Morgunblaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2011
Prúðbúnir mótmælendur Þessir snotru hundar voru vel til hafðir og prúðir þegar þeir tóku þátt í mótmælum við Stjórnarráðið. Þeir ráku þó upp stór augu og virtust gáttaðir á mannfólkinu.
Ómar
Í rúm 93 ár hefur Viðskiptaráð Íslands tek-
ið virkan þátt í umræðu um íslenskt atvinnu-
líf og þá umgjörð sem því er búin. Skýr
grunngildi, sem meitluð eru í lög ráðsins,
hafa vísað veginn. Þau fela í sér framtíðarsýn
um öflugt atvinnulíf byggt á framtaki ein-
staklinga, lágmörkun ríkisrekstrar, kröftug-
um markaðsbúskap og alþjóðlegri samkeppn-
ishæfni. Þessi gildi leggja grunn að
verðmætasköpun atvinnulífsins og góðum lífs-
kjörum á Íslandi.
Áherslur í starfi
Í langri sögu Viðskiptaráðs hafa störf þess
endurspeglað þessi grundvallarsjónarmið.
Frá upphafi og fram undir lok síðustu aldar
var mælt fyrir afnámi þeirra hafta sem hér
ríktu á mörgum sviðum atvinnulífsins, t.d. á
innflutningi og gjaldeyrisviðskiptum. Jafn-
framt var barist fyrir opnun hagkerfisins,
aukinni fjölbreytni atvinnulífs, einföldun
skattkerfis, alþjóðavæðingu og minni þátt-
töku ríkisins í atvinnurekstri. Á þessum árum
var í raun tekist á um tilverurétt atvinnulífs
sem drifið yrði áfram af krafti framtakssamra
einstaklinga, að sumu leyti ekki ólíkt því sem
aftur virðist þörf á nú.
Samhliða því að tala fyrir bættri umgjörð
atvinnulífs lét Viðskiptaráð sig varða innviði
þess. Þar má nefna almenna starfshætti, mót-
un agaðra vinnubragða og bætta lagalega
umgjörð er laut að samningagerð, samkeppni,
félagaformum og reglum um gjaldþrot. Bætt
lánaviðskipti og skilvirkari fjármálamarkaðir
voru einnig ofarlega á stefnuskrá. Síðast en
ekki síst hefur Viðskiptaráð frá stofnun lagt
áherslu á mikilvægi menntunar sem einnar
grunnforsendu öflugs atvinnulífs og sýnt þá
sannfæringu í verki með stuðningi við rekstur
menntastofnana, bæði á framhalds- og há-
skólastigi. Að baki öllu starfi Viðskiptaráðs
liggur sú hugsun að athafnafrelsi atvinnulífs,
sem ráðið kallaði eftir í starfi sínu, væri
grundvallað á heiðarlegum og heilbrigðum
viðskiptaháttum.
Vatnaskil í lok síðustu aldar
Undir lok síðustu aldar hafði margt færst
til betri vegar í íslensku samfélagi og við-
skiptaumhverfi. Hagkerfið opnaðist fyrir er-
lendum áhrifum og tengdist margfalt stærri
markaði í Evrópu. Virk kauphöll komst á
laggirnar, fyrirtæki hurfu úr forsjá hins op-
inbera, skattkerfið var orðið samkeppnishæft
við það sem best gerðist, erlendir fjármagns-
markaðir opnuðust og háskólaumhverfið tók
stakkaskiptum. Í þessu umhverfi breyttust
áherslur í starfi Viðskiptaráðs og sérstaklega
var horft til þeirra tækifæra sem nýtt og
breytt umhverfi atvinnulífs skapaði.
Gagnrýni á störf Viðskiptaráðs
Margir samverkandi þættir stuðluðu að of-
vexti íslenska fjármálakerfisins sem endaði
með ósköpum á haustmánuðum 2008. Í því
hugarfari sem ráðandi var í aðdraganda
bankahrunsins er ljóst að margir tóku gagn-
rýnislítið þátt í að hér varð til kerfi sem ekki
tókst að vinda ofan af nema með þeim alvar-
legu afleiðingum sem nú eru öllum kunnar.
Viðskiptaráð Íslands hefur ekki farið varhluta
af gagnrýni á störf þess og áhrif á því tíma-
bili. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
er ágæt grein gerð fyrir þessari gagnrýni
sem snýr að nokkrum meginatiðum: a)
Skýrslum um fjármálakerfið frá árunum
2006 og 2007, b) meintum áhrifum á
ákvarðanir löggjafans, c) áherslu á sjálf-
sprottnar reglur atvinnulífs, d) ofmetnaði í
útgáfustarfsemi og e) stuðningi við innihalds-
lítinn ímyndaráróður.
