rit-
list, tilheyrir ört stækkandi hópi
fólks sem leggur stund á slík skrif.
„Þetta byrjaði nú bara með því að
mér bauðst umsjón með vefsvæði
um Harry Potter-bækurnar á hugi.
is. Þar fyrst skynjaði ég gríðarlegan
áhuga fólks fyrir því að vinna með
höfundarverk annarra. Ógrynni
sagna barst þar sem breytt var út
af söguþræði eða búnar til alveg
nýjar sögur. Gæðin voru misjöfn og
það varð til þess að við settum við-
mið um hvað teldist birtingarhæft
og bjuggum til nokkur dæmi. Þann-
ig kviknaði minn áhugi og smám
saman fór mér að þykja skemmti-
legra að spinna út frá Harry Potter
en að lesa bækurnar.“
Anna segir erfitt að gera sér í
hugarlund hversu stór hópur fólks
skrifi í þessum anda hérlendis.
Hann hljóti þó að vera ágætlega
afkastamikill miðað við fjölda
sagna sem bárust hugi.is og voru
eingöngu skrifaðar út frá Harry
Potter. Alþjóðlegar vefsíður helg-
aðar áhugaspuna eru hins vegar
ágæt vísbending um umsvif spuna-
meistara erlendis. Síðurnar skipta
þúsundum, sögurnar milljónum og
fjöldi notendanafna gefur til kynna
að fleiri hundruð þúsunda séu að
baki skrifunum.
„Sumar eru gríðarlega stórar
og almennar. Aðrar smærri og
leggja áherslu á afmörkuð efni
og sumar blanda ólíkum sögu-
heimum saman,“ upplýsir Bryn-
hildur Heiðar- og Ómarsdóttir bók-
menntafræðingur.
Brynhildur hefur kynnt sér
áhugaspuna og rekur uppruna
hans til þess þegar aðdáendur
Star Trek tóku að semja sögur um
persónur þáttanna á 8. áratugnum
„Aðrir benda svo á að hann nái
allt aftur til 17. aldar með útgáfu
fyrstu nútímaskáldsögunnar, Don
Kíkóta, eftir de Cervantes sem gat
af sér alls kyns framhald eftir aðra
og voru höfundinum á móti skapi.“
Brynhildur segir þetta sýna að
höfundar frumtextanna séu ekki á
eitt sáttir um slík skrif. Meirihlut-
inn sé upp með sér að eiga gall-
harða aðdáendur sem leggi það
á sig að vinna áfram með verkin.
Aðrir leggist gegn áhugaspuna og
reyni að fá lögbann á hann. „Það
getur haft lítið upp á sig þar sem
alþjóðleg höfundarlög segja ekki til
um hvort þetta er löglegt eða ekki.
Sú venja hefur myndast að ef ekki
er verið að græða á verkinu láta
flestir útgefendur og framleiðend-
ur áhugaspuna í friði.“
Hvaðan kemur þessi þörf að
vinna áfram með verk annarra?
„Oft á fólk bara erfitt með að skilja
við heillandi söguheim og vill vita
meira um afdrif persóna,“ útskýr-
ir Anna og getur þess að áhuga-
spuni sé líka góð æfing fyrir upp-
rennandi rithöfunda. Þannig hafi
margir byrjað ferilinn. „Í mínu
tilviki varð hann til þess að ég fór
að skrifa og skellti mér í ritlistina.
Nú er ég að leggja drög að minni
fyrstu skáldsögu.“ roald@frettabladid.is
Spinna óskaendi
Alveg frá útgáfu fyrstu nútímaskáldsögunnar, Don Kíkóta, hafa
leikmenn klætt þekkt verk í nýjan búning. Slík skrif eru kennd við
áhugaspuna og á netinu er fjöldi vefsíðna helgaður þeim.
Vinsælt er að spinna nýjar sögur kringum Star Trek. Í einni fyrstu sögunni kemur í ljós
að Spock og Kirk kafteinn eru ekki aðeins góðir vinir heldur elskendur á laun.
Heimir & Kolla vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00