Morgunblaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 46
46 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2011
Orð dagsins: Þegar þú leggst til hvíld-
ar, þarft þú ekki að hræðast, og hvílist
þú mun svefninn verða vær. (Ok. 3, 24.)
Tæknifréttir í sjónvarpi eru í sér-stöku uppáhaldi hjá Víkverja,
ekki vegna þess að hann sé áhuga-
samari en meðalmaðurinn um nýj-
ustu tækni og vísindi, heldur vegna
þess hve skemmtilegt það er að horfa
á fréttir um framfarir í tækniþróun
með augum framtíðarsjálfs síns. Eðli
tækninnar er að henni fleygir stöðugt
fram á ótrúlegum hraða og þess
vegna eru tæknifréttir, umfram aðr-
ar, dæmdar til þess að vera orðnar
skoplegar eftir nokkur ár.
x x x
Víkverji gat því ekki annað enbrosað í kampinn þegar RÚV
sagði á fimmtudagskvöld frá fyrstu
íslensku rafbókasíðunni með þeim
orðum að verk ýmissa íslenskra
skálda væru „nú aðgengileg í raftölv-
um hvar sem er í heiminum“. Fréttin
var góðra gjalda verð enda rafbækur
enn framandi tækni í augum margra
en Víkverja segir svo hugur að þess
sé ekki langt að bíða að sú staðreynd
að nálgast megi íslenskar bækur raf-
rænt hvar sem er í heiminum þyki
álíka markverð eins og að hægt sé að
tala við fólk í gegnum færanlega síma
hvar sem er í heiminum.
x x x
Fyrir rúmum 15 árum birtist fréttí Morgunblaðinu um vafasamar
hliðar hins nýja alnets, undir fyr-
irsögninni „Klám á netinu?“ Rætt var
við alnetsfræðing sem ekki hafði orð-
ið var við slíkt efni en játti því þó að
ekki væri hægt að hindra notendur í
að nálgast það væri það til staðar.
x x x
Ári áður birtust „Spurningar ogsvör um Internet“ á síðum
Morgunblaðsins, byggt á grein í
Sunday Times. Þar mátti m.a. lesa
vangaveltur um hvort netið gæti ein-
hvern tíma orðið risavaxið, eða hvort
það yrði kannski í mesta lagi vett-
vangur opinberra stofnana og fyr-
irtækja þegar nýjabrumið færi af því.
Að endingu er sagt frá nýju bresku
tímariti sem sérhæfi sig í upplýs-
ingum um hvað sé að finna á netinu
og hvernig sé hægt að nálgast það.
Ætli þetta tímarit sé ennþá gefið út?
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vitskertar, 8 vænt-
ir, 9 lækka, 10 mánuður, 11
þróunarstig skordýra, 13
öngla saman, 15 svalls, 18
sanka saman, 21 kjöt, 22
suða, 23 í vafa, 24 himin-
glaða.
Lóðrétt | 2 stendur við, 3
freka menn, 4 blóðsugan, 5
hryggð, 6 helmingur heil-
ans, 7 betrunar, 12 fantur,
14 dveljast, 15 harm, 16
blóm, 17 háð, 18 fjárrétt, 19
holdugt, 20 kvenfugl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hugga, 4 múgur, 7 grund, 8 næpan, 9 att, 11 lygn, 13
erti, 14 ennið, 15 krús, 17 Asía, 20 ála, 22 aspir, 23 gamli, 24
tóman, 25 arðan.
Lóðrétt: 1 hugul, 2 grugg, 3 alda, 4 mont, 5 gapar, 6 rengi, 10
tungl, 12 nes, 13 eða, 15 kjaft, 16 úlpum, 18 samið 19 alinn, 20
árin, 21 agða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
15. janúar 1809
Jörgen
Jörgensen
kom til Ís-
lands á
skipinu
Clarence
og dvaldi
hér í tæpa
tvo mán-
uði. Hann
kom aftur í
júní, eins
og frægt er
orðið.
15. janúar 1942
Mesta vindhviða sem vitað er
um í Reykjavík mældist þennan
dag. Vindhraðinn var 214 kíló-
metrar á klukkustund (59
metrar á sekúndu).
15. janúar 1961
Steinsteypt íbúðarhús á Neðra-
Hóli í Staðarsveit eyðilagðist
þegar eldingu sló niður. Fimm
kýr drápust.
15. janúar 1967
Bergfylla féll úr Innstahaus við
Þórsmörk. Hún var um 15
milljón rúmmetrar, lenti á
Steinsholtsjökli og skvetti
milljónum rúmmetra af vatni
úr lóni við jökulinn. Rennsli
Markarfljóts margfaldaðist í
stuttan tíma.
