Morgunblaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.08.2010, Blaðsíða 37
Dagbók 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2010 Sudoku Frumstig 3 5 5 9 3 6 4 1 3 4 9 1 8 5 9 1 2 6 3 5 9 3 1 2 4 3 5 9 1 8 7 9 6 1 5 7 2 3 3 9 6 1 6 2 9 5 8 6 3 5 7 9 8 4 6 9 9 5 6 3 6 2 7 6 5 4 3 1 4 2 1 8 8 2 3 2 3 7 4 1 5 9 6 8 8 6 9 3 2 7 1 5 4 4 5 1 9 6 8 7 2 3 3 1 2 6 8 9 5 4 7 6 4 5 2 7 3 8 1 9 9 7 8 1 5 4 6 3 2 1 9 6 8 4 2 3 7 5 5 8 4 7 3 6 2 9 1 7 2 3 5 9 1 4 8 6 1 2 4 6 9 8 5 3 7 8 6 9 3 7 5 2 4 1 3 7 5 1 4 2 9 6 8 2 4 6 9 5 1 8 7 3 7 9 3 4 8 6 1 5 2 5 8 1 2 3 7 6 9 4 6 3 2 7 1 9 4 8 5 4 1 8 5 6 3 7 2 9 9 5 7 8 2 4 3 1 6 5 4 7 1 3 8 2 6 9 9 6 8 5 7 2 3 4 1 1 2 3 4 6 9 8 5 7 7 5 2 3 1 4 9 8 6 4 9 6 7 8 5 1 3 2 3 8 1 2 9 6 4 7 5 6 7 4 8 2 1 5 9 3 8 1 9 6 5 3 7 2 4 2 3 5 9 4 7 6 1 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 27. ágúst, 239. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I.Kor. 8, 3.) Göngustígurinn við Ægisíðu í vest-urbæ Reykjavíkur nýtur mikilla vinsælda. Eftir að sérstakur hjóla- stígur var gerður hefur farið betur um göngu- og hlaupagarpa á eldri stígnum og nú þarf aðeins að koma upp lýsingu við hann til þess að auka öryggið í skammdeginu. x x x Víkverji gengur reglulega á stígn-um og þátttaka hans í Reykja- víkurmaraþoninu um liðna helgi markaðist af því að ganga hluta leið- arinnar á meðan enginn skráður þátt- takandi lét sjá sig. Þegar maraþon- hlaupararnir birtust steig hann til hliðar og fylgdist af aðdáun með görpunum, enda veit hann að það er erfitt að hlaupa 10 km og hvað þá hálft maraþon að ekki sé talað um heilt maraþon. x x x Hlaupararnir voru eins misjafnirog þeir voru margir og hver með sinn hlaupastíl auk þess sem klæðnaðurinn var misjafn. Sumir voru í Gefjunarsokkum og aðrir í er- lendum sokkum, sumir í síðbuxum og aðrir í stuttbuxum, sumir í bol og aðr- ir í þykkari yfirhöfn. Sumir hölluðust út á hlið, aðrir hreyfðu vart handlegg- ina, menn voru kiðfættir og hjólbein- óttir og allt þar á milli, margir voru með heyrnartól og gleymdu sér við að hlusta á tónlist eða upplestur, en þrátt fyrir óreglu í stíl og klæðaburði hlupu allir í rétta átt. x x x Langlundargeð og umburðarlyndihlauparanna vakti athygli Vík- verja. Fjöldi manns var á stígnum meðan á hlaupinu stóð, ýmist gang- andi, hlaupandi eða á hjóli. Stundum þurftu hlaupararnir að sveigja frá að- komandi fólki til þess hreinlega að koma í veg fyrir árekstur, en svo virt- ist sem fólk á stígnum þennan morg- uninn teldi sig vera í fullum rétti og lét sér fátt um finnast þótt það mætti hlaupurum á fullri ferð. Kannski var hlaupaleiðin ekki nægilega vel merkt og vissulega hefði mátt gera betur í því efni, en það er samt ekki afsökun fyrir framkomu þeirra sem trufluðu hlauparana. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 svipað, 4 sveðja, 7 skyldmenni, 8 hrósar, 9 fugl, 11 horað, 13 púkar, 14 tryll- ast, 15 klöpp undir sjáv- armáli, 17 tala, 20 flana, 22 birtir yfir, 23 kjökra, 24 rannsaka, 25 þátttakenda. Lóðrétt | 1 trjátegund, 2 stór, 3 einkenni, 4 vers, 5 kjáni, 6 lofar, 10 óleikur, 12 nesoddar, 13 stefna, 15 fjör- mikil, 16 áin, 18 illvirki, 19 slétta, 20 nabbi, 21 duft. Lausn krossgátunnar sem birtist 19. ágúst sl. Lárétt: 1 forkólfur, 8 labba, 9 kuggs, 10 góa, 11 riðla, 13 remba, 15 seggs, 18 snæða, 21 tók, 22 tafla, 23 eflir, 24 rumpulýðs. Lóðrétt: 2 ofboð, 3 klaga, 4 lokar, 5 