Birtingur - 01.01.1968, Síða 13
áhuga almennt kemur einnig fram í því, að
komið hefur verið upp kvikmyndasafni, sem
lánar kvikmyndir um leiklist endurgjaldslaust
til allra, sem áhuga hafa á. Að lokum má geta
þess, að á vegum Óðin-leikhússins er nú unnið
að stofnun norrænnar leikmyndavinnustofu.
Vegna hinnar fjölbreyttu starfsemi er Óðin-
leikhúsið nú þegar orðinn fastur og örvandi
þáttur í leiklistarlífi Norðurlanda og norrænu
menningarlífi yfirleitt. Með hliðsjón af braut-
ryðjendastarfi Grotowskis, Antonin Artaud,
hinum miklu sköpuðum í leikhúslífi Frakka
og Rússa á þessari öld og aldagömlum hefðum
Austurlanda er nú þessi fámenni hópur
Skandínava undir stjórn ítala að kanna og
móta nýjar tjáningaraðferðir innan leiklist-
arinnar, sem stuðla að því að hefja leiklistina
úr þeirri aðstöðu að vera kurteislega virt en
jafnframt álitin einskisverðar leifar liðins tíma
og gera hana að nýju að miðdepli andlegs lífs
samtímans.
Stanislavski segir í upphafi endurminninga
sinna: „Til að hækka listrænan mælikvarða
í einhverju landi á sviði leiklistar er hreinn
óþarfi að hefja rekstur leikhúsa í hundraða-
tali, en það er nauðsynlegt að til sé eitt full-
komið leikhús innan hverrar greinar leiklist-
arinnar. Þessi fyrirmyndarleikhús geta síðan
verið keppikefli hinna leikhúsanna." Óðin-
leikhúsið myndi að líkindum ógjarnan vilja
láta líta á sig sem „fullkomið leikhús", og
áreiðanlega finnst mörgum leikurum það blátt
áfram fráhrindandi: hér gefast engin tækifæri
til að ganga í augun á áhorfendum, Jrvert á
móti verkar framkoma leikarans beinlínis
hneykslanleg frá fagurfræðilegu sjónarmiði.
Engu að sfður virðist andinn, sem ríkir innan
hópsins og er honum lífsnauðsynlegur, vera
til fyrirmyndar. Auk mikillar vinnu og strangs
aga eru lífsskilyrði leikflokksins alger fórn
einstaklingsins og eigin hagsmuna hans í þágu
hins sameiginlega áhugamáls: samsköpunar,
Jaar sem tilraunirnar og árangurinn bera
merki sárrar nauðsynjar.
BIRTINGUR
11