Teningur - 01.05.1987, Síða 56
Blaðsíða úr bókinni Punktar, Silver
Press, ReykjavlkJAmsterdam 1972, 15 x
18 cm.
of létt í eðlisþunga þá þarf að skrapa svo-
lítið burt af málningu. Þetta er nú ekki
beint rómantísk vinnuaðferð. En svo gaf
ég konunni minni myndina og þá varð
hún rómantísk, fyrir mér. Það er líkiega
mjög jarðbundin rómantík.
Þú tekur hluti og dregur þá saman í
eitthvað eitt?
Já, það er einhvers konar árátta, viss
prímitífismi kannski. Ég fæ mest út úr
einformungum, punkti eða línu. Ein-
hverju hlöðnu, hlaðinni línu.
Drawings to waterfalls, hvað umþá bók?
Hún er gerð þannig að fyrst fann ég þrjá
heppilega fossa á íslandskorti, teiknaði
svo ámar að þeim - í gegn eins og krakk-
ar gera stundum. Straumurinn kemur frá
kili og fossamir steypast allir út í sama
punkti. Þeir sem eru mjög næmir segjast
heyra daufan fossnið þama við bókar-
kantinn.
Mér finnst gott að láta svonaeilífðarvélar
eins og árstraum, snúning jarðar eða
eitthvað í þá vem knýja verk, - gefa því
inntak og potens í senn. Þó notaði ég
þetta kannski meira áður, geri það ekki
eins mikið núorðið. Gott dæmi um þessa
54