Morgunblaðið - 15.01.2011, Page 51

Morgunblaðið - 15.01.2011, Page 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2011 Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson hefur látið nokkuð að sér kveða seinustu misseri sem söngkona, m.a. tæklað lög Tom Waits á plötu. Nú berast fréttir af því að Johansson muni taka lagið fyrir heimildarmynd um ein- hverfu, Wretches & Jabbers, og koma fleiri þekktir listamenn að því verkefni: Norah Jones, Carly Simon, Ben Harper, Bob Weir, Steven Stills og Vincent Gallo. Plata með tónlist úr myndinni verður gefin út á iTunes. Tónlist- ina við myndina semur J. Ralph en í myndinni segir af tveimur mönn- um sem ferðast um heiminn með það að markmiði að breyta við- horfi fólks til einhverfu. Syngur í heimildarmynd Reuters Listakona Scarlett Johansson virð- ist margt til lista lagt. Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Þetta fyrirkomulag, að maður fái tækifæri til að heyra lögin áður en þau verða frumflutt í Sjónvarpi, er snilld. Hvort heldur í útvarpi eða á netinu fær maður tækifæri til að melta lögin í dágóðan tíma og spennan er alla jafna meiri fyrir vikið á undanúrslitakvöldinu. Munu mínir menn standa sig eða fara þeir út af laginu? Næstu þrjá laugardaga verða sem sagt fimmtán lög leikin og komast sex áfram í úrslitaþátt sem fram fer 12. febrúar. En hætt- um nú þessu röfli og kíkjum á þetta … Ástin mín eina Höfundur: Arnar Ástráðsson. Flytjandi: Erna Hrönn Ólafsdóttir. Erkiballaða hér á ferðinni. Fiðlur og læti. Erna Hrönn er ein af okkar bestu söngkonum og hún fer langt með lagið sem er því miður ekkert sérstaklega burðugt. Nær einhvern veginn ekki því dramatíska flugi sem það hótar í blábyrjuninni, er full línulegt og til- þrifalítið. Ef ég hefði vængi Flytjandi: Haraldur Reynisson. Höfundur: Haraldur Reynisson. Haraldur Reynisson, eða Halli Reynis, er einn af okkar bestu söngvaskáldum en hann hefur ekki verið sérstaklega áberandi út á við hin síðustu ár. Segja má að Halli sé af Bubba skólanum og þessi söngvaskálda/ trúbadúrataug þræðir sig um þetta litla og snotra lag. Fínasta smíð í raun, einfalt og lætur lítið yfir sér og það er einhver heið- arleiki í því sem heillar. Viðlagið er þá giska sterkt og vinnur vel á með tímanum, flutning- urinn er fyrirtak og söngur Halla ástríðu- fullur. Eina spurningin er: er það nógu Evr- óvisjónlegt? Elísabet Flytjandi: Pétur Örn Guðmundsson. Höfundur: Pétur Örn Guðmundsson. Án efa einkennilegasta lagið hér – en um leið það besta. Eins og með lag Halla lætur það lítið yfir sér en vinnur svo á með hverri spilun, læðist eiginlega aftan að þér. Pétur syngur lagið lágvært og viðkvæmnislega og það er einhver áttunda áratugar tónn, jafnvel Geimsteinstónn (?) sem er hrífandi. Undir restina lyftist lagið svo upp og verður drama- tískara, án þess þó að það sé yfirkeyrt. Text- inn er nett kersknislegur líka og það er spurn- ing hvað Pétur nær langt á þessum óræða sjarma. Huldumey Flytjandi: Hanna Guðný Hitchon. Höfundar: Ragnar Hermannsson (lag) og Anna Þóra Jónsdóttir (texti). Evróvisjón er heimahöfn kraftballaðanna og þessi smíð er af þeim meiði. Lagið er ríg- bundið á klafa erlendra fyrirmynda og býr yf- ir litlum sérkennum. Það veldur því að það fer inn um annað og út um hitt. Hanna syngur af dágóðum krafti en á það til að fara yfir strikið í túlkuninni, setur of mikinn sprengikraft í kafla þar sem það á ekki við. Lagið þitt Höfundur: Ingvi Þór Kormáksson. Flytjendur: Böddi og JJ Soul Band. Hinn ágæti lagasmiður og JJ Soul Band- meðlimur Ingvi Þór Kormáksson fer hér Hjálmaleiðina, en hér á ferðinni þægilega dill- andi reggípopp. Böddi flytur það af mikilli list, hann er hörkusöngvari pilturinn. Lagið flæðir höfugt áfram, er þægilegt og viðlagið er sterkt. Gæti svei mér þá farið langt ef þannig liggur á þjóðinni. „Þetta er lagið mitt, ég legg það í þinn dóm,“ eins og segir í textanum. „Þú veist að ég get verið lúði …“  Hin sívinsæla söngvakeppni Sjónvarpsins hefst í kvöld  Í greinarstúf þessum tekur einn af menn- ingarblaðamönnum blaðsins sig til og rýnir í lögin fimm sem ríða á vaðið Ballaða Erna Hrönn Ólafsdóttir syngur ballöðu af mikilli list. Söngvaskáld Halli Reynis nýtir sér andagift trúbadúrsins. Óræður Pétur „Jesú“ stráir sér- kennilegum sjarma yfir lagið sitt. Kraftur Hanna Guðný syngur af elju mikilli og áræðni. Reggí Böddi siglir af öryggi í gegnum ljúft reggípopp. LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum SAW 3D Sýnd kl. 8 og 10 ótextuð THE TOURIST Sýnd kl. 8 og 10:10 ALFA OG ÓMEGA Í 3D Sýnd kl. 2 (950kr), 4 og 6 ísl. tal ALFA OG ÓMEGA Í 2D Sýnd kl. 2(700kr) GULLIVER’S TRAVELS 3D Sýnd kl. 4 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D Forsýnd kl. 6 ísl. tal LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 1:50(700kr), 4, 6 og 8 DEVIL Sýnd kl. 10 GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐUTilboð í bíó FORSÝNING SÝND Í 3D HROTTALEG SPENNA Í ÞVÍVÍDD 3D GLERAUGU SELD SÉR 3D GLERAUGU SELD SÉR 3D GLERAUGU SELD SÉR -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Í 3-D OG 2-D MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 3-D -H.S, MBL-K.G, FBL SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ BURLESQUE kl. 5.50 - 8 - 10.10 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 2 (900kr.) - 4 THE TOURIST kl. 10 GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 5.50 - 8 LITTLE FOCKERS kl. 2 (600kr.) L L 12 L 12 Nánar á Miði.is BURLESQUE kl. 3.10 - 5.20 - 8 - 10.35 BURLESQUE LÚXUS kl. 2.40 - 5.20 - 8 - 10.35 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 1 (950kr.) - 3.10 THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20 GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 1 (950) 3.20 - 5.50 - 8 - 10.10 LITTLE FOCKERS Kl. 8 - 10.20 GAURAGANGUR KL. 5.50 MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 1 (950kr.) NARNIA 3 3D KL. 1 (950kr.) - 3.30 L L L 12 L 12 7 L 7 BURLESQUE kl. 8 - 10.30 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 2 (950kr.)* - 4 - 6 THE TOURIST KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 GULLIVER´S TRAVELS 3D KL. 1.30 (950kr.)* - 3.40 - 5.50 DEVIL KL. 10.20 GAURAGANGUR KL. 1.30* - 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 NARNIA 3 2D KL. 8 L L 12 L 16 7 7 HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR * Aðeins sunnudag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.