Morgunblaðið - 15.01.2011, Qupperneq 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2011
✝ Þóra Guðrúnfæddist á Vatns-
hóli í Línakradal 2.
mars 1924. Hún lést á
líknardeild LSP,
Landakoti, 4. janúar
2011.
Foreldrar hennar
voru Jósep Jóhann-
esson, f. 1886, d.
1961, og Þóra Guðrún
Jóhannsdóttir, f.
1889, d. 1973.
Systkini Þóru Guð-
rúnar eru Jóhannes,
f. 1911, d. 1995, Ingi-
björg, f. 1912, d. 2008, Katrín, f.
1914, d. 1994, Jóhann Hjalti, f.
1916, d. 2007, Zóphonías, f.1920, d.
2006, Dýrunn, f. 1930 og Að-
alsteinn, f. 1930, d. 2006.
Þóra Guðrún giftist 1946 Einari
Jónssyni, f. 3. apr. 1918, d. 3. feb.
2002, bónda á Tannstaðabakka í V-
Hún. Foreldrar Einars voru Jón
Einarsson, f. 1879, d. 1961 og Jó-
hanna Þórdís Jónsdóttir, f. 1881, d.
1957. Börn Þóru Guðrúnar og Ein-
ars eru: 1) Einar Gunnar Jónsson
(fóstursonur), f. 1950, d. 1993. Eig-
inkona hans var Anna Guðný Hall-
dórsdóttir, f. 1953. Börn þeirra eru:
a) Sigvarður Örn, f. 1972, maki
Emelia D. V. Maleeraq Jakobsen, f.
Rúnar, f. 1982, samb.k. Katrín
Hauksdóttir, f. 1982. b) Eyþór
Helgi, f. 1983, samb.k. Guðrún B.
Halldórsdóttir, f. 1982. 6) Jóhann
Almar, f. 1964, maki Rut Kristjáns-
dóttir, f. 1965, börn þeirra eru: a)
Andrea Eir, f. 1995 og b) Oliver
Ísak, f. 1998. 7)Þorsteinn, f. 1966,
maki Ingibjörg Hreiðarsdóttir, f.
1964, börn þeirra eru: a) Emilía
Agnes, f. 1992 og b) Egill Gauti, f.
1997. Barnabarnabörnin eru orðin
13.
Þóra Guðrún ólst upp hjá for-
eldrum sínum. Hún stundaði nám í
Héraðssk. Reykholti 1942-1943, í
Samvinnuskólanum Reykjavík
1943-1945. Húsmóðir á Tann-
staðabakka 1946-1984. Þóra Guð-
rún kenndi við Barnaskóla Staðar-
hrepps í tvo vetur og sat í
skólanefnd þar 1954-1978. Var í
stjórn Kvenfélags Staðarhrepps í
um 30 ár og formaður um skeið.
Stjórnarstörf hjá Kvennabandinu í
V.-Hún 1973-1979 og formaður
þess 1984. Starfaði í kirkjukór
Staðarsóknar í 20 ár. Sá um
Byggðasafnið að Reykjum ásamt
Einari sumrin 1985-1987. Flutti til
Reykjavíkur 1984. Starfaði um
skeið við þvottahús Landakotsspít-
ala. Þóra Guðrún var virk í fé-
lagsstörfum, söng með Kvöldvöku-
kórnum, seinna Söngfuglum á
Vesturgötu, dansaði með FEB í
Stangarhyl, ásamt því að fara í
sumarferðir með vinum.
Útför Þóru Guðrúnar fer fram í
Staðarkirkju í dag, 15. janúar 2011,
og hefst athöfnin kl. 14.
1982, b) Halldór Val-
ur, f. 1973, c)
Hrafnhildur Unnur, f.
1977, maki Garðar V.
Hallfreðsson, f. 1977,
d) Drífa Dröfn, f.
1979, maki Ævar V.
Ævarsson, f. 1983, e)
Einar Már, f. 1979,
maki Lára Guð-
mundsdóttir, f. 1984.
