Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 102

Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 102
17. desember 2011 LAUGARDAGUR70 FÖNIX Raftækjaverslun . Hátúni 6a . Sími 552 4420 . fonix@fonix.is www.fonix.is Eftirlætisbíómyndirnar um jólin Þótt frí sé af skornum skammti hjá þorra landsmanna um jólin er þessi árstími engu að síður tilvalinn til að slaka á yfir klassískum bíómyndum. Fréttablaðið spurði áhuga- og kunnáttufólk í fræðunum um eftirlætiskvikmyndir þess á jólunum. E inhver jólin lagðist ég í að horfa á allar kvikmyndir Charlie Chaplin, sem gerði margt meistaraverkið, en Gullæðið (Gold Rush) er ein af hans allra bestu myndum. Gullæðið kom út árið 1925 og segir af ævintýrum litla flakkarans í gullgrafarabæ í snæviþöktum fjöllum Yukon í Kanada. Myndin gerist reyndar aðeins að hluta til yfir hátíðarnar en hefur allt til að bera sem prýðir það sem við skilgreinum alla jafna sem jólamyndir. Hún lýsir baráttu lítilmagnans fyrir betra lífi og veltir fyrir sér andstæðum græðgi og samhjálpar í mannlegu eðli. Svo má ekki gleyma húmornum, en gamanat- riði á borð við þau sem eiga sér stað í hrörlegum fjallakofa á fjallstindi eru einhver þau snjöllustu í sögu kvikmyndanna. Myndin er fyrir alla fjöl- skylduna en gætið þess að horfa á upprunalegu þöglu útgáfuna frá árinu 1925 en ekki talútgáfuna sem var gefin út mörgum árum síðar.“ Heiða Jóhannsdóttir, kvikmyndafræðingur The Gold Rush Leikstjóri: Charles Chaplin Útgáfuár: 1925 Ólafur H. Torfason, kvikmyndagagnrýnandi og formaður Kvikmyndaráðs Börn náttúrunnar Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson Útgáfuár: 1991 Börn náttúrunnar, í hnitmiðaðri leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar og grípandi myndatökustjórn Ara Kristinssonar, var frumsýnd um tíu árum eftir að reglubundin kvikmyndaframleiðsla hófst hér á landi. Hún er eina íslenska kvikmyndin í fullri lengd sem tilnefnd hefur verið til Óskarsverðlauna, sem besta erlenda myndin 1992. Hún stendur fyllilega undir því vali, er full af andstæðum og magnast að áhrifum við hvert áhorf. Sagan er dularfull, hugljúf og nærfærin og áhorfendur fá sterka samúð með sveitabörnunum öldruðu (Gísli Halldórsson og Sigríður Hagalín) sem njóta sín ekki á dvalarheimili í höfuðborginni heldur hnupla jeppa og strjúka á heimaslóðir. Sagan og andrúmsloftið bergmála að nokkru efnið og stemninguna í Eldsmiðnum (1983), heimildarmynd sem Friðrik og Ari gerðu áratug fyrr. Börn náttúr- unnar var á sinn hátt frelsari og trúboð fyrir íslenska kvikmynda- gerð því hún opnaði augu umheimsins fyrir því að hér eru skapaðar athyglisverðar kvikmyndir og opnaði þannig farvegi til allra heimshorna.“ Vera Sölvadóttir, kvikmyndagerðarmaður The Godfather-þríleikurinn Leikstjóri: Francis Ford Coppola Útgáfuár: 1972, 1974 og 1990. Ég veit ekki hversu jóla-legur boðskapur þess- ara mynda er en ég tengi The Godfather-þríleik- inn við jólin. Þetta er tími þar sem maður getur legið yfir nokkrum myndum og serían hentar einstak- lega vel til þess. Mafíósar, dráp, spilling og eiturlyf geta aldeilis komið manni í rétta jólagírinn. Al Pacino, James Caan, Diane Keaton, Robert De Niro, Robert Duvall og Marlon Brando eru ekki slæmt teymi. Plottið er brjálað og hver rammi er listaverk í þessari trílógíu Francis Ford Coppola. Sannkallaðar fjölskyldumyndir sem fá hárin til að rísa yfir hátíðarnar.“ Hugleikur Dagsson, teiknimyndasögu- höfundur og bíónörd Batman Returns Leikstjóri: Tim Burton Útgáfuár: 1992 Svo myrk er önnur Bat-man-mynd Burtons að McDonald’s hætti við að selja Batman Returns-dót í barnamáltíðum sínum. Mynd sem hefst á því að nýbakaðir foreldrar kasta vansköpuðu barni sínu í holræsið á aðfangadag er ekki mjög McDonald‘s- væn. Hér segir frá því þegar Mörgæs- in stal jólunum í Gotham-borg. Danny DeVito túlkar þennan dvergvaxna skúrk sem stökkbreyttur Ríkarður þriðji, á meðan Kattarkonan (Michelle Pfeiffer) sippar um í sadó-masó búningi og sprengir verslunarmiðstöðvar. Batman (Michael Keaton) reynir að bjarga jólun- um en kemst þó ekki frá því að sjá sjálfan sig í óvinum sínum. Hann veit að eins og þau mun hann sjálfur eyða jólunum einn.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.