Morgunblaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2011
✝ Jón M. Bjarnasonfæddist í Hafn-
arfirði 26. október
1931. Hann lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 10. janúar
2011.
Foreldrar hans
voru Guðríður Jóns-
dóttir, f. 15. júlí 1893,
d. 1. ágúst 1966 og
Bjarni Gíslason, f. 11.
september 1890, d. 4.
október 1969. Systk-
ini Jóns voru Lárus, f.
13. sept. 1919, d. 1.
nóv. 1993, Jóna Magdalena, f. 9.
des. 1925, d. 6. mars 1926 og Gísli,
f. 2. okt. 1928, d. 2010. Jón eign-
aðist Örnu Hólmfríði, f. 10. sept.
1953. Hún er gift Guðmundi Vigni
Óskarssyni, f. 26. nóvember 1951,
og eiga þau einn son Vigni Örn, f.
13. nóvember 1989. Áður átti Arna
son, Hrafn Kristjánsson, f. 30. októ-
ber 1972. Hann er í sambúð með
Maríönnu Hansen og eiga þau þrjá
syni, Mikael Mána, f. 21. janúar
2004, og tvíburana Kristján Breka
og Alexander Jan, f. 31. október
2007. Jón kvæntist Kristínu Sól-
borgu Árnadóttur, f. 24. júlí 1932,
hinn 27. apríl 1954. Hún er ættuð úr
Róbert Daða, f. 23. janúar 2008. b)
Davíð Þór, f. 22. febrúar 1982, unn-
usta hans er Valgerður Brynja Við-
arsdóttir, f. 10. júlí 1985, og á hún
tvö börn, Ylfu Rán, f. 28. ágúst
2003, og Jakob Mána, f. 7. apríl
2008. c)Anna, f. 1. ágúst 1989, unn-
usti hennar er Almar Dagur Arn-
arsson, f. 22. febrúar 1988. 3) Kol-
brún, f. 5. júlí 1957, gift Þorgeiri
Haraldssyni, f. 14. ágúst 1954. Börn
þeirra eru a) Kristinn Geir, f. 16.
september í sambúð með Írisi Dögg
Gísladóttur, f. 19. apríl 1985, og
eiga þau tvö börn, Arnór Mána, f.
11. september 2006, og Guðnýju
Ósk, f. 10. janúar 2008. Fyrir átti
Íris Gísla Arnar, f. 27. september
2003. b)Áslaug, f. 23. febrúar 1986,
og er sambýlismaður hennar Hjört-
ur Freyr Jóhannsson, f. 21. nóv-
ember 1988. c) Tjörvi, f. 20. júní
1990.
Jón og Kristín bjuggu allan sinn
búskap í Hafnarfirði. Jón var til
sjós ungur maður en lærði rafvirkj-
un og vann við það allan sinn starfs-
aldur ásamt því að reka raftækja-
verslunina Ljós og raftæki í mörg
ár við Strandgötuna í Hafnarfirði.
Jón veiktist fyrir rúmum tíu árum
og síðustu sex árin hefur hann dval-
ið á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Jarðarför Jóns fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 19.
janúar 2011, og hefst athöfnin kl.
13.
Stykkishólmi. For-
eldrar hennar voru
Guðbjörg Guðmunds-
dóttir, f. 10. júní 1904,
d. 1999 og Árni Jóns-
son, f. 27. apríl 1895,
d. 1962. Jón og Krist-
ín eiga saman þrjár
dætur. 1) Guðríður, f.
10. september 1954,
gift Konráði Jónssyni,
f. 5. júní 1952. Börn
þeirra eru a) Kristín,
f. 27. júní 1975, gift
Einari Bjarnasyni, f.
2. mars 1974, og eiga
þau þrjú börn, Áróru Ósk, f. 28.
október 1997, Arnar Bjarna, f. 31.
október 2001, og Helenu Ósk, f. 22.
september 2003. b) Hrafn, f. 20.
janúar 1980 sem er í sambúð með
Unni Ósk Einarsdóttur, f. 28. sept-
ember 1981. Hrafn á fjórar dætur,
Elvu Rós, f. 28. janúar 1998, Heklu
Líf, f. 23. mars 2003, Kötlu Maríu, f.
