Morgunblaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2011 Í dag, miðviku- dag, kl. 8.30- 10.00 mun Ólafur Ísleifsson, lektor í viðskiptadeild HR, halda erindi um efnahagsmál á Íslandi. Þar veltir Ólafur því fyrir sér hvort jákvæð umskipti verði í hagþróuninni fyrir Ísland á árinu. Ólafur var fulltrúi í stjórn AGS, framkvæmdastjóri al- þjóðasviðs Seðlabanka Íslands og efnahagsráðgjafi ríkisstjórn- arinnar. Morgunerindi um efnahagsmál Ólafur Ísleifsson Dagana 5. og 6. janúar sl. kannaði starfsmaður Neytendastofu verðmerk- ingar hjá líkamsræktar- stöðvum á höfuðborgar- svæðinu. Farið var í 21 líkamsræktarstöð og kannað hvort verðskrá yfir al- menna þjónustu og yfir spa- þjónustu, þar sem það átti við, væri sýnileg. Einnig var skoðað hvort verðmerkingar á veitingum og öðrum söluvörum væru fyrir hendi. Í þetta sinn var verðskrá ekki sýnileg hjá fimm af 21 líkams- ræktarstöð, það voru Bootcamp, Grand Spa, Nordica Spa, Sport- húsið og World Class Spönginni, og hjá einni stöð, Baðhúsinu, var einungis lítill hluti af verðskrá sýnilegur. Verðmerkingar á veit- ingum voru mun betri en í fyrri könnun, af þeim 19 stöðvum sem seldu veitingar voru 14 með verð- merkingar í lagi. Verðskrár vantaði hjá fimm stöðum Stjórnlaganefnd hefur sett upp rafrænt gagna- safn um stjórn- skipun og mál- efni tengd stjórnarskrá á heimasíðunni www.stjornlaga- thing.is. Safnið er einkum ætlað fulltrúum á stjórnlagaþingi, en öllum er frjálst að nota það. Höfundar og útgef- endur hafa veitt heimild til tíma- bundinnar birtingar á efni sínu. Safnið stækkar stöðugt og er eitt yfirgripsmesta rafræna gagnasafn um lögfræðileg málefni hér á landi. Rafrænt gagnasafn öllum til afnota STUTT Elli-, örorku- og endurhæfingar- lífeyrisþegar, sem búa í Reykjavík, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ, hafa í vaxandi mæli tekið tilboði um kynningarviðtöl frá Þjónustu- miðstöð Tryggingastofnunar. Um 80% nýrra endurhæfingar- og ör- orkulífeyrisþega nýttu sér tilboðið árið 2010 og rúmlega helmingur nýrra ellilífeyrisþega nýtti sér það. Markmiðið er m.a. að kynna helstu réttindi í almannatrygging- arkerfinu, þjónustuleiðir, reiknivél lífeyristrygginga og upplýsinga- og þjónustuvefi Tryggingastofn- unar. Ef vel tekst til eiga lífeyrisþegar auðveldara með að fóta sig í flóknu kerfi og notfæra sér að- gengilegar og fljótvirkar þjón- ustuleiðir, til dæmis sjálfs- afgreiðslu á vefnum. Vaxandi áhugi • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Útsala 40% afsláttur St. 36 -52 Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16 Fyrstu vorvörur komnar Útsalan heldur áfram G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s Pantaðu tíma í heyrnarmælingu í síma 568 6880 og prófaðu Acto Það er ástæðulaust að láta heyrnarskerðingu koma í veg fyrir að þú getir notið þess besta í lífinu - að eiga samskipti við ættingja, vini og samstarfsfólk í hvaða aðstæðum sem er. Acto frá Oticon eru nýjustu heyrnartækin í milliverðflokki. Acto heyrnartækin búa yfir þráðlausri tækni og endurbættri örtölvutækni sem gerir þér kleift að heyra skýrar í öllum aðstæðum. Acto eru falleg, nett og nærri ósýnileg á bak við eyra. Ómótstæðileg heyrnartæki! Laugavegi 63 • S: 551 4422 Gæðabuxur Klassískar svartar (ullarblanda), ný snið. Gallabuxur, mörg snið laxdal.is NÝ SENDING Miðvikudagur 19. janúar kl. 12.00 í Valhöll. Gestur fundarins er Jón Eyjólfur Jónsson, yfirlæknir öldrunar á Landsspítala Fossvogi. Boðið er upp á nærandi hádegisverð frá HaPP á góðum kjörum. Aldraðir og vistun Opinn fundur hjá Samtökum eldri sjálfstæðismanna SjálfstæðisflokkurinnAllir velkomnir.Tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink, betur þekktur sem Sjonni Brink, varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Garðabæ á mánudags- kvöldið. Sigurjón var 36 ára að aldri, fæddur í Reykjavík 29. ágúst 1974. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Þórunni Ernu Clausen, og fjög- ur börn. Sigurjón fór snemma að starfa við tónlist og semja lög. Hann var m.a. í hljómsveitunum In Bloom, Flavors og Rokk. Með Rokki flutti Sigurjón lagið „Love is you“ eftir Pálma Sigur- hjartarson sem gefið var út í tilefni af 70 ára afmæli Johns Lennons. Árið 2009 gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, nefndist hún Sjonni Brink. Auk þess að semja eigin tónlist hefur hann sam- ið lög fyrir aðra listamenn. Hann var einn af stofnendum leikhópsins Vesturports og samdi m.a. tónlistina við leik- ritið Brim í uppsetningu leikhópsins. Hann kom fram í fjölmörgum leik- sýningum og söng- leikjum og fór síðast með hlutverk Ritchies Valens í söngleiknum Buddy Holly í Austur- bæ. Undanfarið hefur lagið „Okkar ástarvor“, sem Sigurjón flutti ásamt Björgvini Halldórssyni á nýút- kominni dúettaplötu Björgvins, notið mikilla vinsælda. Sigurjón tók nokkrum sinnum þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins og var í úrslitum í fyrra með lagið „Water- slide“. Til stóð að hann tæki þátt í keppninni í ár, 29. janúar næstkom- andi, með eigið lag við texta eigin- konu sinnar, Þórunnar Clausen. Andlát Sigurjón Brink Tæplega 87% landsmanna eru fylgj- andi lögleiðingu svokallaðrar stað- göngumæðrunar hér á landi sam- kvæmt könnun MMR. Fylgið er ívið meira meðal kvenna en karla, 90% aðspurða kvenna voru fylgjandi því að staðgöngumæðrun yrði gerð lög- leg en 83,4% karla. Umræða um staðgöngumæðrun hefur verið fyrirferðarmikil undan- farið. Könnun MMR var gerð dag- ana 11. til 14. janúar og náði til 890 einstaklinga á aldrinum 18-67 ára. Spurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að staðgöngu- mæðrun verði gerð lögleg á Íslandi?“ Litlar sveiflur voru eftir kyni og aldri en mest var andstaðan í aldurs- hópnum 50 til 67 ára, 17,2%, en minnst í aldurshópnum 18 til 29 ára eða aðeins 7,7%. Íbúar landsbyggð- arinnar voru meira fylgjandi stað- göngumæðrun en íbúar höfuðborg- arsvæðisins. Flestir fylgjandi staðgöngumæðrun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.