2) Jón, f. 1953, maki
Guðrún Þorsteins-
dóttir, f. 1956. Synir
Jóns eru: a) Björgvin
Jóhann, f. 1974 (m.
Jónína Jóhannsdóttir), samb.k.
Margrét A. Atladóttir, f. 1980. b)
Einar f. 1979, maki Ósk Ólafsdóttir
f. 1981. 3) Skúli, f. 1955, maki Ólöf
Ólafsdóttir, f. 1956, börn þeirra
eru: a) Laufey Kristín, f. 1979, maki
Indriði Einarsson f. 1979, b) Eyrún
Ösp, f. 1982, samb.m. Bjarki F.
Karlsson, f. 1980, c) Guðrún Eik, f.
1988, samb.m. Óskar M. Jónsson, f.
1986, d) Ólafur Einar, f. 1989. 4)
Þórir Jósep, f. 1957, maki Unnur
Ragnarsdóttir, f. 1964, börn þeirra
eru: a) Sara Karen, f. 1988, b) Þórir
Raggi, f. 1990, c) Einar Darri, f.
1996. 5) Svanborg Guðrún, f. 1959,
maki Úlfar Rúnar Reynisson, f.
1956, synir þeirra eru: a) Sindri
Í dag kveðjum við Guðrúnu Jóseps-
dóttur eða „ömmu Dúu“ eins og við
kölluðum hana alltaf. Margs er að
minnast og mikið að þakka. Ég fékk
að njóta samvista hennar í 21 ár sem
tengdadóttir hennar og á ljúfar minn-
ingar um góðvild hennar og hlýju í
minn garð.
Fjölskyldan skipaði stóran sess hjá
Dúu og barnabörnin hennar voru
hennar stolt og yndi. Aldurinn var svo
afstæður þegar kom að Dúu, hún var
alveg ótrúlega dugleg kona og heilsu-
hraust og vílaði fátt fyrir sér. Hún var
mikil félagsvera og skemmti sér best í
hópi fólks. Hún sótti vikulega dans
með öldruðum, var í kór og ferðaðist á
hverju sumri síðustu árin með öldr-
uðum um landið þvert og endilangt.
Hún var ljóðelsk og vel lesin og mundi
allt. Þegar Dúa greindist með krabba-
mein í sumar kom æðruleysi hennar
vel í ljós og í einu spjalli okkar sagði
hún: „Inga mín, maður verður að
deyja úr einhverju og þetta er ábyggi-
lega ekkert verra en hvað annað.“
Hún hræddist ekki dauðann og vegna
starfa minna spurði hún mig oft hvað
biði hennar með þennan sjúkdóm og
vildi að ég væri hreinskilin við sig. Ég
spurði hana eitt sinn í spjalli okkar
hvort hún kviði því að kveðja og hún
svaraði á þann hátt sem lýsir henni
vel: „Nei, ég er sátt við Guð og menn
og allt er í góðu lagi hjá börnunum
mínum og barnabörnum svo ég hef
engu að kvíða.“ Það er erfitt að sjá
fyrir sér tímann framundan án henn-
ar, hún var höfuð fjölskyldunnar,
tengdi okkur öll saman og margir
fastir punktar í tilverunni henni
tengdir sem verða nú minning ein, en
eins og sonur minn komst að orði þá
er amma Dúa komin í fangið á Einari
afa aftur og það er ljúfsár tilhugsun.
Ég vil færa öllu því frábæra heil-
brigðisstarfsfólki, sem annaðist hana
með hlýju og virðingu frá upphafi
veikindanna og allt til loka, kærar
þakkir og votta öllum þeim sem eiga
um sárt að binda vegna fráfalls Dúu
mína samúð.
Við kveðjum hljóð, í hjörtum harmur
svíður,
þó hugir fagni þinni lausnarstund,
en til oss andar blærinn Drottins blíð-
ur
og ber oss von um hlýjan endurfund.
Er skyggnst er aftur, blíðu birtast árin,
er blessun þín oss vafði heit og skær,
því verður hugum hlýtt í gegnum tárin
og hver þín minning ljúf og hjartakær.
