Ný saga - 01.01.1987, Page 51

Ný saga - 01.01.1987, Page 51
„Sagnfræði felur ekki í sér einn sannleik “ Þórunn Valdimarsdóttir ræðir við Kirsten Hastrup mannfræðiprófessor í Danmörku Pað er okkur íslending- um ávalt gleðiefni þegar bækur sem fjalla um ís- lenska fortíð berast utan úr heimi. Ein slík er Culture and History in Medieval Iceland: an Anthropological Analysis of Structure and Change, eftir danska mannfræðiprófessor- inn Kirsten Hastrup sem starfar við Árósaháskóla. Bókin kom út árið 1985 og byggir að hluta á doktorsrit- gerð hennar frá Oxfordhá- skóla árið 1979. í henni er mannfræðin leidd inn á vett- vang sögunnar — og þar dreg- ur til tíðinda. Mannfræðileg- um aðferðum er beitt á sögu þjóðveldisins, ýmis „módel" eða líkön, „lárétt", „lóðrétt" og „miðlæg", eru notuð til að varpa ljósi á hið fjarlæga tímabil. Sum mannfræðilík- önin eru æði tormelt fyrir óbreytta leikmenn en öll eru þau forvitnileg. í fyrri hluta bókarinnar greinir Kirsten Hastrup ýmsa innviði samfé- lagsins án tímasamhengis og fjallar um hugtökin tíma, rúm og ættir, félagslega og póli- tíska byggingu og heiminn utan samfélags manna. I síð- ari hluta verksins lítur hún á þróun samfélagsins og ræðir um vistfræði og fólksfjölda, félagslegar og trúarlegar breytingar, þróun lagasetn- ingar og fall þjóðveldisins. Bókin er því hvalreki á fjörur þeirra sem hafa yndi af að sækja íslenskar miðaldir heim. Til þess að gefa lesend- um kost á að kynnast bókinni og rannsókninni að baki henni var rætt við Kirsten Hastrup. Tengir saman það sem áður var sundurlaust Hvernig stóð á því að þú sem mannfrœðingur valdir ís- lenskar miðaldir sem við- fangsefni? Það er von að þú spyrjir. Upphaflega ætlaði ég að skrifa doktorsritgerð um ind- verskt efni. Ég fór til Indlands og hóf þar vettvangskönnun. Borgarastríðið í Pakistan setti hins vegar strik í reikn- inginn og rannsóknarleyfi mitt var afturkallað svo að ég flæmdist úr landi með hálf- karað rannsóknarefni í far- angrinum. Á heimleiðinni ákvað ég að róa á ný mið og skyndilega flaug mér ísland í hug. ísland er á flestan hátt gjörólíkt Indlandi og ég get ekki enn úskýrt hvers vegna það birtist mér fyrir hug- skotssjónum í stað Indlands. Eftir að heim kom gat ég þó lítið sinnt námi vegna anna. Ég eignaðist fleiri börn, á samtals fjögur, og kenndi við háskólann í Árósum, en tók til við að kynna mér sögu íslands í frístundum. Áður en ég vissi af var ég komin á kaf í íslands- sögu. Hún heillaði mig með sínu ríkulega heimildarefni. Var það auðsótt mál að Kirsten Hastrup CULTURE AND HISTORY IN MEDIEVAL ICELAND An Anthropoiopcal Analysis of Slnxlire and Change Tengslin milli menningar og sögu eru óvenju- lega skýrisögu þjóðveldisins og á meðan ég fékkst við tímabilið taldi ég mig verða margs visari um eðli menningar. skrifa doktorsritgerð i mann- frœði um sögulegt viðfangs- efni? í Oxford þurfti að fá sér- stakt leyfi til þess. Það fékkst og því gat þessi bók orðið til. Það sem ég hef nýtt fram að færa í henni er einkum sú að- ferð að skipta verkefninu í tvo hluta, annar er án tímavíddar (synchronic) og hinn lýsir þró- un (diachronic). Þessa skipt- ingu tel ég nauðsynlega til þess að hægt sé að skilja eðli menningar. Skilja eðli menningar seg- irðu. Hvernig gekk það með hliðsjón af þjóðveldinu ís- lenska? Tengslin milli menningar og sögu eru óvenjulega skýr 1 sögu þjóðveldisins og á meðan ég fékkst við tímabilið taldi ég mig verða margs vís- ari um eðli menningar. Ég nota ísland sem mannfræði- legt viðfangsefni en jafnframt er þjóðveldið eins konar smiðja sem ég geng í til þess að öðlast skilning á eðli menn- ingar og tengslum hennar við gang sögunnar. Þróun menn- ingar er heillandi viðfangs- efni fyrir mannfræðina því að oftast hafa mannfræðingar fengist við stutt tímabil í sam- tímanum. Er ekki fáheyrt að mann- fræðingar fáist við söguleg efni? Það er lítið um það en sá vettvangur er þó að opnast. Alan Macfarlane í Cambridge er t.d. einn þeirra. Hann er 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.