Teningur - 01.05.1987, Page 15

Teningur - 01.05.1987, Page 15
og sleif uppúr auglýsingunni og hinn fullkomni grautur gutlar svo eftir fáar mínútur alskapaður í skaftpottinum. Gurra hrærir með annarri hendinni, en lyftir lokinu af kartöflupottinum með hinni. Gufustrókur gýs uppaf pottinum og fyllir eldhúsið. Svo setur hún lokið á aftur, hættir að hræra í grautnum og kjag- ar útað glugganum og opnar uppá gátt. Það kular og innum gluggann kemur gustur og hrekur gufubaðstilfinninguna úr höfðinu. Það hafði líka verið gufubað á hótelinu, sem þau höfðu dvalið á um sumarið, en hún hafði ekki árætt að fara í gufu og látið sér nægja frásagnir annarra af þeirri sælu. Hún hafði líka heyrt að mörgum þybbnum konum yrði ómótt í gufubaði, jafnvel líkur á hjartaslagi ykj- ust um einhvem ótiltekinn hundraðs- hluta. Jú þetta hafði verið sagt í einhverj- um vísindaþætti í sjónvarpinu og hún Mudda á loftinu hafði talað um þetta; hún hafði verið í Ameríku og vissi hvað hún söng. Þess vegna opnaði Gurra gluggann og teygar nú að sérkvöldkulið, en það fer ekki í vitund hennar, heldur sest utaná svuntuna og langröndóttan kjólinn, sem kmmpast um mjóhrygginn, vegna þess hve erfítt hún á með að hnýta slaufur með hendurnar fyrir aftan bak. Kvöldkulið; og Gurra teygir höfuðið útum gluggann. Það er eitthvað undar- legt við kvöldkulið, sérstaklega hérna í kjallaranum. Það sest alltaf utaná mann og óskar heitt að það sé gufugleypir eða vifta yfir eldavélinni, því þá þarf ekki að vera með þessa eilífu opingátt, bara til að kæla niður íbúðina, og Gurra dregur höfuðið aftur inní eldhúsið, og hallar glugganum. Svo horfir hún í skímuna frá ljósastaumum, sem alltaf heldur vöku fyrir henni, sama hversu vel glugginn er byrgður. Það er eins og vissan um staurinn haldi fyrir henni vöku og hún bægir frá sérhugsuninni. Kjúklingurinn, ætli hann sé ekki að verða tilbúinn, lækkar straum- inn og heldur áfram að hræra í grautnum. Bætir ögn af sykri útí og sönglar.' Svo lít- ur hún snöggt í ljósið og hugsunin um staurinn kemur aftur... Fer maðurinn ekki að koma, allt að verða tilbúið. Ómögulegt að bjóða honum krásimar kaldar og hellir baunum í skál, líka í þessum hryssingi, sem umlukt hefur alla uppá síðkastið og Gurra kjagar að skáp sem inniheldur margvíslegt leirtau. Tek- ur fram lítinn koll og stígur uppá hann, til þess að geta náð í sparidiskana, sem em í efstu hillunni. Hún stynur og blæs, og kollurinn kiknar undan þungahennar. En hún lætur það ekkert á sig fá, heldurtyllir sér á tær, svo hún nái góðu taki á diskun- um. Stígur svo aftur í allan gangflötinn og dæsir. Hún er orðin rjóð í andlitinu og traustabrestir kollsins kvalafullir. Svo stígur hún niður á gólfið með diskana í fanginu og andar léttar ásamt kollinum. Tekur skálina með plastávöxtunum af eldhúsborðinu og setur hana á ísskáps- homið, leggur svo diskana á rósóttan dúkinn og raðar flátum og hnífapörum eftir kúnstarinnar reglum: Fyrir mig og setur gaffal og skaftlausan hníf sitt hvom megin við diskinn sinn. Sparihnífapörin fyrir gestinn. Ef hann sest nú vitlausu megin. Það er eins og vissan um... ef hann sest nú vitlausu megin. Verð að tryggja að hann setjist ekki í homið mitt og lítur á klukkuna á veggnum, snýr sér svo skyndilega að eldavélinni og slekkur undir kartöflunum. Tekur lokið af kar- töflupottinum og tínir þær í skál eftir að hafa hellt af þeim vatninu. Hún skeytir engu um gufuna núna og lætur nægja að hafa rifuna á glugganum. Skræla, nei og lausn afhjúpast í huga konunnar. Breiði viskustykki yfir kartöfluskálina og skell- ir henni á borðið, halda á þeim hita og fer inní stofu að ná í fallega stólinn með plussáklæðinu fyrir gestinn að setj- ast á. Hann hlýtur að skilja, að hann á að sitja í svona fallegum stól. Ekki mögu- leiki að misskilja það og setur stólinn við borðsendann, en fær bakþanka: Gæti slest matarsull á stólinn og hún snýst á hæli og stikar inní svefnherbergið, opnar kommóðuskúffu og tekur fram upplitað lak. Breiði þetta yfir stólinn á meðan og snýr til baka inní eldhúsið, beygir sig fyr- ir framan eldavélina í leiðinni og lítur á kjúklinginn, fer hann ekki að koma? Hann snýst fagurbrúnn á teininum og konunni verður aftur hugsað til sumar- leyfisins. Hún brosir að myndmáli höf- uðsins, réttir úr sér og breiðir lakið yfir stólinn. Nú er þetta í lagi og lítur á klukkuna, slekkur undir grautnum, smakkar og um hana siglir ánægja. Hún lýkur við að leggja á borðið og lítur svo yfir það. Kerti, það verður að vera kerti og hún leggur af stað útúr eldhúsinu. Fer ekki maðurinn að koma og stingur sér inní skáp til hálfs, og gramsar þar um stund. Held ég eigi, umlar höfuðið inní skápnum, hlýtur að vera þetta og dregur undinn rauðan sívalning úr brúnum bréf- poka. Lokar skápnum og heldur á ný inní eldhúsið. Teygir sig í kertastjakann í glugganum og setur kertið í hann, passar ekki ódámurinn og leitar að álpappír í hugskotunum, opnar skúffu og tekur úr henni aflangan kassa með álpappír í, ríf- ur af rúllunni og vefur um endann á kert- inu. Soddan upphátt af tungunni og gleðisvipur færist yfir andlitið. Hann hlýtur að eiga eldspýtur og sest í homið, lítur yfir eldhúsið og allt er tilbúið, og óhætt að slökkva á grillinu, fer að brenna, ef hann verður mikið lengur í þessum glóandi hita. Hún rís á fætur og slekkur á ofninum, en lætur ljósið loga. Það er eins og vissan um... til að halda ilmnum félagsskap, sest svo aftur í hom- ið og lætur þreytuna líða úr líkamanum, grípur um svuntuhomið og þurrkar þvala lófana. Fer maðurinn ekki að koma og líturá klukkuna. Öllu er nú óhætt enn. Óþreyjufullur, hefur ekki haft tækifæri lengi, eins og heil eilífð fyrir hana, skáskýst í höfðinu og sumarleyfið og vissan um... svo óralangt í burtu. Hún stendur skyndilega á fætur, opnar skáp og tekur út sérrýfiösku og glas, lágt 13

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.