Húsfreyjan - 01.10.1964, Síða 8

Húsfreyjan - 01.10.1964, Síða 8
Jólaannir Útvarpserindi 24/12 ’63. Á leiðinni frá vinnustað nu'num síðdegis, geng ég fram hjá mörgum uppljómuðum gluggum. Óteljandi litskær ljós blika á svalabríkum og vefja liæðirnar töfraljóma. Stundum þegar veðrið er gott geng ég alla leið ofan úr Háuhlíð og vestur að sjó, til að vita hvernig gengur að lilaða bálköst- inn við Ægissíðuna; er þó ekki alveg laus við samvizkubit, þegar ég liugsa um iðju- semi yðar sem Iieima sitjið, — allar jóla- annirnar. Nú er ekki rétti tíminn til að sóa deginum í tilgangslaust rölt, nú ætti liver sómakær maður að láta liendur standa fram úr ermum, nú dugar ekki að láta sér detta í hug að leggjast í dvala, þótt nóttin sé löng. En ég er svo þakklát fyrir öll þessi ljós, sem fólkið lætur loga, vegfar- endum til ánægju, að ég verð að gefa mér tíma til að horfa á þau; og svo börn- in, sem ldakka svo mikið til að fá fríið, og mega nú enn taka þátt í öllum þeim ævintýrum, sem jólahaldið býður upp á, rifja upp leikina, syngja jólasálmana og eiga fullorðna fólkið að frá morgni til kvölds. Á þessum skemmtilegu göngum fæ ég að vita svo margt um fólkið, ýmislegt sem ekki er hægt að komast að með öðru móti. Nú vara ég yðii(r strax við að álíta, að ég sé að leika leynilögreglu eða viða að mér efni í skáldsögu. Þeir hlutir eru margir, sem Iivorki eru sögulegir eða þess eðlis að skýrslur nái yfir þá. Tökum til dæmis alla þessa björtu glugga, livað er verið að gera inni í stofunni og í eldhúsinu, livað liugsa konurnar, sem þar eru önnum kafnar við jólaundirbúning? Eru þær að hugsa um allt, sem þær hafa eða eru þær að hugsa 6 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.