Morgunblaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2011
Á þriðjudag sl. ákvað 39. heimsþing
skáta að halda World Scout Moot
2017 á Íslandi. Þetta er alþjóðlegt
mót fyrir 18-25 ára skáta.
„Það er mikil viðurkenning og
heiður fyrir íslenska skáta að
stærstu æskulýðssamtök heims, þ.e.
skátahreyfingin, skuli fela Íslend-
ingum að halda jafn mikilvægan og
stóran viðburð. Mótið mun vonandi
laða 5.000 skáta frá öllum heims-
hornum til Íslands,“ segir Bragi
Björnsson skátahöfðingi, sem
staddur er á þinginu.
Bragi segir að þetta sé tækifæri
til að kynna Ísland fyrir 35 millj-
ónum skáta um allan heim og ætla
megi að gjaldeyristekjur þjóðar-
búsins vegna mótsins verði um 1
milljarður kr.
Rover Scout Moot er stærsti við-
burður WOSM, alheimsbandalags
skáta, sem haldinn er fyrir þennan
aldurshóp. Bandalag íslenskra
skáta hélt mót sumarið 2009 fyrir
skáta frá Evrópu í sama aldurshópi
og sóttu það 2500 erlendir skátar.
Á Rover Scout Moot munu þátt-
takendur raða sér í 40-50 manna
fjölþjóðleg teymi sem fara um allt
land, vinna sjálfboðavinnu, stunda
útivist og kynnast landi og þjóð
Búist við 5000 skátum hingað 2017
Gaman Það er alltaf mikið fjör þegar skát-
ar úr öllum heimshornum koma saman.
Námskeiðin „Uppeldi sem virkar – færni
til framtíðar“ á vegum Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins eru að hefjast á ný.
Námskeiðin, sem hafa verið mjög vel
sótt undanfarin ár, miða að því að skapa
sem best uppeldisskilyrði fyrir börn með
því að kenna foreldrum jákvæðar og ár-
angursríkar aðferðir. Þannig er lagður
grunnur að því að barnið þroski með sér
eiginleika og læri færni sem gagnast því til frambúðar. Sömuleiðis er dreg-
ið úr líkum á erfðiðleikum í hegðun, líðan og samskiptum hjá barninu til
lengri og skemmri tíma.
Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem
eiga yngstu börnin. Námskeiðin fara fram hjá heilsugæslunni, Þöngla-
bakka 1, Reykjavík. Upplýsingar eru á vefnum heilsugaeslan.is.
Námskeið í boði fyrir unga foreldra
Inter, í samstarfi við Vidacare,
hefur nú gefið beinmergsborvélar
í alla sjúkrabíla landsins.
Með notkun beinmergsnála er
hægt að komast hratt og auðveld-
lega að æðakerfi sjúklings og
gefa þannig lyf og vökva.
Í tilkynningu um gjöfina segir
að uppsetning beinmergsnálar
geti verið nauðsynleg hjá bráð-
veikum og slösuðum þar sem það
geti verið erfitt að finna æðar
þegar sjúklingur er í losti þar
sem æðar verða minni og skreppa
saman.
Einungis tekur um 10 sekúndur
að setja upp beinmergsnál. Það
getur sparað mikilvægan tíma
þar sem hver mínúta skiptir máli
við aðhlynningu veikra og slas-
aðra, segir í tilkynningunni.
Unnið hefur verið markvisst að
því undanfarin misseri að búa
sjúkrabíla landsins margvíslegum
útbúnaði.
Gefa beinmergs-
nálar í sjúkrabíla
Reykjavíkurborg vinnur að nýrri
ferðamálastefnu fyrir árin 2011-
2020. Um það bil 300 manns úr ýms-
um geirum þjóðfélagsins hafa nú
þegar lagt vinnunni lið með hug-
myndum sínum í ólíkum þemahóp-
um og lagt drög að nýrri stefnu. Nú
er kallað eftir hugmyndum almenn-
ings um hvernig Reykjavík getur
orðið enn betri áfangastaður fyrir
ferðamenn. Fólk er hvatt til að taka
þátt með því að fara inn á
www.reykjavik.is og smella þar á
viðeigandi vefborða.
Borgin vill liðsinni
almennings
Í dag, laugardag, eru 144 milljónir króna í fyrsta
vinning fyrir 13 réttar raðir á enska seðlinum. Þetta
er stærsti potturinn í sögu Íslenskra getrauna frá því
að þær voru endurvaktar á árinu 1969.
