Morgunblaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 26
FRÉTTASKÝRING Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Umsagnir sérfræðinga GAM Management, IFS-greiningar og InDefence-hópsins um nýj- asta Icesave-samninginn vekja áleitnar spurn- ingar um framkvæmd peningastefnu Seðla- bankans á næstu árum. Umsagnirnar eru samhljóða um að nýjasti samningurinn sé skárri en fyrri samningar og að endanlegur kostnaður fyrir ríkissjóð kunni að reynast við- ráðanlegur þótt mikill sé. Sú niðurstaða er hins vegar háð veigamikilli óvissu um verðmæti eigna þrotabús Landsbankans og hvenær greiðslur munu hefjast úr búinu. Jafnframt er gengisáhættan veruleg og get- ur gengislækkun krónunnar á samningstíman- um aukið endanlegan kostnað ríkissjóðs um tugi eða hundruð milljarða króna. Vert er að taka fram að að baki þeim útreikningum liggja ekki óraunhæfar væntingar um gengisþróun sé litið til hins sögulega samhengis. Afnám hafta magnað upp gjaldeyrisáhættuna Forsendur fyrir útreikningum Seðlabank- ans á fjárhagslegum þáttum Icesave-samn- ingsins fela meðal annars í sér að gengi krón- unnar muni styrkjast á samningstímanum og jafnframt vera stöðugt. Seðlabankinn spáir því að gengi krónunnar gagnvart evru verði að meðaltali 150,37 fram til ársins 2016 og núvirt- ur kostnaður vegna samningsins verði 67 millj- arðar. Margir telja þessa forsendu óraunhæfa ef stefnan er að aflétta gjaldeyrishöftum á næstu árum og velta má upp þeirri spurningu hvort afnáminu myndi ekki fylgja ósættanleg gengisáhætta vegna samningsins fyrir ís- lenska hagkerfið. Sennilegt er að afnám hafta leiði til verulegs fjármagnsflæðis frá landinu þótt það væri ekki vegna annars en að fjár- magnseigendur myndu í stórum stíl dreifa áhættu sinni og það myndi svo grafa undan gengi krónunnar. Íslandi þröngur stakkur skorinn í gjaldeyrismálum Á þetta er bent í umsögnum GAM Manage- ment og IFS-greiningar. Fram kemur í skýrslu GAM að Íslandi sé um þessar mundir mjög þröngur stakkur skorinn í gjaldeyrismál- um án erlendrar fjárfestingar og aðgengis að erlendum fjármálamörkuðum á góðum kjör- um. Að sögn sérfræðinga GAM felur þetta meðal annars í sér að mjög erfitt er „að afnema höft á gjaldeyrismarkaði til skemmri tíma nema því aðeins að fullkomið æðruleysi sé fyrir hendi gagnvart þeim möguleika að krónan geti lækkað verulega og síðan flökt töluvert í fram- haldinu“. Sökum áðurnefndrar gengisáhættu væri slíkt afar áhættusamt. Í ljósi þessa bendir GAM á að Seðlabanki Íslands geti stutt við krónuna og haldið henni stöðugri með áfram- haldandi gjaldeyrishöftum. Sérfræðingar IFS taka í sama streng og benda á að „á meðan frjálst flæði fjármagns milli Íslands og annarra landa er ekki til staðar sökum gjaldeyrishaft- anna teljum við ekki líklegt að gengi íslensku krónunnar eigi eftir að veikjast mikið á næstu árum“. Vegna þess hversu miklum sköpum það skiptir að gengi krónunnar haldist stöðugt er þeirri spurningu velt upp í umsögn InDefence hvort samþykkt nýs Icesave-samnings festi gjaldeyrishöftin í sessi næstu árin. Ennfremur verður að hafa í huga að veruleg styrking krónunnar á samningstímanum gæti einnig komið sér illa á samningstímanum þar sem hún myndi draga úr afgangi af utanrík- isviðskiptum og þar með gjaldeyristekjum sem meðal annars yrðu til að standa straum af er- lendri skuldsetningu. Milli steins og sleggju vegna Icesave  Afnám gjaldeyrishafta meðan Icesave-samningur er í gildi myndi magna upp gjaldeyrisáhættu samkomulagsins  Óhagstæð gengisþróun gæti aukið kostnað ríkisins um tugi eða hundruð milljarða 26 FRÉTTIRViðskipti | Athafnalíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2011 Bjarni Ólafsson og Þórður Gunnarsson Félögin sem sérstakur saksóknari hefur nefnt í tengslum við rannsókn sína á markaðsmisnotkun Lands- bankans ber á góma í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis. Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, sem í gær var úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 25. jan- úar vegna rannsóknarinnar, sagði í skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd Al- þingis að nokkur fjöldi viðskiptavina Landsbankans hefði falast eftir því að fá lán hjá bankanum í gegnum dótt- urfélagið í Lúxemborg. Ástæðan var sú að viðskiptavinirnir sem um ræðir litu svo á að bankaleynd væri í Lúx- emborg, „en á það væri ekki hægt að treysta á Íslandi,“ segir orðrétt í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Lánin í Lúxemborg voru þó veitt með ábyrgð móðurfélags Landsbankans á Íslandi. Einnig giltu aðrar reglur um áhættuskuldbindingar dótturfélags gagnvart móðurfélagi í Lúxemborg, en til að mynda í Bretlandi. Keyptu lánasafnið frá Lúx Í aðdraganda bankahrunsins í október 2008 var farið fram á að stór- ar áhættuskuldbindingar yrðu fluttar frá dótturfélagi Landsbankans í Lúx- emborg og heim til Íslands. Sú beiðni kom frá forsvarsmönnum dóttur- félagsins í Lúxemborg, að því er kom fram í máli Sigurjóns í skýrslutöku rannsóknarnefndarinnar. Í kjölfarið voru flutt lán upp á sam- tals 784 milljónir evra, eða tæplega 120 milljarða króna miðað við geng- isskráningu Seðlabanka Íslands í gær. Í fréttatilkynningu frá sérstök- um saksóknara sem send var fjölmiðl- um í gær var meðal annars nefnt að til rannsóknar væru lán til félaganna Hunslow S.A., Pro-Invest Partners, Sigurðar Bollasonar ehf. og Bruce Assets Limited. Lán tveggja fyrst- nefndu félaganna eru meðal þeirra sem voru færð frá dótturfélagi bank- ans í Lúxemborg til Íslands í aðdrag- anda hrunsins. Fram kemur í rannsóknarskýrsl- unni að lán til Hunslow hafi numið alls 13 milljónum evra og lán til Pro-In- vest Partners hafi verið tæplega 41 milljón evra. Ekki er hægt að fullyrða út frá upplýsingum hvort lánin til Sig- urðar Bollasonar ehf. hafi verið í Lúx- emborg eða á Íslandi. Samkvæmt ársreikningi þess félags, sem heitir í dag BSU ehf., fyrir 2008 kemur fram að eigið fé félagsins er neikvætt um tæplega 4,5 milljarða króna. Enda var eina eign félagsins hlutabréf í Lands- bankanum. Eins og áður sagði var Sigurjón Árnason úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 25. janúar. Lögmaður banka- stjórans fyrrverandi, Sigurður G. Guðjónsson, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að þær sakir sem á Sig- urjón væru bornar sneru að hluta að meintum brotum í gegnum aflandsfé- lög sem stofnuð voru utan um kaup- rétti starfsmanna Landsbankans. „Það vill svo til að höfundur þessa kerfis heitir Gunnar Andersen og sit- ur hann nú í Fjármálaeftirlitinu og kærir bankastjórann fyrrverandi fyr- ir þetta brot,“ sagði Sigurður G. í gær. Gunnar Andersen vísaði þessum ásökunum á bug í þegar Morgunblað- ið ræddi við hann í gær. Sigurður segir einnig að forsendur fyrir kröfu um gæsluvarðhald yfir Sigurjóni séu mjög hæpnar. „Sigur- jón var kallaður til yfirheyrslu í júní 2009 vegna rannsóknar á þessum meintu brotum og er svo úrskurðaður í gæsluvarðhald núna svo hann geti ekki spillt sönnunargögnum.