8. janúar 2005, og Lilju Rún, f. 30.
janúar 2008. 2) Katrín, f. 31. desem-
ber 1955. Eiginmaður hennar er
Björn J. Brandsson, f. 18. febrúar
1955, og eiga þau þrjú börn. a) Jón
Karl, f. 5. ágúst 1975 í sambúð með
Lindu Björk Ragnarsdóttur, f. 12.
febrúar 1981 og eiga þau einn son,
Mig langar að senda þér smá-
kveðju, elsku pabbi minn.
Ég kveð þig með söknuði en líka
gleði því þú varst sannarlega tilbú-
inn að kveðja þennan heim. Þú
hlýtur að hafa fæðst með bros á
vör því þú varst alltaf léttur í lund
og ekki breyttist það eftir að þú
veiktist.
Þú varst alla tíð vinnusamur en
þið mamma gáfuð ykkur tíma til að
njóta lífsins. Þið ferðuðust mikið,
fóruð á sjóinn og stunduðuð sjó-
stangaveiði á bátnum ykkar sem
var skírður Kristín í höfuðið á
mömmu.
Ég kveð þig með miklu þakklæti
fyrir að hafa fengið að kynnast þér
og fyrir allt sem þú hefur kennt
mér og leiðbeint mér með.
Ég vil þakka öllu starfsfólki á
Hrafnistu í Hafnarfirði sem hefur
lagt alúð í að annast þig í gegnum
árin.
Hvíldu í friði, elsku pabbi minn.
Þín dóttir
Kolbrún.
Í dag kveð ég föður minn, Jón M.
Bjarnason, rafvirkjameistara, sem
lést eftir löng og erfið veikindi hinn
10. janúar á Hrafnistu í Hafnar-
firði. Þar var hann búinn að vera
vistmaður í tæp sex ár en pabbi
veiktist fyrir rúmum tíu árum.
Það er margs að minnast frá
barnæskunni. Vð vorum heppnar
systurnar að alast upp þar sem
plássið til útileikja var mikið. Við
þekktum ekki annað en að geta
verið úti að leika við lækinn eða í
hrauninu rétt hjá þar sem við
bjuggum. Einnig er gaman að
minnast ferðalaga sem við fórum
með foreldrum okkar út um allt
land. Þá voru nú bílarnir kannski
ekki eins góðir og í dag, en alltaf
komumst við þetta á gamla skód-
anum. Þá var sofið í tjaldi og mikið
og gott nesti að heiman tekið með.
Okkur var kennt að veiða silung og
búum við systurnar að því ennþá,
förum í veiðitúra með okkar mök-
um á hverju sumri.
Þegar við urðum eldri og fórum
að geta unnið eitthvað, þá unnum
við allar einhvern tíma í raftækja-
versluninni hjá mömmu og pabba
og var það góður skóli. Og þegar
við kynntumst eiginmönnum okkar
var þeim vel tekið á heimili okkar
og allir bjuggu þeir þar einhvern
tíma áður en flutt var að heiman í
eigið húsnæði.
Pabbi var mikið fyrir garðrækt
og bar garðurinn á Þrastarhraun-
inu gott merki um það. Síðar eign-
uðust mamma og pabbi sumarbú-
stað og hafði hann mjög gaman af
því að vera þar og stússast við hús-
ið og í garðinum. Þau ferðuðust
mikið saman, fóru til margra
heimsálfa og skoðuðu margt. Einn-
ig voru þau mikið á skíðum, bæði
innanlands og utan, fóru með góðu
fólki og nutu þess mjög.
Það verður ekki annað sagt en að
við systurnar áttum mjög góða
æsku og unglingsár og búum enn
að því. Ber að þakka það og þrátt
fyrir að pabbi sé horfinn á braut úr
þessu lífi munu góðar minningar
um hann lifa með okkur um
ókomna tíð.
Hvíl í friði, elsku pabbi.
Guðríður Jónsdóttir (Guja).
Elskulegur afi okkar og langafi,
Jón M. Bjarnason, er látinn. Afi
Jón var einstaklega ljúfur og góður
maður. Rólyndi og yfirvegun ein-
kenndu fas hans og það var svo
notalegt að vera í kringum hann,
enginn asi og læti heldur bros á
vör og hlýtt viðmót. Það var alltaf
gott að koma í heimsókn til ömmu
og afa á Þrastarhraunið og margar
ljúfar og góðar minningar sem
koma upp í hugann. Það brást
varla að þegar við komum í heim-
sókn var afi iðulega eitthvað að
sýsla, þrífa bílinn, slá grasið eða
huga að húsinu. Það var alltaf allt
svo snyrtilegt og fínt hjá þeim. Oft
fengum við að hjálpa til en oftar en
ekki var okkur boðið að horfa á
vídeó eða fara í heita pottinn, á
meðan yngri barnabörnin busluðu í
pottinum lágu þau eldri á bekkjum
og sóluðu sig.