Á síðasta ári voru gerðar breytingar á útborg-
unarhlutfallinu í Getraunum og fór það úr 46% í 65%
og hækkaði fyrsti vinningur við það úr um 40 millj-
ónum í rúmar 70 milljónir. Um síðustu helgi voru
það margir með 10 rétta að útborgun í þeim vinn-
ingsflokki náði ekki lágmarksútborgun og leggst því
sú upphæð, 42 milljónir króna, við fyrsta vinning í dag. Ennfremur ákváðu
Íslenskar getraunir og Svenska spel að bæta 34 milljónum króna við fyrsta
vinning þannig að potturinn verður yfir 144 milljónir króna svo það er til
verulega mikils að vinna. Þess má geta að Íslenskar getraunir og sænska
getraunafyrirtækið Svenska spel vinna saman í sölu getraunaseðla.
Einnig var gerð sú breyting á síðasta ári að ef einn tippari er stakur með
eina röð með alla 13 leikina rétta á Enska seðlinum, fær hann tryggðar 10
milljónir sænskra króna í vinning eða um 160 milljónir íslenskra króna.
Þetta gildir þó ekki á Evrópuseðlinum.
Stærsti getraunapottur Íslandssögunnar
Laugardaginn 15. janúar bjóða
nemendur á heilbrigðisvísindasviði
gestum og gangandi í opið hús á
Háskólatorgi þar sem fólki gefst
kostur á að fræðast um sykurmagn
í ýmsum þekktum fæðutegundum,
skoða sýni í smásjá, fræðast um
starfsemi Ástráðs og margt fleira.
Forvarnafélag hjúkrunarfræði-
nema, Skjöldur, kynnir starfsemi
sína.
Þá verður Bangsaspítalinn á
staðnum og býður öllum börnum á
aldrinum 3-6 ára að koma með
dúkkurnar sínar eða bangsana til
læknis. Meistaranemar í lyfjafræði
munu flytja stutta fyrirlestra kl. 12.
Fræðast um sykur-
magn í fæðunni
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduós
Vetur fer að verða hálfnaður og
aðeins vika í fyrstu þorrablótin.
Kvenfélagið Vaka á Blönduósi hef-
ur oftast riðið á þorrablótavaðið í
sýslunni og svo taka hin ýmsu
þorrablót við koll af kolli víða um
hérað hverja helgi þar til góa
gengur í garð.
Lífið hér við botn Húnafjarðar
markast ef til vill svolítið af því að
jólin eru nýgengin um garð og
naprir vindar með snjó og ófærð
hafa sett svolítinn svip á hið nýja
ár.
Hótelið, sem er lokað yfir vet-
urinn, hefur þurft að opna dyr sín-
ar fyrir ferðalöngum sem ekki hafa
átt í nein hús að venda þegar veð-
ur gerast válynd.
Þessi árstími er yfirleitt not-
aður til að átta sig á hlutunum eft-
ir annasaman tíma. Eins og allir
vita þá er aðventan erilsöm hjá öll-
um og gildir það jafnt um sauðfé
og mannfólk. Fengitíminn er um
garð genginn, framhalds-
skólakrakkarnir farnir aftur í skól-
ann, mismunandi langt frá heima-
byggð.
Björn Þór Kristjánsson at-
hafnamaður er um þessar mundir
á fullu að byggja upp Eyvindar-
stofu við veitingahús sitt við Norð-
urlandsveg og er hugmyndin að
opna hana í júní.
Nafnið og hönnun Eyvind-
arstofu tengist útilegumanninum
kunna Fjalla-Eyvindi og sagði
Björn Þór að hugmyndin væri að
framleiða algjörlega nýjan rétt úr
lambakjöti og silungi, hráefnum
sem tengjast útilegumönnum og
hefur Nýsköpunarsjóður lagt því
máli lið.
Hestamenn eru búnir að taka
hross á hús og Blönduósbær farinn
að huga að því hvernig 100 tonna
fiskveiðibyggðakvóta verði best út-
hlutað samfélaginu til hagsbóta.
Hafa bæjaryfirvöld boðað hags-
munaaðila til fundar um þessi mál.
Fulltrúar knattspyrnudeilda
Tindastóls og Hvatar hittust í
byrjun árs miðja vegu milli knatt-
spyrnuvalla félagsins, nánar til-
tekið á Þverárfjallsvegi, og skrif-
uðu undir samning um samstarf
félaganna í 2. deild karla og 2.
flokki karla næsta sumar.
Hugmyndin er að skipta
heimaleikjunum á milli Blönduóss
og Sauðárkróks í sumar.
Síðast en ekki síst þá er
ekki að heyra neinn uppgjafartón
eða væl í iðnaðarmönnum á
Blönduósi og hafa flestir þeirra
næg verkefni næstu mánuðina.
Blönduós og Sauðárkrókur
skipta með sér heimaleikjum
Morgunblaðið/ Jón Sigurðsson
Blómlegt félagslíf Félagsstarf aldraðra er blómlegt á Blönduósi og það
lá vel á þeim Margréti Ásmundsdóttur og Filippíu Helgadóttur.