“ Sigurð- ur segir að líta megi svo á að verið sé að nota gæsluvarðhald sem refsingu áður en dómur er fallinn í málinu, því erfitt sé að fullyrða að verið sé að verja rannsóknarhagsmuni í málinu. Ívar Guðjónsson, fyrrverandi for- stöðumaður eigin viðskipta hjá Landsbankanum, var einnig úrskurð- aður í gæsluvarðhald í gær, til 21. jan- úar. Lögmaður Ívars er Jóhannes Rúnar Jóhannsson. Svo vill til að Jó- hannes Rúnar situr einnig í skila- nefnd Kaupþings. Í Morgunblaðinu í gær var vitnað til RÚV sem greindi frá því að Steinþór Gunnarsson hefði verið færður fyrir dómara og gæslu- varðhalds krafist yfir honum. Það reyndist rangt. Halldór kemur á sunnudag Sérstakur saksóknari handtók sjö manns í fyrradag og færði til yfir- heyrslu. Halldór J. Kristjánsson, sem var bankastjóri Landsbankans við hlið Sigurjóns, var ekki einn þeirra. Friðjón R. Friðjónsson, lögmaður Halldórs, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að stefnt væri að því að Halldór kæmi til landsins á morgun, sunnudag: „Það hefur verið í hans anda frá upphafi að upplýsa málið eins vel og hægt er.“ Halldór vildi sjálfur ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær. Fluttu mörg hundruð millj- arða eignir frá Lúxemborg  Bankaleynd var eini hvatinn fyrir því að veita lán utan Íslands samkvæmt RNA Morgunblaðið/RAX Fyrir dómara Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi banka- stjóri Landsbankans var í gær, í Héraðsdómi Reykja- víkur, úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar. Skuldbindingar sem óskað var eftir að fluttar yrðu frá Landsbankanum í Lúxemborg til Landsbanka Íslands Lántakandi Upphæð (m. evra) Björgólfur T. Björgólfsson 225,14 Erna Kristjánsdóttir 146,53 Magnús Þorsteinsson 134,08 Páll Þór Magnússon/Sund 65,06 Hafnarhóll ehf. 45,51 Pro-Invest Partners Corp. 40,75 Róbert Wessman 37,21 Sigurður Bollason 33,76 Inmo Alova S.I. 24,59 Björgólfur Guðmundsson 18,51 Hunslow S.A. 13,03 Samtals: 784,14 Heimild: Rannsóknarskýrsla Alþingis Morgunblaðið/RAX Gæsluvarðhald Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðu- maður eigin viðskipta hjá Landsbankanum var úrskurð- aður í gæsluvarðhald til 21. janúar. STUTTAR FRÉTTIR ● Skuldabréfavísitala GAMMA hækk- aði um 0,06 prósent í viðskiptum gær- dagsins og var lokagildi vísitölunnar 200,2 stig. Verðtryggði hluti vísitöl- unnar hækkaði um 0,23 prósent en sá óverðtryggði lækkaði aftur á móti um 0,32 prósent. Velta á skuldabréfamark- aði í gær nam 13,27 milljörðum króna. bjarni@mbl.is Skuldabréf hækkuðu lítillega í gær ● Greining Ís- landsbanka spáir því, að vísitala neysluverðs muni lækka í janúar um 0,7% frá desem- bermánuði. Gangi spáin eftir verður verðbólgan 2,1% í mánuðinum og lækkar úr 2,5% í desember. Yrði það minnsta verðbólga frá árinu 2003. Íslandsbanki segir að lækkunin muni stafa af útsölum og því, að Hagstofan ætli nú að meta útvarpsgjald sem bein- an skatt fremur en notendagjöld. Spá minnstu verðbólgu frá árinu 2003 ● Um það bil 70% sparisjóðakerf- isins er í eigu ís- lenska ríkisins. Þetta kom fram í svörum gesta við- skiptanefndar Al- þingis sem fundaði í gærmorg- un. Guðlaugur Þór Þórðarson situr í nefndinni. Hann segir að fulltrúar Bankasýslu ríkisins hafi sagt að ódýrara hefði verið að bjarga sparisjóðakerfinu eins og gert var, í stað þess að láta það rúlla. Er það einkum vegna innlánatryggingar rík- isins, sem hefur verið í gildi allt frá hruni bankanna haustið 2008. 70% sparisjóðakerf- isins í eigu ríkisins Sparisjóðirnir Komnir til ríksins.                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-., +/0-1/ ++1-0/ 23-/+4 +.-1.2 +5-2+, +23-30 +-0.// +5.-05 +,,-35 ++1-20 +/4-+0 ++1-52 23-/5, +.-5, +5-21, +3-05 +-432. +5.-. +,,-, 2+3-121/ ++1-,+ +/4-,/ ++5-31 23-.01 +.-/3/ +5-0+, +23-5+ +-435 +/3-40 +,,-.0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.