15. janúar 1991
Stöð 2 hóf beinar útsendingar
frá gervihnattastöðinni CNN,
einkum vegna Persaflóastríðs-
ins. Þremur dögum síðar sýndi
Sjónvarpið beint frá Sky. Sent
var út að lokinni venjulegri
dagskrá.
15. janúar 1999
Ein dýpsta lægð aldarinnar,
925 millibör, gekk yfir landið
þennan dag og fram á þann
næsta. Þak fauk um þrjátíu
metra á Hornafirði og maður
með. Hann slasaðist ekki mikið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Hermann Sigtryggsson, íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúi á Akureyri í 33 ár og síðan forstöðumaður
Vetraríþróttamiðstöðvarinnar í fimm ár áður en
hann fór á eftirlaun fyrir áratug, er 80 ára í dag.
Frá 1946 hefur Hermann unnið við skíðamót og
til stendur að hann ræsi Skíðastaðagönguna, sem er
liður í Íslandsgöngunni sem hann átti þátt í að
stofna, í Hlíðarfjalli í dag. „Ég fer í fjallið og hitti fé-
lagana,“ segir margverðlaunaður íþróttafrömuður-
inn og félagsmálatröllið, sem sinnir enn nefnd-
arstörfum fyrir ÍSÍ og skíðaráðið á Akureyri en
gerir lítið úr skíðaiðkuninni. „Ég er enginn skíða-
maður sjálfur en ég hef ekki tölu á því hvað mörgum skíðamótum ég
hef stjórnað.“
Á sínum yngri árum keppti Hermann í mörgum greinum íþrótta og
hann hefur haldið sér í æfingu á göngu- og svigskíðum. „Það hefur bara
verið til gamans gert að fara á skíði,“ segir hann og bætir við að eitt
helsta áhugamálið nú sé að smíða, en þess vegna komist bíllinn ekki fyr-
ir í bílskúrnum. Eiginkonan, Rebekka H. Guðmann, og dætur þeirra
ætla að fara með hann í óvissuferð eftir hádegið í tilefni dagsins og svo
borðar fjölskyldan saman í kvöld. „Ég bíð spenntur.“ steinthor@mbl.is
Hermann Sigtryggsson 80 ára
Félagsmálatröll í óvissuferð
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er bráðnauðsynlegt að lesa vel
allt smáa letrið á þeim skjölum sem þú skrif-
ar undir. Ekki láta aðra notfæra sér góðsemi
þína og láta þig fá samviskubit.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Tölvuvandræði, vélarbilun eða galli í
tækjabúnaði getur valdið töfum. Blandaðu
þér ekki í vandamál annarra að óþörfu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú þarft að stinga við fótum og
standa fast á þínu máli þótt að þér sé sótt
úr öllum áttum. Lærðu af reynslunni og
mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og
þú.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert kominn út á ystu nöf vegna
útgjalda í félagslífinu eða vegna óskalista
smáfólksins. Láttu fólk um að leysa vanda-
mál sín sjálft og sinntu sjálf/ur eigin málum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Atburðarásin mun taka öll völd úr
höndum þér ef þú ekki stingur við fótum og
nærð stjórn á hlutunum. Taktu þér tíma því
að flas er ekki til fagnaðar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Óvenjulegar persónur gætu komið
róti á huga þinn í dag og vinir þínir munu
sýna á sér nýja hlið. Ekki er ósennilegt að
meiri tilfinningasemi en ella geri vart við sig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú finnur til óvenjumikils örlætis í garð
vinar eða einhvers í fjölskyldunni í dag.
Gefðu þér tíma til að spjalla því þú hittir ekki
skemmtilegt fólk á hverjum degi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nú verður ekki lengur undan því
vikist að taka ákvörðun varðandi starfsvett-
vang. Mundu að hver er sinnar gæfu smiður.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú sinnir hlutverki þínu, hvort
sem það er sem foreldri, maki eða vinur.
Gríptu tækifæri til að koma þér áfram.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Notaðu daginn til þess að fara í
saumana í lífi þínu og skoða markmið þín.
Notaðu kímnigáfuna.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Óljósar aðdróttanir fara framhjá
þér. Þú ættir að skella þér út í göngutúr eða
í sund á næstunni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú skammast þín ekki fyrir tilfinn-
ingar þínar og uppskerð heilbrigði fyrir vikið.
Ummælin geta verið umdeild eða á skjön við
skoðanir annarra.