Fjallað um gagnrýni
í nýrri útgáfu
Ítarlega er fjallað um þessi atriði í nýrri
Skoðun, sem birt er á heimasíðu ráðsins und-
ir yfirskriftinni Ábyrgð Viðskiptaráðs. Þar er
tekið undir að ofangreind gagnrýni hafi því
miður of oft átt við rök að styðjast, þó að í
einhverjum tilvikum hafi hún byggst á mis-
skilningi. Heilt yfir má segja að nýju um-
hverfi atvinnulífs og auknum hraða hefðu átt
að fylgja meiri kröfur um gagnsæi, góða
stjórnarhætti og samfélagslega ábyrgð
stjórnenda. Hér hefði Viðskiptaráð átt að
beita sér af meiri ákveðni, í samræmi við
fyrri störf.
Uppgjör nýtt til umbóta
Mikilvægt er að í starfi samtaka á borð við
Viðskiptaráð fari fram heilbrigð og hrein-
skiptin skoðanaskipti og því fagnar ráðið mál-
efnanlegri og rökstuddri gagnrýni á störf
þess. Frá hruni hefur slík gagnrýni, sem
einnig hefur verið sterk innan ráðsins, verið
nýtt til töluverðrar endurskoðunar á störfum
þess. Má þar m.a. nefna: a) Nýjar og mun
viðameiri leiðbeiningar um stjórnarhætti fyr-
irtækja og væntanlegar úttektir á því sviði, b)
breytt fyrirkomulag stjórnarkjörs, þar sem
vægi minni og meðalstórra fyrirtækja er auk-
ið, c) skipan þriggja nýrra stjórnarnefnda,
sem fjalla um sjálfbærni atvinnulífs, efna-
hagsmál og nýsköpun, d) aukna aðkomu
stjórnar að innra starfi, t.a.m. vinnulagi við
útgáfu og e) umbótaþing Viðskiptaráðs sem
haldið var vorið 2010.
Stjórn Viðskiptaráðs mun halda áfram á
braut umbóta í starfi ráðsins. Mestu skiptir
þó að Viðskiptaráð stuðli að því að íslenskt
atvinnulíf tileinki sér til frambúðar stjórn-
arhætti eins og þeir verða bestir, samhliða
því sem tækifæri til sóknar verði nýtt á
ábyrgan hátt. Þannig axla Viðskiptaráð og at-
vinnulífið í heild ábyrgð á þeim mistökum
sem urðu í aðdraganda hruns bankanna.
Kapp er best með forsjá
Reynslan sýnir að í uppbyggingu atvinnu-
starfsemi er kapp best með forsjá. Að því
sögðu þá er einnig eðlilegt að draga lærdóm
af reynslu Íslands af höftum og þeirri víð-
tæku opinberu íhlutun sem hér var áður við
líði. Mikilvægt er að viðbrögð við efnahags-
hruninu feli ekki í sér afturhvarf til þess
tíma. Vel skipulagður, agaður markaðs-
búskapur á grunni athafna framtakssamra
einstaklinga mun varða leið út úr núverandi
efnahagskreppu. Með bættum innviðum at-
vinnulífs mun slík áhersla skapa tækifæri til
verðmætasköpunar og búa Íslendingum
áfram lífskjör í fremstu röð.
Að þessu munu störf Viðskiptaráðs miða
næstu misserin og verða afurðir þeirrar
vinnu m.a. kynntar á Viðskiptaþingi í febrúar.
Málefnastarf Viðskiptaráðs er hins vegar ekki
óumdeilt og er ekki til þess ætlast. Stjórn og
aðstandendur Viðskiptaráðs leggja engu að
síður ríka áherslu á að sem fyrr sé hlutverk
ráðsins að stuðla að bættum lífskjörum á Ís-
landi með dyggri samvinnu atvinnulífs og
heimila. Með þeirri samvinnu nýtast þau fjöl-
mörgu tækifæri þjóðarinnar sem byggjast á
hugviti, reynslu og auðlindum landsins. Í því
liggja lífsgæði til framtíðar.
Ábyrgð Viðskiptaráðs
Eftir Tómas Má Sigurðsson og
Eggert Benedikt Guðmundsson » Vel skipulagður, agaðurmarkaðsbúskapur á
grunni athafna framtaks-
samra einstaklinga mun
varða leið út úr núverandi
efnahagskreppu.
Eggert Benedikt
Guðmundsson
Tómas Már
Sigurðsson
Tómas Már er formaður Við-
skiptaráðs Íslands og
Eggert Benedikt varaformaður.