Teningur - 01.05.1987, Síða 26

Teningur - 01.05.1987, Síða 26
Úr ljóðaflokknum BRÉF OG LJÓÐ (1942-1946) VIII III Nú skal ég segja þér eitt sem skiptir öllu. Maðurinn breytir um eðli ef hann breytir um stað. Hér þrái ég óstjómlega svefninn sem kemur eins og vinarhönd, dregur lokumar frá klefa mínum, hrindir múmum sem lykur mig inni. Eins og segir í þjóðkunnri líkingu líð ég inn í svefninn eins og ljósgeislinn smýgur í kyrrt vatn. Draumar mínir em stórkostlegir. í þeim er ég alltaf úti. Þar er veröldin björt, þar er heimurinn fagur. Aldrei nokkum tímann er ég enn orðinn fangi í fyrsta sinn Aldrei nokkum tímann í draumum mínum er ég enn fallinn af gnípunni niður í djúpið. Þín bíða skelfileg svefnrof, segir þú. Nei, kona góð, Ég þori að gjalda drauminum það sem draumsins er. VI Þar kom. í dag er haustið kannski liðið. Villigæsimar flugu hjá rétt áðan með vængjaþyt sjálfsagt á leið til Iznik-vatns í lofti eitthvað ferskt eins og reykjarþefur Mjallarilmur í lofti ... Að vera úti núna, úti á hestbaki á stökki í átt til fjalla. Þú kannt ekki að sitja hest, segir þú. Hlæðu ekki, vertu ekki afbrýðisöm. í fangelsinu eignaðist ég nýja ást sem ég elska eins og þig eða næstum því eins og þig: náttúmna. Og þið emð báðar mér fjarri. Vindurinn rýkur og fer Sami vindur vaggar aldrei tvisvar Sömu kirsuberjagrein Fuglamir syngja í trénu Vængimir þrá að fljúga Hér em dymar: læstar Þá er að brjótast út Þú ert sú sem ég vil Að lífið sé fallegt eins og þú Að það sé ástvina, elskað eins og þú Ég veit að henni er enn ekki lokið örbirgðarveislunni en henni lýkur ... XI Þar lágum við í því. Við emm fangar Ég innan veggja Þú utan En hverju skiptir það sem okkur hefur hent? Hitt er verra Að bera fangelsið innra með sér Vitandi eða óvitandi Er svo komið fyrir fjölda fólks Fjölda heiðarlegs, vinnusams ágætisfólks Sem hægt væri að elska eins og ég elska þig. XVII Klukkan er níu Hún var að slá á torginu Bráðum verður klefadymnum læst. Þetta hefur verið langur tími: helsti langur í þetta sinn: átta ár. Að lifa, ástin mín, Það er starf sem lofar góðu. Að lifa, ástin mín, Það er jafn alvarlegt mál og að elska þig. 24

x

Teningur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.