Húsfreyjan - 01.10.1964, Síða 12

Húsfreyjan - 01.10.1964, Síða 12
Haf'narfjörður skömmu eftir síðustu aldamót. Já, við skulum hverfa 50—60 ár aftur í tímann! Það eru engar götur í bæn- um aðrar en þær, sem fætur kynslóðanna liafa troðið. Yið göngum malarkambinn meðfram sjónum. Þarna eru nokkur hús á strjálingi. Það eru kaupmannahúsin og verzlanir. Hingað og þangað liggja götu- slóðarnir um hraunið. Víða má sjá lág- reista, en vinalega bæi. Það er blæjalogn og reykinn leggur beint upp frá bæjun- um. Fólk er á stjái og margir að sækja vatn. Það er sótt í Lækinn. Hánn er í lijarta þorpsins og rennur til sjávar í fjörð- inn. Fólkið hefur stanzað til þess aðjspjalla saman og segja fréttir. Það er sittlivað að gerast. Það á að fara að leggja götu um bæinn og byggja brú yfir Lækinn. Nýi læknirinn vill leggja Lækinn niður sem vatnsból og byggja vatnsveitu. Taugaveikin er í algleymingi í Firðinum og margir hafa fiorn í síðu lækjarins. Fólkið borfir van- trúað á föturnar, en sér ekkert nema tár- lireint vatnið. Nei, það gat ekki verið. Og svo var það galdramaðurinn hann Jóliannes Reykdal. Hann gat smíðað allt mögulegt og svo gat bann tendrað Ijós af lireint engu. Hann þurfti enga olíu og 10 Frá liðnum árum lampaglösin voru bara kaldar kúlur! Þetta kallar liann rafljós! Fólkið er steinhissa á þessum ósköpum. Svo tekur hver sínar fötur og röltir heim á leið. En Tóta gamla, mesta fréttakonan í bænum, befur líka tíðindi að segja. Já, Tóta bafði bara rétt sem snöggvast litið inn í nýja húsið á Bala. Þar var komið kokkbús, tvö verelsi og spisekamelsi. Og sjálfur galdramðaurinn var þarna staddur og var að leggja köldu Ijósin inn í húsið. Og Tóta gamla hafði ekki séð annað en eittlivert band liangandi niður úr miðju loftinu inni! Og loftið liafði verið málað hvítt og þiljurnar græn- ar og meira að segja gólfið hafði verið mál- að! Borðið var komið út á mitt gólf eins og hjá kaupmannsfrúnni með rósadúki á. Og þarna var kommóða með mörgum myndum, kvöldmáltíðin og Jesúmyndi;r upp um alla veggi. En fleiri en Tótu gömlu fannst töluvert til um nýja búsið á Bala. Við litlu systkin- in, sem fluttum í þetta bús, vorum harla glöð. Það var komði að jólum líka. Að vísu vorum við ekki rnikið farin að bugsa um þau, en ]>að gat ekki farið frarn lijá, að pabbi og mamma voru að pukra með eitt- bvað. Jú, það var ekki að sökum að spyrja. HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.