ungum, 6 klár, 7 Esja, 12 lag, 14 enn, 15 sótt, 16 giftu, 17 staup, 18 skell, 19 ætlað, 20 arra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. f3 c6 5. Be3 Rbd7 6. Dd2 b5 7. g4 Rb6 8. b3 Dc7 9. h4 h5 10. g5 Rfd7 11. a4 b4 12. Rce2 a5 13. c4 bxc3 14. Rxc3 Bg7 15. Hc1 O-O 16. Rge2 c5 17. Rb5 Db8 18. Bg2 Ba6 19. O-O Bxb5 20. axb5 a4 21. bxa4 Hxa4 22. dxc5 dxc5 23. f4 Hd8 24. Dc2 Hb4 25. e5 Rc4 26. Bf2 Staðan kom upp á opna kanadíska meistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Toronto. Georgíski stór- meistarinn Merab Gagunashvili (2596) hafði svart gegn Kanadamanninum Zi Qin (2117). 26… Rdxe5! 27. fxe5 Hd2 28. De4 Rxe5 29. Da8 Dxa8 30. Bxa8 Hxe2 31. Hxc5 Hg4+ 32. Bg2 Rd3 33. Hc8+ Kh7 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Í skrýtnu skapi. Norður ♠Á63 ♥93 ♦ÁDG108 ♣Á72 Vestur Austur ♠10 ♠854 ♥D8754 ♥ÁKG1062 ♦52 ♦-- ♣D9654 ♣KG82 Suður ♠KDG972 ♥-- ♦K97643 ♣10 Suður spilar 6♠ doblaða. „Tölvan var í skrýtnu skapi í kvöld,“ sagði niðurlútur keppandi í Sumarbrids þegar hann dróst þungstígur með botna sína niður tröppurnar í húsakynnum BSÍ. Þetta var á mánudagskvöldið og tölvan sýndi vígtennurnar strax í fyrsta spili. Algeng niðurstaða var 510 í NS fyrir 5♠ með tveimur yfirslögum. Tvö AV- pör voru dobluð í 5♥, sem unnust (650), en toppurinn í NS fékkst fyrir 6♠ do- blaða, plús einn (1310). Á því borði vakti austur á 1♥ og suður sagði látlaust 1♠. „Stopp! – 4♥,“ sagði vestur. Norður leit á armbandsúrið og taldi tíu tif, sagði svo 4♠. Austur sagði 5♥ og suður 5♠. Enn fórnaði austur í 6♥ og aftur þráaðist suður við og sagði 6♠. Austur doblaði í skilningi Lightners, en vestur hafði ekki hugmyndaflug til að koma út með tígul og sagnhafi vann sjö. 27. ágúst 1729 Hraun rann í kringum kirkj- una í Reykjahlíð í Mývatns- sveit og síðan út í Mývatn. Þá gaus í Leirhnjúksgígum en Mývatnseldar hófust árið 1724 og stóðu með hléum fram í september 1729. 27. ágúst 1914 Togarinn Skúli fógeti rakst á tundurdufl á Norðursjó og sökk, en mánuður var þá lið- inn frá upphafi fyrri heims- styrjaldarinnar. Fjórir úr áhöfn togarans fórust en þrettán björguðust. 27. ágúst 1946 Fyrsti bíllinn komst yfir Siglufjarðarskarð. Þar með var einangrun Siglufjarðar rofin, en vinna við veginn hafði staðið í ellefu ár. Veg- urinn um Strákagöng leysti Skarðsveginn af hólmi rúm- um tveimur áratugum síðar. 27. ágúst 1952 Menntamálaráðherra lagði bann við því að auglýsingar um dansleiki yrðu birtar í Ríkisútvarpinu. Tilgangurinn var að hindra að leyni- vínsalar vissu um fyrirhug- aðar samkomur. Bannið „náði aldrei tilgangi sínum og var til aðhláturs eins,“ sagði í bókinni Útvarp Reykjavík. Það var formlega afnumið í júní 1959. 27. ágúst 1970 Rauðu örvarnar sýndu listir sínar við Reykjavíkurflugvöll. „Nákvæmni og hæfni flug- sveitarinnar þurrjós lýsingar- orðaforða áhorfendanna, og vakti óskipta aðdáun,“ sagði í Morgunblaðinu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… Við ætlum að fara í skjól frá umheiminum í dag, kon- an mín og ég, ætlum bara að láta okkur líða vel á af- mælisdaginn,“ segir Ingjaldur Ásvaldsson, bifvéla- virki í Garðabæ, en hann er sjötugur í dag. „Þetta verður mjög rólegt, við keyrum eitthvað út í óviss- una. Við eigum sumarbústað uppi á Flúðum en allir sem við þekkjum vita að við erum oft þar núna í seinni tíð. En auðvitað ekki núna í dag!