Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 142

Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 142
17. desember 2011 LAUGARDAGUR110 Mikið úr SNARLÆKKAÐ VERÐ 20% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR FJÖL- SKYLDU- HJÓL KEPPNIS- HJÓL val af þrektækjum www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40 30- 60% AFSLÁTTUR SKÍÐI ÍÞRÓTTIR FATLAÐA Íþróttasamband fatlaðra valdi þau Jón Margeir Sverrisson úr Ösp/Fjölni og Kol- brúnu Öldu Stefánsdóttur úr Firði/ SH íþróttafólk ársins 2011 og fengu þau verðlaunin afhent við viðhöfn í síðustu viku. Jón og Kolbrún synda bæði í flokki S14, flokki þroska- hamlaðra. Þetta er annað árið í röð sem Jón Margeir hlýtur nafn- bótina íþróttamaður ársins en í fyrsta sinn hjá Kolbrúnu. Bæði Jón og Kolbrún eiga glæsi- legt ár að baki í sundlauginni, Jón setti fjögur heimsmet og 41 Íslandsmet og Kolbrún setti 10 Íslandsmet. Fram undan hjá þessu öfluga íþróttafólki er undirbúning- ur og keppni þar sem allir horfa nú til Ólympíumóts fatlaðra sem fram fer í London á næsta ári. Jón Margeir setti eins og áður sagði fjögur heimsmet á árinu. Það fyrsta kom á opna þýska meist- aramótinu þegar hann synti 800 metra skriðsund á á 9:07,25 mín- útum. Hann setti sitt annað heims- met í Vatnaveröld í Reykjanesbæ á bikarmóti ÍF í 25 metra laug þegar hann synti 200 metra skriðsund á 2:00,74 mínútum. Jón setti síðan tvö ný heimsmet á Extra-Stórmóti SH í lok október. Hann synti þá 1.500 metra skriðsund á 16:47,98 mínútum og setti líka heimsmet með því að synda fyrstu 800 metr- ana á 8:55,89 mínútum. Kolbrún Alda byrjaði árið á því að fá sjómannabikarinn eftirsótta þegar hún vann besta afrekið á Nýárssundmóti fatlaðra barna og unglinga. Hún er nú handhafi 10 Íslandsmeta í sjö greinum auk þess að vera bikarmeistari og margfaldur Íslandsmeistari árið 2011. - óój Íþróttafólk ársins 2011 hjá Íþróttasambandi fatlaðra: Settu 55 met á árinu ÍÞRÓTTAFÓLK ÁRSINS HJÁ FÖTLUÐUM Jón Margeir Sverrisson úr Ösp/Fjölni og Kol- brún Alda Stefánsdóttir úr Firði/SH. MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON HANDBOLTI „Það eru ansi litlar líkur á því að ég verði með. Þetta er eig- inlega búið,“ segir Ólafur Stefáns- son við Fréttablaðið spurður um líkurnar á því að hann spili með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu í janúar. Ólafur er nýbyrjaður að spila eftir langvinn meiðsli. „Gummi þjálfari vill halda þessu eitthvað opnu en það er samt ólík- legt að ég verði með. Gummi vill líklega sjá hvernig ég verð næstu tvær vikur. Þetta kemur í ljós en líkurnar eru litlar.“ Landsliðsfyrirliðinn segir ekki koma til greina að fara með hópn- um til Serbíu verði hann ekki í standi til þess að spila með liðinu. „Ég ætla ekki að vera neinn túr- isti þarna. Ég vil frekar vera hér í Danmörku og byggja upp hnéð meðan á mótinu stendur. Ég held það sé skynsamlegra því þá eru meiri líkur á að ég geti spilað í undankeppni Ólympíuleikanna og nýst mínu liði betur á árinu. Ég verð að sýna félaginu smá virðingu líka. Það er því ekkert skynsamlegt að fara á þetta mót eða verða aðstoðarþjálfari, þriðji valmöguleiki eða álíka. Ef ég fer þá yrði það til þess að spila,“ segir Ólafur en er Guðmundur landsliðs- þjálfari að leggja hart að honum að vera með? „Nei, hann skilur þetta fullkom- lega og þetta er ekkert vandamál. Við erum ekki búnir að ræða þetta til enda samt.“ Ólafur er duglegur að mæta í lyftingasalinn og á réttri leið þó svo að hann vilji ekki tjá sig mikið um meiðslin. „Ástandið er bara eins og það er. Meira vil ég í raun ekkert segja um það. Nú verð ég bara að sýna hvernig ég er,“ segir Ólaf- ur en hann segist æfa vel. „Ann- ars vil ég bara sem fæst orð hafa um meiðslin. Ég er löngu hættur að meta mig og sáttur við hverja æfingu og hvern leik. Ég vil spila og láta verkin tala,“ segir Ólafur og bætti við. „Maður er ekkert í neinum yfirlýsingum eftir að hafa verið meiddur. Þá vill maður vinna í sínu, segja minna og sýna meira. Það er hverjum manni hollt eftir svona pakka. Ég er búinn að læra margt af þessu mótlæti og Dan- irnir verið góðir við mig. Vonandi heldur ástandið áfram að batna og næsta ár mjög gott.“ henry@frettabladid.is Ólíklegt að ég verði með Ólafur Stefánsson gerir ekki ráð fyrir því að spila með íslenska landsliðinu á EM í janúar. Ólafur segir að það sé skynsamlegt að hann hvíli að þessu sinni. UTAN VALLAR Ólafur er andlegur leiðtogi liðsins og hans verður klárlega sárt saknað ef hann fer ekki til Serbíu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.