Morgunblaðið - 15.01.2011, Qupperneq 27
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2011
FRÉTTASKÝRING
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Talið er að þúsundir manna séu enn
grafnar undir braki og aur í Brasilíu
eftir að flóð og aurskriður í kjölfarið
lögðu þúsundir heimila í rúst í Serr-
ana-héraði, norður af Rio de Janeiro.
Staðfest er að yfir 500 manns hafi
látist í náttúruhamförunum sem eru
þær mestu í sögu þjóðarinnar.
Lík sem finnast eru sett í svarta
ruslapoka og flutt á vörubílspöllum í
líkhús, sem sumum hverjum var
skotið upp til bráðabirgða þegar
önnur fylltust. Margir hafa safnast
saman við líkhúsin til að bera kennsl
á lík, en þar sem símkerfið liggur
víða niðri og samgöngur eru í lama-
sessi þar sem vegir fóru í sundur
hafa margar fjölskyldur ekki getað
haft samband sín á milli og vita því
ekki hvort ástvinir eru lífs eða liðnir.
Grófu eftir fólki í þrumuveðri
Hamslaus rigning sem hófst að-
faranótt miðvikudags olli flóðunum,
en á einum sólarhring var úrkoman
jafnmikil og að jafnaði fellur á mán-
uði á þessum slóðum. Í bænum Ter-
esopolis vöknuðu íbúar um miðja
nótt við að fjallshlíðin ofan við bæinn
féll og lagði heilt hverfi í rúst. Raf-
magnslínur slitnuðu og reiddu íbúar
sig á ljósblossa frá eldingum til að
leita að nágrönnum sínum og grafa
með berum höndum í rústunum.
Aurskriður og flóð eru nánast
árlegir fylgifiskar regntímabilsins í
suðausturhluta Brasilíu en aldrei
með jafnhörmulegum afleiðingum og
nú. Það má að hluta rekja til þétt-
leika byggðarinnar, sem hefur þre-
faldast á síðustu 30 árum. Húsin sem
standa í bröttum fjallshlíðum eru
mörg illa byggð og á veikum grunni.
Ekkert deiliskipulag er á svæðinu og
engir reglur um gæði bygginga.
Sumar byggðir eru algjörlega
einangraðar og þurfa björgunar-
menn að fara um bratta stíga í skógi
vöxnum hlíðum til að ná til þeirra.
Yfirvöld hafa komið upp neyðar-
sjúkraskýlum en þau anna engan
veginn þörfum hundraða slasaðra.
Óttast er að tala látinna muni
enn fara hækkandi eftir því sem
fleiri finnast í rústunum. Þá virðist
hörmungunum hvergi nærri að linna
því útlit er fyrir áframhaldandi úr-
hellisrigningu um helgina.
Mestu náttúruham-
farir í sögu Brasilíu
527 látnir og þúsunda saknað Rigningin heldur áfram
Reuters
Leðja Aurskriður tóku heilu hverfin með sér og lögðu heimili fólks í rúst.
Árið 2009 var mikið hamfaraár
um allan heim og afleiðingarnar
eru þær að matvælaverð heims-
ins er nú í hæstu hæðum. Það
sem af er ári 2011 hafa hamfar-
irnar haldið áfram með flóð-
unum í Brasilíu, Ástralíu og Sri
Lanka auk óvenjuharðs veturs í
Bandaríkjunum. Óttast er að
þetta geti leitt til frekari verð-
hækkana og matvælaskorts.
Matvælaverð
fer hækkandi
HAMFARIR VÍÐA UM HEIM
Dönsku tvíburarnir sem nú eru vikugamlir sváfu vært í
örmum foreldra sinna, Frederiks krónprins og Mary
krónprinsessu, frammi fyrir hafsjó fréttaljósmyndara á
Rigshospitalet í gær. Prinsinn og prinsessan eru nú
komin heim til eldri systkina sinna tveggja og konungs-
fjölskyldan er alsæl með nýjustu erfingjana.
Prinsinn og prinsessan nýfæddu komin heim í Amalíuborgarhöll
Reuters
Allra augu á konunglegu tvíburunum
Formleg rannsókn er hafin á hendur
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, vegna gruns um að hann hafi
greitt fyrir kynlíf með 17 ára gamalli
stúlku. Sjálfur er hann 75 ára.
Að sögn Guardian er Berlusconi
einnig grunaður um að hafa misnot-
að völd sín með því að þrýsta á lög-
reglu að láta stúlkuna lausa úr varð-
haldi eftir að hún hafði verið
handtekin sökuð
um þjófnað.
Hann er sagður
hafa reynt að leyna
því að hann væri
viðskiptavinur
vændiskonu undir
lögaldri og viljað
koma í veg fyrir að út spyrðist að
hann hefði haldið svallveislur á
heimili sínu. Ráðherrann mun hafa
haldið því fram við lögreglu að stúlk-
an væri ættingi forseta Egypta-
lands, Hosni Mubarak. Stúlkan er
frá Marokkó og gengur undir nafn-
inu Ruby.
Fram kemur í ítölskum fjölmiðl-
um að einnig sé verið að rannsaka
hvort stúlkan hafi verið seld nauðug
í vændi. una@mbl.is
Berlusconi í vandræðum
Sakaður um að greiða stúlku undir lögaldri fyrir vændi
Silvio Berlusconi
RAFIÐNAÐARSAMBANDS
ÍSLANDS
Fundaferð í janúar 2011
Akureyri Hótel KEA þri. 18. janúar kl. 12.00
Reykjavík Grand Hótel mið. 19. janúar kl.12.00
Egilsstaðir Hótel Hérað mið. 19. janúar kl.19.30
Selfoss Hótel Selfoss fös. 21. janúar kl. 12.00
Reykjanesbær Flughótel mán. 24. janúar kl.12.00
Akranes Gamla Kaupfélagið þri. 25. janúar kl. 17.00
Sauðárkrókur Kaffi Krókur fim. 27. janúar kl. 12.00
Hádegisverður
Félagar,
fjölmennum,
sýnum samstöðu
og stöndum vörð
um okkar kjör!
•Staðan
•Kröfurnar
•Horfurnar
Almennir fundir um
stöðuna í kjaramálum
Stöndum
saman
RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS
Stórhöfða 31. Sími 580-5200
www.rafis.is