Morgunblaðið - 15.01.2011, Síða 11

Morgunblaðið - 15.01.2011, Síða 11
og hina frægu hönnun á Rocking Horse, skóm sem Westwood hannaði árið 1987 og eru hluti af Harris Tweed-línunni. „Þú lifir mun betra lífi ef þú ert í fötum sem hafa áhrif,“ lét Westwood eitt sinn hafa eftir sér. Í mars næstkomandi verður opnuð í Museum at the Fashion Institute of Technology í New York sýningin Vivienne Westwood 1980-89. Þetta verður fyrsta sýningin til að einblína ein- göngu á tísku breska fatahönnuðarins Vivi- enne Westwood frá níunda áratugnum. Á sýn- ingunni verður ljósi beint að hönnun hennar frá þeim áratug og þeim breytingum sem hönnun hennar tók þá. Westwood er mörgum kunn enda bæði áberandi fatahönnuður og einstaklingur en útlit hennar hefur löngum þótt áberandi og nokkuð djarft á köflum. Í byrjun níunda áratugarins má segja að hönnun Westwood hafi verið nokkuð á jaðri tískuheimsins en þetta breyttist þegar kom fram á miðjan áratuginn. Þá fór hún að hanna föt með ákveðnara kvenlegu sniði en hún hafði hingað til gert og fékk hún gjarnan innblástur frá ýmsum tímabilum mannkynssögunnar. Þetta vakti athygli fjölmiðla og breikkaði við- skiptahóp Westwood. Á sýningunni verður meðal annars hægt að skoða kvenföt úr Buffalo-línunni svokölluðu frá árinu 1982 Tíska í New York Sýning tileinkuð Westwood Brúðarkjólar Hönnun Vivienne Westwood er oftast óvenjuleg, litrík og áberandi. Hönnuðurinn Vivienne Westwood er stórt nafn í tískuheiminum. Reuters sykur. Hann má nota í góðlátlegt gabb og villa um fyrir fólki með því að búa t.d. til svartan jarðaberja- brjóstsykur! Grænt klúður Þegar blandan er orðin hæfilega heit er komið að þátttakendum að sýna snilli sína í því að klippa niður brjóstsykursmola og móta að vild. Þetta gengur ekki alveg nógu vel hjá mér í fyrsta skiptið enda ljósmyndari að þvælast fyrir mér og ég ekki nógu snör í snúningum. „Þetta er klúður,“ segir Andri góðlátlega um grænu, hörðu klessuna sem eftir verður á borðinu. Við hana er ekkert að gera nema, jú, það má bræða hana aftur, henda henni í pottinn eða örbylgjuofn- inn. Næst tekur við að klippa niður rauðan og hvítan perubrjóstsykur og það gengur aðeins betur. Með því sýn- ir Andri okkur líka hvernig tveimur litum er blandað saman. Loks er svo komið að því sem ég og vinkona mín, sem ég hafði með til andlegs stuðn- ings, höfum beðið eftir í allt kvöld. Æsandi lakkrísbrjóstsykur „Það er ekkert gaman að ávaxtabrjóstsykri,“ segir Andri og tilkynnir að nú verði gerður lakkrís- brjóstsykur. Þátttakendur fá að smakka á salmíak- og lakkrísdufti og færist nokkur æsingur í okkur vin- konurnar. Lakkrísbrjóstsykurinn skal þó ætíð gera síðast því þá er platan orðin heit sem er mikilvægt til að blandan nái að krauma vel saman. Andri hitar nýja sykurblöndu og skellir síðan góðum slatta af duftinu út í. Nokkrir taka andköf en sjálf fæ ég nostalgíukast. Væri hægt að bæta vodka út í þetta? spyr ég, minnug breskra skóladaga þar sem bræddur var sterkur brjóstsykur í potti og síð- an blandað saman við vodka. Hver veit nema slíkur brjóstsykur gæti slegið í gegn? Andri