Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 150

Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 150
17. desember 2011 LAUGARDAGUR118 CC Flax Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri og einkennum breytingaskeiðs Heilbrigðari og grennri konur Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaup og Krónunni. www.celsus.is Mulin hörfræ – Lignans Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum JÓL ÁN AUKAKÍLÓA - Frábær árangur - Stuðlar að hormónajafnvægi og vellíðan. Talið gott við bjúg og vökvasöfnun, styrkir þvagfærakerfið. Fjölbreyttar trefjar, hreinsa og tryggja góða starfsemi ristilsins. Lækkar kólestrólfitu, ríkt af Omega-3 PERSÓNAN Magdalena Sara Leifs- dóttir Aldur: 15 ára. Starf: Nemi og fyrirsæta. Búseta: Kópavogur. Fjölskylda: Foreldrarnir heita Þórey G. Guðmunds- dóttir og Leifur Eiríksson. Stjörnu- merki: Naut. Magdalena kom heim frá Kína á dög- unum með fyrirsætusamning við alþjóð- legu Elite-skrifstofuna. „Ég byrjaði að fikta við að þrykkja myndir á boli fyrir svona 3-4 árum. Það er ágætt að geta kúplað sig út úr boltanum stundum,“ segir Róbert Gunnarsson, landsliðsmað- ur í handbolta. Hann hefur nú opin- berað áhugamál sitt og er byrjað- ur að selja boli úr sinni smiðju til landsmanna. Róbert hannar undir nafninu Þessi feiti sem er held- ur óvanalegt nafn á fatahönnun. „Snorri Steinn á heiðurinn að nafn- inu. Mér fannst þetta fyndið og er kallaður þessu nafni af ákveðnum hópi,“ segir Róbert kátur en þegar Fréttablaðið náði tali af honum var hann í rútu á leið til Flensborgar með liði sínu, Rhein-Neckar Löwen. Róbert býr í Þýskalandi ásamt fjórum börnum og eiginkonu sinni, Svölu Sigurðardóttur, en hún er dugleg að aðstoða hann í hönnun- arferlinu. „Ég fékk hugmyndina því ég fann engan bol sem mér lík- aði í búðunum,“ segir Róbert sem byrjaði á að koma sér upp aðstöðu í kjallaranum heima hjá sér. „Þetta var frekar lengi í fæðingu og ég gerði endalaus mistök í byrjun. Nú er ég búinn að ná tækninni.“ Róbert þrykkir myndir á stutt- og langerma boli en hann leggur mikinn metnað í að bolirnir séu úr vönduðu efni. „Ég kaupi boli frá verksmiðju sem gerir allt úr líf- rænni bómull enda vil ég ekki selja boli sem hnökra og teygjast strax.“ Hingað til hafa aðeins ættingjar og vinir handboltakappans fengið að njóta hönnunar hans en Róbert hefur verið að gera myndir á boli, sængurver og barnaföt. „Já, síðan ég byrjaði hefur fólkið í kringum mig bara fengið mína hönnun í gjaf- ir og það hefur mælst vel fyrir. En ég trúi þeim ekki og fannst rétt að sýna hönnunina fólki sem ég þekki ekkert. Ef aðrir en vinir mínir og ættingjar kaupa bol af mér er það stærsta hrósið sem ég get fengið,“ segir Róbert sem viðurkennir að hann geti alveg hugsað sér að gera áhugamálið að atvinnu þegar hand- boltaferlinum lýkur. „Það blundar smá listaspíra í manni.“ Bolirnir frá Þessum feita eru til sölu á hárgreiðslustofunni Cir- cus Circus á Laugavegi 94 og á Facebook-síðu merkisins. alfrun@frettabladid.i RÓBERT GUNNARSSON: ÞAÐ BLUNDAR SMÁ LISTASPÍRA Í MANNI Handboltakappi hannar föt Stuttmyndin Sailcloth eftir íslenska leikstjórann Elfar Aðal- steinsson er ein þeirra tíu stutt- mynda sem koma til greina hjá bandarísku kvikmyndaakademí- unni þegar tilnefningar til Ósk- arsverðlauna verða kunngjörðar í janúar á næsta ári. Þetta var til- kynnt í vikunni. Valið stóð á milli 107 stuttmynda. Sailcloth er önnur stuttmynd Elfars en hún skartar sjálfum