Teningur - 01.05.1987, Page 57
Blaðsíða úr bókinni Drawings to Water-
falls, Bruxelles 1975 (kjölur vinstra
megin), 15 x 18 cm.
(
viðleitni er bókin Once around the sun
sem mun dingla umhverfis sólu með sitt
tveggja tempo „beat“ meðan nokkurt ein-
tak er til af henni. Náttúru konseptualist-
ar hafa fengist mikið við ýmiskonar
beislun á svona frumkröftum. Bretinn
Richard Long finnst mér vera einn helsti
snillingurinn á því sviði. Ameríkanamir
ná þessu ekki alveg eins vel finnst mér.
Svo er ein bók sem við höfum ekki minnst
á, frá Frans Hals museum?
Ja, það er nokkurs konar katalógur. Ég
hef aldrei verið sérlega spenntur fyrir
henni. Hún er kannski of flöt, ég veit það
ekki.
Það sem ég vildi var að gefa bókinni sem
formi alveg nýtt inntak. Ráðast á hana frá
öllum hliðum og virkja hana á kræfari og
beinskeyttari hátt en áður hafði tíðkast.
Bæta í hana fýsískum gildum, þunga,
hraða o.s.frv., beina henni í nýjan ljóð-
rænan farveg og fá þannig - einhvers
konar „renaissance" í atómskáldskap.
Þetta held ég sé inntakið í þessu bóka-
stússi mínu.
Hvenœr ferðu að gera tímaverkin, jafn-
tímalínurnar?
55