( G.Þ.)
Ég þakka þér, Dúa, samfylgdina og
allar yndislegu stundirnar sem við
áttum með þér og óska þér Guðs
blessunar.
Þín tengdadóttir,
Ingibjörg Hreiðarsdóttir.
Elsku amma mín.
Þakka þér fyrir blíða brosið þitt og
öll faðmlögin.
Þakka þér fyrir að vera alltaf svo
áhugasöm um mitt líf.
Þakka þér fyrir öll köldu mjólkurg-
lösin og kleinurnar.
Þakka þér fyrir að vera alltaf svo
hlý og góð við mig.
Langt úr fjarlægð, elsku amma mín,
ómar hinzta kveðja nú til þín.
En allt hið góða, er ég hlaut hjá þér,
ég allar stundir geymi í hjarta mér.
(Höf. ók.)
Guð blessi þig og varðveiti, elsku
amma mín.
Þinn
Egill Gauti.
Elsku amma er farin. Já, það er
undarlegt að skrifa þessi fjögur orð
niður og hugsa sér að ekki verði farið í
fleiri sunnudagsheimsóknir til ömmu
Dúu í Stóragerðinu. Amma var ein af
yndislegustu manneskjum sem ég hef
kynnst. Hún var hjartahrein, hlý, tal-
aði aldrei illa um neinn og í raun besta
fyrirmynd sem ömmubarn getur átt.
Amma talaði alltaf beint frá hjartanu
og hafði alltaf eitthvað gott að segja
um allt og alla.
Í mínum augum var amma fullkom-
in og hennar verður sárt saknað.
Amma Dúa og Einar afi eru nú
loksins saman á ný og gæta okkar
sem eftir lifum.
Við kveðjum þig kæra amma
með kinnar votar af tárum
á ást þinni enginn vafi
til okkar, við gæfu þá bárum.
Horfin er hönd þín sem leiddi
á hamingju- og gleðifundum,
ástúð er sorgunum eyddi
athvarf á reynslustundum.
Margt er í minninga heimi
mun þar ljósið þitt skína,
englar hjá guði þig geymi
við geymum svo minningu þína.
(Höf. ók.)
Guð og englarnir vaki yfir þér,
elsku amma.
Þín
Emilía.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast ömmu minnar.
Hún amma Dúa var falleg, ljúf og
frábær kona. Það sem einkenndi hana
var hlýleiki, glaðværð og einstök gest-
ristni. Hún tókst á við lífið með reisn,
var sjálfstæð og ákveðin, naut lífsins
og auðgaði það með tónlist, ljóðum,
söng og dansi. Hún elskaði landið
okkar og fjölskylduna og fólkið sitt
mikið.
Allar ljúfu samverustundirnar við
eldhúsborðið í Stóragerðinu eru þær
minningar sem sitja hvað fastast.
Þegar ég sé ömmu Dúu fyrir mér þá
situr hún þar ennþá, glöð og brosandi.
Ég man ennþá þegar hún kenndi mér
símanúmerið sitt. Ég man þegar hún
gaf mér djús í eldhúsinu í sveitinni.
Ég man þegar við fórum saman á Ár-
bæjarsafnið á harmonikkutónleikana.
Ég man eftir henni og afa sitja í eld-
húsinu, borða og ræða saman um
daginn og veginn. Ég man síðasta
skiptið sem ég heimsótti hana og síð-
asta skiptið sem ég talaði við hana í
símann. Ég man öll skiptin sem mér
leið eins og ég væri komin heim til
mín þegar ég kyssti hana hæ. Ég man
og ég á aldrei eftir að gleyma.
Svo varð hún amma mín veik. Hún
tókst á við veikindin með æðruleysi
og reisn. Hún var ánægð með lífs-
hlaup sitt, sátt við lífið og tilveruna.
Núna er hún á betri stað, umvafin
ástvinum og hjá honum afa, ekki
lengur veik og þreytt. Með staðfestu
sinni, lífsgleði, nægjusemi og kær-
leika kenndi hún okkur mikið um lífið.
