Teningur - 01.05.1987, Side 3

Teningur - 01.05.1987, Side 3
Vindhögg eða vítakast? Þrjár athugasemdir í DV þriðjudaginn 14. apríl birtist rit- dómur Amar Ólafssonar um Tening. Rit- dómurinn verður að teljast tiltölulega hliðhollur tímaritinu og er ekkert nema gott eitt um það að segja. Þó eru nokkur atriði sem gera má athugasemdir við. Þau má flest skrifa á sjónarhól ritdómarans, sem er sjónarhóll fflabeinstumsins við bakkann á straumi tímans, og þeir sem á honum standa gera sér ekki alltaf fulla grein fyrir því hvað þeir em að tala um þegar út á er komið. Fyrsta atriðið, sem hér verður vakiðmálsá.varðardómhans um myndlistarefni blaðsins, annað efn- isval þess, hið þriðja umsögn hans um rekstur þess og útgáfutíðni. Ritdómarinn telur að mest skorti á góða ritstjóm í myndlistarefni blaðsins. Það efni segir hann að sé skrifað af myndlist- armönnum sem taki viðtöl við myndlist- armenn og útkoman sé stundum aðeins fyrir innvígða. Það má vel vera. En hon- um sést yfir að nákvæmlega sömu sögu má segja um bókmenntaefnið. Þar eru á ferðinni bókmenntamenn sem taka viðtöl við bókmenntamenn og útkoman verður stundum aðeins fyrir innvígða: þá sem hafa lesið verk viðkomandi höfundar. Munurinn er eingöngu sá að ritdómarinn er í þessum hópi, en ekki hinum. Ef hann hefði sjálfur verið í myndlistarhópnum hefði hann vafalaust viðhaft sömu orðin - um bókmenntaefnið. Það er að vísu rétt, að stuttar greinargerðir sem ætlaðar væru lesendum sem ekki eru „inni“ í mál- unum mættu að ósekju vera fleiri, og skal ritdómaranum þökkuð sú ábending. En tímaritið er nú einu sinni ætlað þeim sem hafa áhuga á efni þess, en ekki hinum sem láta sig það engu skipta. Annað atriðið varðar glósur ritdómarans um efnisval tímaritsins. Um það segir hann að ritið hljóti að „búa að verulegu leyti að því sem menn koma ekki út ann- ars staðar". Auk þess telurhann ritstjóm- ina ekki nógu virka. Þessi orð hans er ekki hægt að túlka öðruvísi en svo, að Teningur geti ekki verið neitt annað en annars eða jafnvel þriðja flokks tímarit. Við hvaða „efnisleg" rök styðst nú þessi skoðun hans? Heldur maðurinn virki- lega, að viðtölin, sem ritstjómin hefur tekið, séu þess eðlis að hún hafi ekki komið þeim út annars staðar? Heldur hann að grein Helga Þorgils Friðjónsson- ar og erindi Magnúsar Pálssonar séu í Teningi af því að þeir hafi með engu móti getað komið þeim út annars staðar? Heldur hann að sögur Thors Vilhjálms- sonar og Einars Kárasonar, ljóð Þórarins Eldjáms og Braga Ólafssonar, grein Keld Jörgensens, svo dæmi sé tekið, séu í Teningi af því þessir menn hefðu engan veginn getað komið þeim á framfæri ann- ars staðar? Af hverju segir hann þá að tímaritið hljóti „að verulegu leyti að búa að [efni] sem menn koma ekki út annars staðar“? Þriðja atriðið varðar athugasemdir rit- dómarans um rekstur tímaritsins og útgáfutíðni. Það er eins og maðurinn haldi að ritstjómin hafi ekkert annað að gera en sitja auðum höndum á kaffihús- um miðbæjarins. „Lágmarkskunnáttu í fjármálum" til þess að „þetta ágæta menningartímarit komist til almennings" segir hann ritstjómina vanta. Til hvaða almennings? Teningur hefur ákveðnu miðlunarhlutverki að gegna fyrir áhuga- menn um listir og bókmenntir og er ekki ætlað neitt annað. Að flytja öllum almenningi menningarefni er í verka- hring dagblaðanna og það hefúr aldrei staðið til að hasla sér völl á þeim vett- vangi. Hitt vita þeir sem eitthvað hafa komið nálægt útgáfu tímarita af svipuð- um toga og Teningur, að slík rit verða ekki rekin á sama grundvelli og mörg önnur tímarit. Auglýsendur em langt frá því að vera hrifnir af viðskiptum við menningartímarit, ekki síst ef þau em ný af nálinni eins og Teningur, jafnvel þeir sem koma nálægt menningarmálum. Eða talar ritdómarinn kannski af áratuga reynslu af öflun og innheimtu auglýsinga á vegum menningartímarita? Tímarit eins og Teningur verða því fyrst og fremst að reiða sig á stuðningsmenn sína, áskrifenduma. Og áskrifendumir em fáir og prentkostnaður hár, því verður ekki neitað. En þeir em þó nógu margir til þess að ritið eigi að geta komið út og staðið undir prentkostnaði óháð auglýs- ingamarkaðnum - að því gefnu að áskrif- endumir greiði gíróseðlana sína. En eins og alkunna er tekur oft sinn tíma að inn- heimta gíróseðla og útgáfutíðnin verður þar af leiðandi að ráðast af því fjármagni sem fyrir hendi er hverju sinni. Það er líka vitað að sumir gagnrýnendur og list- fræðingar lyfta ekki litlafingri nema skoða fyrst tölumar í gjaldskrá stéttarfé- laga sinna. Þeir vinna ekkert ókeypis. Þeir em því ekki réttu mennimir til þess að fara háðsyrðum um þá sem hafa lagt fram vinnu sína endurgjaldslaust í þeirri von að það væri þó skömminni skárra að gera eitthvað heldur en nöldra með hend- ur í vösum yfir því að enginn geri neitt. Gunnar Harðarson 1

x

Teningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.