John Hurt í aðalhlutverki. Myndin er lauslega byggð á ævi útgerðar- mannsins Alla ríka sem jafnframt er afi Elfars og leikstjórinn sjálf- ur var raunar staddur á Íslandi í stuttri heimsókn þegar hann fékk fréttirnar. „Mér dauðbrá, satt best að segja, en á mjög jákvæðan hátt,“ segir Elfar í samtali við Frétta- blaðið. Hann var þá kominn heim til Englands, með tvíreykt hangi- kjöt, rjúpur og malt og appelsín í farteskinu, það skal halda alvöru íslensk jól á enskri grund. Flestalla kvikmyndagerðar- menn dreymir eflaust um, á einum eða öðrum tímapunkti, að vera til- nefndir til Óskarsverðlauna og Elfar viðurkennir að hafa sjálf- ur átt þann draum. Hann er hins vegar með báðar fæturna á jörð- inni. „Ég er mjög ánægður, þetta opnar ákveðnar dyr fyrir dreif- ingu og breytir miklu fyrir mynd- ina í framhaldinu,“ segir Elfar sem fékk póst frá John Hurt, aðalleik- ara myndarinnar, eftir að þetta varð ljóst. „Hann óskaði okkur bara til hamingju,“ segir Elfar en Hurt leikur einnig í annarri mynd sem á möguleika á tilnefningu. - fgg Elfar Aðalsteins á Óskarslista GÓÐUR ÁRANGUR Sailcloth er önnur stuttmynd Elfars Aðalsteinssonar en hún er ein tíu stuttmynda sem geta hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna. Þrjú ný hátískumerki verða fáanleg á landinu eftir áramót og þykir teljast til tíðinda þar sem enn er mikið rætt um bága stöðu heimilanna í landinu. T by Alexander Wang verður fáanlegt í versl- un Sævars Karls fljótlega eftir áramót og að sögn Stefáns Svans Aðalheiðarsonar, innkaupa- stjóra hjá Sævari Karli, ríkir mikil eftirvænt- ing eftir vörunum. „Þetta er eitt af mínum upp- áhaldsmerkjum og þess vegna sóttumst við hart eftir því að fá það inn í búðina. Við þurftum að fylla út umsókn hjá fyrirtækinu sem fór svo yfir hana og samþykkti okkur loks eftir að hafa fengið að skoða búðina að innan og utan. T línan er hliðarlína hönnuðarins Alexanders Wang og er á ofboðslega góðu verði. Flíkurnar eru flest- ar úr bómull og silki og sniðin einföld og klæði- leg,“ útskýrir Stefán Svan og bætir við að aðal- lína hönnuðarins sé væntanleg næsta haust. Á vefversluninni Shopbop.com kosta flíkur úr T línunni allt frá 10 þúsund krónum og upp í 50 þúsund. Inntur eftir því hvort hann telji markað fyrir dýrar hönnunarvörur á Íslandi svarar Stefán játandi. „Alveg hiklaust. Fólk er farið að fylgja ráðum Vivienne Westwood og kaupa færri en betri flíkur. Ég hef orðið var við það að fólk vill heldur fjárfesta í góðri flík sem hægt er að nota lengi en að kaupa ódýra tískubólu.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur verslunin GK einnig gert samning við tísku- merkin Stellu McCartney og Surface to Air en eigendur verslunarinnar vildu ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Stella McCartney er á meðal vinsælustu merkja heims. Þá er hönnun Marc Jacobs, Vivienne West wood og Acne fáanleg í versluninni Kron Kron. - sm Hátískan vinsæl á Íslandi TÍSKUÞRÓUN Stefán Svan Aðalheiðarson segir fólk heldur spara fyrir dýrri en endingagóðri flík en að splæsa í ódýrar tískubólur. T by Alexander Wang, Surface to Air og Stella McCartney munu bráðlega bætast í tískuflóruna á Íslandi. LISTASPÍRAN FÆR AÐ NJÓTA SÍN Róbert Gunnarsson hannar boli og fleiri flíkur undir nafninu Þessi feiti en bolirnir eru úr lífrænni bómull og fyrir bæði kynin. Róbert heldur til í kjallaranum heima hjá en hann er búsettur í Þýskalandi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.