Stjörnuspá
Sudoku
Frumstig
2 9 6
4
7 5
6 5
8 2 3
6 2 5
3 9 7
8 9 4 3 2
4 3 7 6
4 5 1 2 7
6 9 2
8 1 4 5 9
7
4
9 8
4 9 6
8 2 1
7 4 2
8 7 4
2 3
6 8
2 4
4 9 1 7
7 5 1
6 1 2 3
5 9
6 5 1
5 2 7 3 9 6 1 4 8
4 1 3 8 7 2 9 5 6
9 6 8 5 4 1 2 3 7
6 4 2 1 3 7 8 9 5
7 9 1 2 5 8 4 6 3
8 3 5 4 6 9 7 2 1
3 5 9 7 8 4 6 1 2
1 8 6 9 2 3 5 7 4
2 7 4 6 1 5 3 8 9
3 1 8 4 7 2 5 6 9
6 9 2 1 5 3 4 7 8
7 4 5 9 8 6 3 2 1
1 5 7 6 2 8 9 3 4
8 3 9 7 4 5 2 1 6
2 6 4 3 9 1 7 8 5
9 8 3 5 1 7 6 4 2
4 2 6 8 3 9 1 5 7
5 7 1 2 6 4 8 9 3
4 3 9 5 6 7 8 2 1
2 5 8 4 1 3 9 7 6
1 7 6 2 8 9 4 5 3
9 8 1 3 7 4 5 6 2
5 6 7 9 2 1 3 4 8
3 2 4 8 5 6 1 9 7
7 4 2 1 3 5 6 8 9
8 1 5 6 9 2 7 3 4
6 9 3 7 4 8 2 1 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 15. janúar,
15. dagur ársins 2011
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 e5 5.
Rb5 d6 6. R1c3 a6 7. Ra3 Be6 8. Bc4 b5 9.
Bd5 Dd7 10. Re2 Rf6 11. Bg5 Bxd5 12. exd5
Re7 13. c4 Re4 14. Bxe7 Bxe7 15. cxb5 O-O
16. O-O f5 17. b6 Bd8 18. Rc4 Hb8 19. f3 Rf6
20. Db3 Bxb6+ 21. Kh1 Bc5 22. Dd1 Db7
23. a3 Hbd8 24. b4 Ba7 25. Ra5 Dxd5 26.
Dxd5+ Rxd5 27. Rc6 Hd7 28. Hfd1 Re3 29.
Hd3 e4 30. Hb3 Bb6 31. a4 Hc7 32. b5 axb5
33. axb5 He8 34. f4 Rg4 35. h3 Rf2+ 36.
Kh2 Rd3 37. Hd1 Hb7 38. g4 fxg4 39. hxg4
Ha8 40. Rc3 Rxf4 41. Kg3 Hf7 42. Hxd6
Staðan kom upp í fyrstu deild Íslands-
móts skákfélaga, fyrri hluti mótsins fór
fram í Rimaskóla sl. okt. Stórmeistarinn
Igor-Aleksandre Nataf (2541) hafði svart
gegn Stefáni Bergssyni (2102). 42… Re2+!
43. Kh4 hvítur hefði haft tapað tafl eftir 43.
Rxe2 Bc7. 43… Bf2+ 44. Kh3 Hf3+ 45.
Kg2 Rf4+ 46. Kf1 Bc5+ og hvítur gafst
upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ekki-rök Hammans. S-Enginn.
Norður
♠D5
♥Á10932
♦84
♣10632
Vestur Austur
♠G6 ♠1098
♥K54 ♥DG87
♦ÁG109632 ♦K7
♣K ♣G975
Suður
♠ÁK7432
♥6
♦D5
♣ÁD84
Suður spilar 4♠.
Bob Hamman opnaði í suður á 1♠
og vestur kom inn á 2♦. Pass og pass
til Hammans, sem sagði 2♠. Norður
lyfti í 3♠ og Hamman í fjóra. Útspil:
♥4.
Hamman hugsaði sem svo: Vestur
kom ekki út með tígul og á því varla
♦Á-K. Austur studdi tígulinn ekki
og á því varla þrílit. Ergó: tígullinn
er 7-2 og austur á háspil. Spaðinn
verður að liggja 3-2 og hjartaútspilið
virðist vera þriðja hæsta frá hónór.
Ef þetta er rétt reiknað lítur út fyrir
að vestur sé með einspil í laufi. En af
hverju kom hann ekki þar út? Auð-
vitað – einspilið er kóngurinn!
Að svo hugsuðu drap Hamman á
♥Á og spilaði laufi á ás. Tók ♠Á og
♠D, spilaði síðan litlu laufi úr borði
að áttunni heima.
Brids er einfalt spil.
Brúðkaup
Katla
Þorsteins-
dóttir og
Benedikt
Sveinsson
gengu í
hjónaband
30. desem-
ber 2010.
Flóðogfjara
15. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.25 3,0 8.51 1,6 14.54 2,9 21.10 1,4 10.56 16.20
Ísafjörður 4.41 1,6 11.07 0,8 17.03 1,5 23.23 0,6 11.28 15.57
Siglufjörður 0.29 0,5 7.04 1,0 13.25 0,4 19.47 0,9 11.12 15.39
Djúpivogur 5.53 0,7 11.52 1,2 18.01 0,6 10.32 15.42
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is