Hún var mér mikil fyrirmynd og ég
er svo þakklát fyrir allar minningarn-
ar.
Þín er sárt saknað, elsku amma
mín.
Laufey.
Elsku Guðrún mín.
Nú þegar leiðir skilur langar mig
að þakka þér góðu kynnin. Það er lán
okkar í lífinu að kynnast öllu því góða
fólki sem á leið með okkur langa eða
skamma stund. Þú varst ein af þeim.
Ég var svo lánsöm þegar þú komst í
kórinn okkar Söngfuglana að við sett-
umst hlið við hlið. Þú last nótur og við
vorum báðar í altrödd. Með þinni
skæru rödd lærði ég altið. Þetta leiddi
til þess að ég fór að venja komur mín-
ar í Stóragerðið. Ef mig vantaði nótu
pikkaðir þú á orgelið og síðan stóð
ekki á kaffisopanum og alltaf nýbakað
bakkelsi með. Við spjölluðum og hlóg-
um mikið.
Við áttum líkan bakgrunn, báðar
sveitastelpur. Ég sé þig fyrir mér í
sveitinni með hálft fótboltalið af
strákum og eina dóttur. Það þurfti að
taka til hendi. Ég mun sakna stunda
með þér í Stóragerðinu, en þakka fyr-
ir þær sem við áttum.
Vertu kært kvödd vinkona mín og
Guð blessi þig á nýjum leiðum. Af-
komendum þínum bið ég blessunar.
Það er gott að minnast mætrar móð-
ur.
Þín
Brandís Steingrímsdóttir.
Þóra Guðrún
Jósepsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Guðrún okkar Jósepsdóttir
var ætíð mætt hjá okkur með
bros á vör, kunni öll lög sem
ljóð, einkar söngvin og
skemmtileg, minnug og fróð.
Söngvökufólk þakkar sam-
fylgdina, saknar hennar hlýju
nærveru og sendir einlægar
samúðarkveðjur til hennar
fólks.
Helgi Seljan
og söngvökuhópurinn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
BALDVIN RÓBERT ÞORSTEINSSON,
Þorláksgeisla 9,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 6. janúar.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fjölskyldan vill þakka heimaþjónustunni Karitas
fyrir ómetanlegan stuðning og kærleika á erfiðum tímum.
Arabella Eymundsdóttir,
Linda Baldvinsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir og afi,
ÁSTVALDUR GUÐMUNDSSON,
sem lést miðvikudaginn 12. janúar, verður jarðsettur fimmtudaginn
20. janúar í Þýskalandi.
Rakel,
Guðbjörg,
Thelma og Anton,
Þyri,
Gefion,
Júlíana, Markus,
Jannis og Ole.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞORBERGUR GUÐMUNDSSON
frá Raufarhöfn,
er látinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Málfríður Anna Guðmundsdóttir,
Eiríkur Guðmundsson, Björg Eiríksdóttir,
Hrefna Friðriksdóttir
og frændsystkin.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FREYR GESTSSON,
Sunnuhlíð 23f,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn
7. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum samúðarkveðjur og starfsfólki
lyflækningadeildar fyrir hlýhug og góða umönnun.
Sigurður Hólm Freysson, Halla Sigurþórsdóttir,
Þórhildur Freysdóttir,
Ketill Hólm Freysson, Elín Una Friðfinnsdóttir,
Gestur Valdimar Hólm Freysson, Björk Viðarsdóttir,
Birkir Hólm Finndal Freysson, Kristín Pálsdóttir,
Borghildur Freysdóttir, Árni Arnsteinsson,
Hólmfríður Freysdóttir, Máni Guðmundsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
VIGDÍS VALGERÐUR EIRÍKSDÓTTIR,
lést þriðjudaginn 11. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
21. janúar kl. 15.00.
Ásta Guðrún Sigurðardóttir, Árni Ísaksson,
Matthías Sigurðsson, Selma Skúladóttir,
Eiríkur Sigurðsson, Helga Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.