“ Hann hélt hins vegar upp á sextugsafmælið á sínum tíma með 300 manna veislu á Garðatorgi. Eiginkonan, Þóra Einarsdóttir, og Ingjaldur eiga alls fjögur börn en með öðrum mökum. Hann er ættaður úr Þingeyj- arsýslum en kom suður um tvítugt og lærði bifvélavirkjun. „Ég er búinn að reka í 38 ár réttinga- og málningarverkstæðið Bretti, síðustu tvo ára- tugina eða svo við Smiðjuveg 4D í Kópavogi. Ég er með þrjá karla í vinnu. Ég á sjálfur Toyota Land Cruiser núna, en í gegnum árin var ég oft kenndur við Citroën af því að ég var í mörg ár með viðgerðaverkstæði fyrir þá. Þetta voru framúrstefnubílar, fyrstir með framhjóladrif og seinna vökvafjöðrun. Ég er með Citroën-bragga hérna fyrir utan og átti að gera hann upp en maðurinn virðist hafa misst áhugann núna.“ kjon@mbl.is Ingjaldur Ásvaldsson bifvélameistari 70 ára „Eitthvað út í óvissuna“ Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 27. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 1.43 0,4 7.44 3,8 13.51 0,5 19.57 3,9 5.56 21.04 Ísafjörður 3.44 0,2 9.33 2,0 15.49 0,3 21.47 2,1 5.52 21.18 Siglufjörður 6.02 0,2 12.15 1,2 18.11 0,2 5.34 21.01 Djúpivogur 4.56 2,1 11.08 0,4 17.12 2,0 23.20 0,4 5.23 20.35 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Varastu stórorðar yfirlýsingar og skuldbindingar sem kunna að koma þér í koll. Hafðu þetta í huga þegar þú gengur fram á vettvangi dagsins. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ættir að vera ein/n. Hafðu samt andvara á þér því alltaf getur eitthvað komið upp á og þá er gott að vera við öllu búin/n. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Að treysta einhverjum sem maður þekkir varla er partur af ævintýri dagsins í dag. Ef þú kemur fram af kurteisi og djörf- ung muntu hafa þitt fram. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú getur ekki lengur vikist undan því að hafa frumkvæði að lausn mála. Njóttu þess að vera í sambandi við annað fólk en forðastu mikilvægar ákvarðanir og skuld- bindingar. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Slakaðu vel á með fjölskyldunni því næstu vikur verða þéttbókaðar. Samningur er í húfi hjá einhverjum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er óþarfi að bugast þótt allir hlut- ir gangi ekki upp eins og best verður á kosið. Leitaðu samt ekki langt yfir skammt því tækifærin eru við höndina. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ef þú ert að pæla í hvort einhver sé að pæla í hvar þú ert, er svarið já. Nú er tilvalið að staga í trosnuð sambönd eða laga gamlar girðingar. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú gætir lent í deilum í dag. En kannski finnur þú þig knúna/knúinn til þess að eignast eitthvað sem verður á vegi þínum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert frábær félagi. Ef þú ferð ekki varlega áttu á hættu að allt fari úrskeið- is. Notalegheit eru leiðinleg til lengdar. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Heimili, fjölskylda og hefðbundin gildi skipta þig miklu máli. Notaðu tímann til að sinna sjálfum/sjálfri þér, ekki bara öðr- um. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Vinur þinn er viðkvæmur þessa dagana. Lausnin gæti verið rétt fyrir framan nefið á þér, ef þú myndir bara opna augun. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur samúð með öðrum. Láttu ekki hugfallast þótt þér finnist hugmyndir þínar falla í grýttan jarðveg. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.