segir að svo geti vel verið þó hann vilji ekki mæla með slíku á blaðsíðum Morgunblaðsins. Blaðamaður mun því sjálfur bera ábyrgð á slíkum tilraunum einn dag- inn. Eftir að búið er að klippa sterka brjóstsykurinn, sem er mjög góður og rífur í, og hann orðinn hæfilega heitur er sett salmíakduft yfir mol- ana. „Ég treysti ykkur fullkomlega og þið hafið staðið ykkur vel,“ segir Andri að lokum. Þetta tökum við vin- konurnar til okkar og höldum glaðar í bragði heim þar sem við leggjum á ráðin um frekari brjóstsykursgerð. Hmmm Blaðamaður klúðrar saman grænum sleikjóbrjóstsykri. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2011 Í kvöld, laugardagskvöld, verður haldið svokallað Norðlendingapartí á SPOT Kópavogi og er fullyrt að það verði eins og þau gerast best. Einnig hefur verið sagt að allir sem hafa einhvern- tíman komið á Norðurland muni verða þarna og hvur veit nema einhverjir Norðurlandabúar láti líka sjá sig og kannski nokkrir frá Asíu. Hinir einu sönnu Hvanndalsbræður ætla að sjá um að skemmta gestum en þó aðallega sjálfum sér og miðað við fíflaganginn sem þeir eru hvað frægastir fyrir þá má búast við skrautlegum uppákomum. Eldhús staðarins ætlar að bjóða af þessu tilefni upp á hópseðil fyrir þá sem koma í flokkum og vilja byrja gott kvöld snemma á góðri máltíð. Borðapantanir í síma 544 4040. Allir sem finna sig í norðri sameinist Kátir Hvanndalsbræður eru einstakir. Norðlendingapartí með Hvanndalsbræðrum Morgunblaðið/Eggert Allt sem til þarf í brjóstsykurs- gerðina má kaupa á vefnum slikkeri.is eða mommur.is. Þar er hægt að kaupa bragðefni, þrúgusykur, sykurhitamæli, litarefni og fleira. Mikilvægast er að fylgjast vel með hitanum á sykurblöndunni og fara varlega þegar blandan er skafin fram og til baka. Enda er hún mjög heit og passa þarf að litlir fingur komi þar hvergi nærri. Þess fyr- ir utan er brjóstsykursgerð skemmtileg afþreying fyrir alla aldurshópa. Hráefnin og allt sem þarf BRJÓSTSYKURSGERÐ ÍS L E N S K A S IA .I S 52 20 9 01 /1 1 PÁLL ÓSKAR OG EUROVISION- STJÖRNUR ÍSLANDS Í KÖBEN 5. MAÍ 2011 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði í eina nótt, aðgöngumiði á tónleika Páls Óskars og EUROVISION-stjarna ásamt þriggja rétta kvöldverði, aðgöngumiða á dansleik. GESTASÖNGVARAR: Icy-hópurinn (Pálmi Gunnarsson, Eiríkur Hauksson, Helga Möller) Stebbi & Eyfi Björgvin Halldórsson Hera Björk Jóhanna Guðrún Selma Björns Friðrik Ómar Regína Ósk VERÐ Á MANN FRÁ: 89.900* KR. Í TVÍBÝLI 99.900* KR. Í EINBÝLI EINSTÖK TÓNLISTARUPPLIFUN FYRIR HÓPA OG KLÚBBA. Eurovision-stórtónleikar í Cirkus í Kaupmannahöfn þar sem Páll Óskar skemmtir ásamt fjölda söngvara sem hafa allir tekið þátt í söngvakeppninni á árum áður. Tónleikarnir fara fram undir borðhaldi þar sem snæddur verður glæsilegur þriggja rétta kvöldverður meðan listamennirnir skemmta gestum. Síðan verður dansleikur og stanslaust stuð til kl. 02.00 þar sem Páll Óskar sér um tónlistina og heldur uppi fjörinu eins og honum er einum lagið. Nánari upplýsingar á www.icelandair.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.