Afa var ekki bara umhugað um
að halda snyrtilegu í kringum sig
heldur var hann sjálfur alltaf svo
snyrtilegur og vel til fara sjálfur.
Hann var mikið glæsimenni, iðu-
lega nýrakaður með góða lykt og
flottur í tauinu. Þrátt fyrir veikindi
síðustu 10 árin breyttust þessir
hlutir ekki. Afi hélt áfram að vera
snyrtilegur til fara og amma hjálp-
aði honum að passa upp á það.
Afi var mikill útivistarmaður og
nutum við barnabörnin góðs af því.
Afi og amma fóru mikið á skíði og
fengum við oft að fylgja með í þær
ferðir. Minningar um nesti í bílnum
eftir vel heppnaðan útivistardag
eru ljúfar. Tekex með osti og heitt
kakó á brúsa.
Elsku afi, við þökkum allar góðu
stundirnar sem við fengum að eiga
með þér. Minnig þín lifir áfram í
hjörtum okkar allra.
Ég veit ekki hvort þú hefur,
huga þinn við það fest.
Að fegursta gjöf sem þú gefur
er gjöfin sem varla sést.
Ástúð í andartaki,
augað sem glaðlega hlær,
hlýja í handartaki,
hjarta sem örar slær,
Allt sem þú hugsar í hljóði,
heiminum breytir til.
Gef þú úr sálarsjóði,
sakleysi, fegurð og yl.
(Úlfur Ragnarsson)
Kristín, Hrafn og fjölskyldur.
Jón M. Bjarnason
✝
Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞORVALDUR G. BLÖNDAL
húsasmíðameistari,
Hraunbæ 14,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu aðfaranótt
miðvikudagsins 12. janúar.
Útför Þorvaldar fer fram frá Neskirkju föstudaginn
21. janúar kl. 11.00.
Guðbjörg Þ. Blöndal,
Guðrún Blöndal, Gylfi Magnússon,
Birna Blöndal,
Ingunn Ó. Blöndal, Örn Stefánsson,
Ólafur B. Blöndal
og systkinabörn.
✝
PÁLL ARASON
ferðafrömuður,
Bugi,
Hörgárdal,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
21. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Björn Pálsson,
Ari Karlsson.
✝
Okkar ástkæra
FJÓLA B. BÁRÐDAL,
Messuholti,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugar-
daginn 22. janúar kl. 14.00.
Sigurþór Hjörleifsson,
Arngunnur Sigurþórsdóttir, Ægir Sturla Stefánsson,
Steinunn Sigurþórsdóttir, Sigurður Guðjónsson,
Ingibjörg Sigurþórsdóttir, Einar Sævarsson
og barnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
MAGNÚSAR GUNNARSSONAR
vélvirkja,
Ölduslóð 14,
Hafnarfirði.
Olga B. Magnúsdóttir, Stefán H. Sandholt,
Gunnar Magnússon, Guðrún Björnsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir, Guðmundur Hafliðason,
Björg Magnúsdóttir, Eiríkur Páll Einarsson,
Guðmundur L. Magnússon, Þorgerður Sigurðardóttir,
Elín Björg Magnúsdóttir, Óskar Hallgrímsson,
Kári Magnússon,
Helga Magnúsdóttir, Atli Geir Friðjónsson,
Arnfríður Magnúsdóttir, Magnús Helgi Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÁSTA TRYGGVADÓTTIR,
Mýrarvegi 111,
Akureyri,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn
10. janúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
20. janúar kl. 13.30.
Gísli Bergsson, Áslaug Magnúsdóttir,
Bergur Brynjar Gíslason.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR,
Stóragerði 29,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 16. janúar.
Jónas Jónasson, Bára Sigfúsdóttir,
Björn Jónasson,
Arnfríður Jónasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis að Þinghólsbraut 77,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn
8. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar fyrir einstaka umönnun.
Jón Sigurðsson, Sólrún Ástþórsdóttir,
Hallsteinn Sigurðsson, Erla María Vilhjálmsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Árni Ólafsson,
Stefán B. Sigurðsson, Kristín S. Þórðardóttir,
Guðrún H. Sigurðardóttir, Reynir Ámundason,
barnabörn og barnabarnabörn.