Ný saga - 01.01.1987, Page 41
,,EN ÞEGAR DAUIÐINN KEMUR SVO SEM EIN VOLDUG HETJA
eskju sem víða hélst við meðal
alþýðu fram á 19. og jafnvel
20. öld. Ariés fer þeysireið yf-
ir evrópskar bókmenntir allt
frá Rólandskviðu hinni
frönsku við upphaf 12. aldar
og fram til skáldsagna
Tolstojs undir lok 19. aldar til
að hafa uppi á frásögnum
máli sínu til styrktar. Les-
anda kynni að detta íslend-
ingasögurnar í hug en
framangreind atriði eru mjög
í stíl við þau viðhorf sem
mönnum hefur löngum orðið
starsýnt á í þeim. Frávika
varð fyrst vart hjá yfirstéttar-
fólki og lærdómsmönnum á
miðöldum og birtust þau í
aukinni einstaklingshyggju.
Þá fór að skipta máli hver dó
og hvernig; hver hegðun hans
var í lífinu o.s.frv.: maðurinn
uppgötvaði „eigin dauða".
Upphaflega hafi verið litið
svo á að allir ættu það sama í
vændum eftir andlátið. Dauð-
inn þurrkaði út mun á
einstaklingum. Lífseigasta
hugmyndin um það hvað taki
við hinum megin gerir ráð fyr-
ir eins konar svefnástandi,
millistigi milli jarðlífs og
eilífðar. Að því loknu komi
dómsdagur, upprisan til eilífs
lífs í himnaríki — eða niður-
stigningar til helvítis. Þessar
ályktanir um hvað taki við að
lokinni hérvist koma vel heim
og saman við athuganir Jón-
asar frá Hrafnagili um ódauð-
leika og annað líf í þjóðtrú ís-
lendinga.42 Það var á um-
ræddu millistigi sem dauð-
ingjarnir áttu til að vera á
sveimi. Þetta var tími draug-
anna.
Á 19. öld segirAriés að bylt-
ing hafi orðið á viðhorfum
Vesturlandabúa til dauðans.
Helvíti lagðist í eyði og fólk
átti æ erfiðara með að sætta
sig við dauða látinna ástvina.
Þetta birtist m.a. í umhyggju
aðstandenda fyrir grafreitum
hinna burtkölluðu; heim-
sóknir í kirkjugarða komust í
tísku. Andstæðuna við tam-
inn dauða kallar Ariés „öfug-
snúinn" eða „forboðinn"
dauða sem sé ríkjandi afstaða
i samtímanum. Taminn dauði
hafi verið til marks um undir-
UNGA STÚLKAN OG DAUÐINN. Á 16. öld tók erótlk að setja mark sitt á túlkun dauð-
ans I evrópskri myndlist og hefur gert það meira eða minna slðan. Myndin sýnir þýskt
póstkort frá þvl um 1900 sem ber heitið Unga stúlkan og dauðinn. Höfundur er Adolf
Hering. Ást og dauði er ennfremur þekkt mótif I bókmenntum. Hver kannast ekki við
Djáknann á Myrká I þjóösögum Jóns Árnasonar? Ástin og dauðinn er nafn á kvæði eft-
ir Stein Steinarr og er slðasta erindið svohljóðandi:
Þótt hjartað ei hamingju fyndi,
hún hlotnaðist þvi eitthvert sinn,
þvl dauðinn er ást þln og yndi,
og ástin er dauði þinn.
39