Teningur - 01.10.1989, Page 41
ANTON HELGI JONSSON
TÍÐASÖNGUR
segöu mér ekki frá Ijóta
andarunganum í kvöld
engin dæmi um þann sem finnur
sig-sér-sín
ekkert snakk um eðli, takk
ekki í kvöld
heilög marilyn
ég hef leitaö, hef
leitað og ekki fundið sjálfan mig
og líka ég er þreyttur á að vorkenna sjálfum mér
og ekki heldur ég nenni að spyrja hver ég sé
né hvað ég eigi að vera
annan rúnt, annan
áfram, annan
það gæti verið séns
en það er alltaf of seint
en það er alltaf of snemma
og allt er fjarverandi
heilög marilyn
9ef mér að drekka
ég er ekki þyrstur
nú er komið að mér
ég er sannarlega ekki ábyrgur orða minna
en ég trúi á orðið, marilyn
allra kvikinda líki
trúi
heilög marilyn
hvað er einn meyjarsonur hjá mér
barni þínu
barni óbyrjunnar
mun ég
eða mun ég ekki frelsa heiminn
heilög marilyn
ég er áhorfandi
ég breyti heiminum og breyti
breyti selskapsdömunni í norn, ó marilyn
inni er úti
kroppurinn er sálin
og ég á ekkert nema minn græna vilja
ég hef leitað, hef
leitað og ekki fundið sjálfan mig
nú er að skapa úr engu
marilyn
fáðu mér maskarann, marilyn