Teningur - 01.05.1987, Qupperneq 32

Teningur - 01.05.1987, Qupperneq 32
asta hlið framfara. En ekki er hægt að kalla hvaða samsöfn- un sem er framfarir, þróunin verður að vera að einhverju leyti til hins betra. Mér virðist að alhygðin sé í sjálfri sér góð. Það eitt að mannkynið öðlist vitund um sig sem eina heild felur einhvem ávinn- ing í sér. Segja mætti að eins konar gagn- kvæm viðurkenning manna eigi sér stað fyrir atbeina allra þessara fyrirbæra. Aukin samskipti gera mannkynið að æ þéttriðnara neti, menn sífellt hvern öðr- um háðari og allar þjóðir og alla samfé- lagshópa að einni mannkynsheild sem þroskar reynslu sína. Jafnvel má segja að hættan á gjöreyðingu af völdum kjam- orkunnar geri okkur enn meðvitaðri um einingu mannkynsins, því að í fyrsta skipti finnum við okkurógnað öllum sem einum og alls staðar. Alþjóðleg menning er ennfremur af hinu góða vegna þess að hún veitir öllum þorra mannkyns aðgang að lágmarkslífs- gæðum. Engin gagnrýni á tæknina mun geta vegið upp á móti hinum ótvíræða ávinningi sem lausn undan oki fátæktar- innar og almenn velmegun hefur í för með sér. Allt til þessa dags hefur mannkynið veitt annað hvort útvöldum menningarsvæðum eða þjóðfé- lagshópum eins konar umboð til að lifa í sínu nafni. En frá því fyrir tveim öldum í Evrópu og frá miðbiki tuttugustu aldar í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku er sá möguleiki nú í fyrsta skipti í sjónmáli að allur þorri mannkyns öðlist a.m.k. lág- markslífsgæði. Þessi heimsmenning er auk þess af hinu góða vegna eins konar viðhorfsbreyting- ar mannkynsins í heild gagnvart sinni eigin sögu. Mannkynið hefur lifað hlut- skipti sitt sem skelfileg örlög og ef til vill er það enn reyndin fyrir meira en helming þess. En sú staðreynd að fjöldi fólks hef- ur náð að öðlast vissa sjálfsvirðingu og sjálfstæði er fullkomlega óafturkræf og í sjálfri sér af hinu góða. Við sjáum við- gang mikils mannfjölda á alþjóðavett- vangi, sem áður fyrr var þögull og undir- okaður. Segja má að aukinn fjöldi manna viti að þeir skapa sér sína eigin sögu, skapa söguna; og í þessum skilningi get- um við sagt að þetta fólk sé raunverulega orðið fullveðja. Ég ætla ekki að hæðast að því sem ég áður kallaði neyslumenningu og við öll njótum að einhverju leyti. Fullvíst er að vaxandi fjöldi manna er í dag að nálgast þá lágmarksmenningu sem kemur hvað skýrast fram í baráttunni gegn ólæsi, þróun neysluhátta og lágmarksmenning- ar. Þar til á síðustu áratugum kunni að- eins lítið brot mannkyns að lesa, en nú getum við hins vegar vænst þess að innan fárra áratuga hafi mannkynið stigið langt yfir þröskuld lágmarksmenningar - og það er vissulega af hinu góða. Við verðum hins vegar að játa, að þessi sama þróun sýnir á sér annað snið. Sam- tímis því að alþjóðahyggjan eflir mannkynið þá veldur hún einnig eins konar lúmskri eyðilegging, ekki einungis hefðbundinnar menningar, sem ekki þyrfti að vera óbætanlegt tjón, heldur einnig þess sem ég vil í bili kalla hinn skapandi kjama menningarhefðanna, þess kjarna sem við túlkum lífið út frá, þess sem ég vil leyfa mér að kalla strax hinn siðferðilega og goðsögulega kjama mannkynsins. Af þessu sprettur tog- streita. Við höfum það einkar vel á til- finningunni, að heimsmenningin verki jafnframt sem eins konar eyðing eða uppblástur á kostnað menningarauðsins sem skapaði hina miklu siðmenningu fyrri tíma. Á meðal annarra uggvænlegra áhrifa kemur þessi ógnun fram með útbreiðslu lágkúmmenningar, sem er fá- ránleg ranghverfa þess sem ég hér að framan kallaði lágmarksmenningu. Hvarvetna út um heiminn rekst maður á sömu lélegu kvikmyndina, sömu sjálf- salana, sama plast- eða áldraslið, sömu afbökun tungumálanna með áróðri o.s.frv. Það er líkt og mannkynið nemi staðar í undirmálsmenningu um leið og fjöldinn nær neyslumenningarstigi. Þannig komum við að erfiðasta vanda þeirra þjóða, sem eru um það bil að hrista af sér ok vanþróunarinnar. Spurningin er hvort nauðsynlegt sé, til að komast á veg í átt til hins nýja tíma, að kasta fyrir róða gömlu menningarfortíðinni sem verið hefur tilverugrundvöllur þjóðarinnar? Vandinn birtist oft í mynd mótsagnareða vítahrings. Vissulega náðist sigur í bar- áttunni gegn nýlenduveldunum og fyrir frelsinu einungis með því að leggja áherslu á aðgreind þjóðareinkenni, því að þessi barátta átti ekki aðeins rót sína að rekja til efnalegs arðráns, heldur átti hún sér dýpri rætur í þeirri ummyndun þjóðlegra séreinkenna sem nýlendutím- inn hafði leitt af sér. Þess vegna var í fyrstu nauðsynlegt að endurheimta djúp- stæð þjóðareinkenni og tengja þau aftur fortíð sinni, í þeim tilgangi að næra þjóð- lega endurvakningu. Af þessu sprettur þversögnin: Annars vegar verða þjóðir að festa rætur í jarðvegi fortíðarinnar, endurvekja þjóðarsálina og halda á lofti þessari endurvakningu anda og menning- ar gegn þjóðareinkennum nýlenduherr- anna. En til að eiga hlutdeild í nútíma- menningu er um leið nauðsynlegt að taka þátt í vísindalegri, tæknilegri og stjóm- málalegri rökhyggju, sem krefst þess oft- ar en ekki að þjóðir blátt áfram afsali sér menningarlegri fortíð sinni. Það er stað- reynd að sérhver þjóðmenning getur ekki í senn staðist og dmkkið í sig holskeflu nútímamenningar. Þversögnin er því þessi: Hvemig á að tileinka sér nútímann og snúa aftur til uppsprettnanna ? Hvem- ig á að vekja upp aldna og hálfsofandi siðmenningu og taka þátt í alheimsmenn- ingu? En eins og ég benti á í upphafi, þá standa iðnvæddar þjóðir, sem fyrir löngu hafa fundið sjálfstæði sínu stað í rótgrónum stjómmálastofnunum, frammi fyrir sömu þversögninni. Vitaskuld er það alvarleg þolraun að standa frammi fyrir öðmm menningarhefðum og á vissan 30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.