Teningur - 01.10.1989, Síða 10

Teningur - 01.10.1989, Síða 10
Pynchon ... Bók Calvinos Ef ferða- langur á vetrarnóttu, og örugglega fleiri. En þetta tlmabil, eftirstríðsárin sem nú er að Ijúka, stendur okkur of nærri til að við komum auga á allt sem máli skiptir. - Finnst þér eitthvað benda til að hinar ýmsu bókmenntagreinar muni breytast? - Bara það sem augljóst er, svo sem sterkari tengsl skáldsögunnar við ferðasöguna og vísindaskáldsöguna. En hinar eldri greinar munu standa á föstum fæti, en það er aldrei að vita nema þær verði notaðar á nýjan hátt. Ef til vill á bókin eftir að breytast, það eðli hennar að vera skrifaður texti. Kannski eiga menn eftir að notast við leiðbeiningarmyndir og teikningar einsog á tölvuskjám. Það geta orðið breytingar á því hvernig við miðlum sögum. - Þú ert prófessor í amerískum bók- menntum og hefur skrifað bók um Saul Bellow ...? - Á sjötta og í upphafi sjöunda ára- tugarins fannst mér amerískir rithöf- undar vera þeir bestu í heimi. Þessir yfirburðir þeirra er löngu liðin tíð þó enn séu þar góðir höfundar. - Hvað með alla ungu amerísku höfundana í dag? - Síðasti höfundurinn sem ég hreifst af var Paul Auster, New York þrí- leikurinn hans. Vandað verk. Hann leggur fyrir sig erfiða þraut: að nota alla mögulega þætti úr leynilögreglu- sögunni en grafa undan þeim um leið. Annar höfundur sem ég hef haft ánægju af að lesa er Rachel Ingalls. - Þú hefur lengi verið með námskeið í ritlist við háskólann og bæði lan McEwan og Kazuo Ishiguro hafa verið nemendur þínir. Að hverjum kveður mest í enskum bókmenntum? - lan McEwan, Graham Swift, Ang- elu Carter og Martin Amis. Séu þau ekki þest eru þau að minnsta kosti dæmigerð. - Geturðu útskýrt það nánar? - Öll fjögur hafa þau verið andsnúin raunsæinu í verkum sínum en öll reyna þau nú að snúa blaðinu við og finna nýtt raunsæi. lan McEwan er gott dæmi. Þegar hann hóf að skrifa, Paul Auster það er að segja áður en hann gaf nokkuð út, voru það mjög huglægar og persónulegar fagurbókmenntir undir sterkum áhrifum frá Kafka og Beckett. Þetta voru andfélagslegar sögur úr einkaveröld karlmanna, upp- fullar af súrrealískri sálfræði, ósjaldan um unga menn sem breyttust í eitthvað samkvæmt formúlu Philip Roth í The breast. Sumar þessara sagna hefur hann á einhvern hátt notað í smásagnasöfnunum tveim First love, last rites og In between the sheets. Leið hans frá smásögunni til skáldsögunnar er mjög lýsandi fyrir síðari hluta þessarar aldar. Það virðist sem margir höfundar þurfi að skrifa smásögur áður en þeir finna sinn sál- ræna tón og geta tekist á við skáld- sögur. Sögur McEwans þróast frá ungæðislegu ímyndunarafli karl- manns til þjóðfélagslegra fagurbók- mennta einsog í The Child in time. Sjálfur mundi hann lýsa þeirri bók sem hálfgerðum kvennabókmenntum þar sem áherslan er lögð á sam- bandið á milli innra lífs barnsins og hins fullorðna, og þar sem styrjaldir og stjórnmál skipta miklu máli. - Hvað með hina? - Martin Amis hefur gengið í gegnum svipaða þróun - það er þess vegna sem ég lít á þá sem fulltrúa sinnar kynslóðar. Bæði Success og Money lýsa eins konar pönk sálfræði innan frá en báðar tjá þær þessa sál- Á arfræði á breiðara plani. Martin Amis er einnig dæmi um höfund sem hverfur frá andraunsæislegum við- horfum til raunsæislegra. Angela Carter, sem skrifar róttækar kvenna- fantasíur með ádeilubroddi, lítur á einn eða annan hátt á verk sín sem innlegg í félagslega baráttu. Þegar hún notar ævintýr í skáldsögum sínum er það af því að hún lítur á ævintýrið sem tæki til að nálgast veru- leikinn á svipaðan hátt og við notum ævintýri þegar við útskýrum heiminn fyrir börnum. í „ævintýrum" hennar er hefðbundnum hlutverkum og valda- hlutföllum breytt og á þann hátt vill hún gagnrýna samfélagið. Graham Swift er mjög metnaðarfullur höfund- ar. Það kemur mjög skýrt fram í skáld- sögum hans, Waterlandog Outofthis world. Honum hefur tekist að skapa bókmenntir þar sem bæði hið ómeð- vitaða og sagan í sínum smæstu smáatriðum fá að njóta sín. Auk þess segir hann frá af miklum krafti einsog best gerist í sagnaskáldskap. Einar Már Guðmundsson þýddi 8

x

Teningur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.