Húsfreyjan - 01.10.1964, Side 14

Húsfreyjan - 01.10.1964, Side 14
sagSi að væri nákvæmlega eins og hún og sæist oft á gangi hjá Bala. Þessu trúði ég og til þess að vera nú alveg viss, þurfti ég oft að liorfa á mömmu og ganga úr skugga um, að þetta væri nú liún. Einu sinni mætti ég konu, sem ég hafði aldrei séð. Hún var fullorðin, töluvert ein- kennileg, með bungu, en ekki laut fyrir neðan nefið. Þetta hlaut að vera liuldu- kona. Hún bar þungan böggul. Með hálf- um Jmga gekk ég til liennar og bauðst til þess að bera böggulinn. Ég ætlaði að vita, bvar hún ætti heima. En þegar liún skömmu síðar beygði af veginum og fór í hús og reyndist vera kona austan úr sveit, komin í bæinn til þess að heimsækja syst- ur sína, varð ég fyrir afar miklum von- brigðum. Og ekki fór betur fyrir okkur Palla! Palli var nábúi minn, ári ehlri. Við vor um mjög samrýmd. Hann var skemmtileg ur félagi, fann upp á ýmsu, söngvinn og músíkalskur, enda frændi og nafni Páls Isólfssonar. Við Palli lögð um undir okkur hænsnakofann lieima. Þar æfðuin við söng. Eitt sinn var Palli að semja fallegt lag við „Gamla Nóa“, þegar hanaskömmin, svarti Donald, stökk upp á prik og galaði beint framan í Palla. Þá reiddist Palli, þreif í dónann og fleygði honum út. En mamma komst að þessu og eftir það bannaði hún okkur að æfa söng í liænsnakofanum. Þetta var nú titúrdúr. En við Palli vorum stað- ráðin í því að sjá, þegar huldufólkið flytti sig á gamlárskvöld. Við áttum erindi við það. Palla bráðvantaði tvíblaða vasaliníf og mig langaði svo lifandi skelfing í blúndubuxur. Magga systir Iiafði fengið blúndubuxur í jólagjöf. Og buldufólkið hafði reynzt mér svo vel, að það hlaut að hjálpa inér um þetta lítilræði. Við Palli læddumst út á gamlárskvöld og settumst við sprunguna á Stórakletti (hjá húsinu Austurgata 57). Hér ldutu höfðingjarnir að búa. Þetta var svo stór og fallegur kleltur. Við héldumst í hendur, vorum víst liálfsmeyk. „Ég tala fyrst. Ég er karlmaðunr,“ sagði Palli án þess að titra nokkuð. „Auðvitað,“ sagði ég og dáðist að karl- mennskuiini í Palla. En í þessu kom pabbi Palla og var heldur þungur á brúnina. Fólk var farið að leila að okkur. Það kall- aði okkur flón! En daginn eftir fann nábúi okkar tví- blaða vasahníf, einmitt þar, sem við Palli böfðum setið kvöldið áður. Palli fullyrti, að bann og enginn annar ætti hnífinn, liuldufólkið liefði gefið sér hann, og liann fékk hnífinn. En ég fékk aldrei neinar blúndubuxur. O, jæja! Ég varð víst að hugga mig við það, að liuldufólkið liafði einu sinni gefið mér skyrtu. Var liægt að heimta meira? Þegar foreldrar Palla fluttu burt, sakn- aði ég lians mikið. Enginn var eins upp- finningasamur og skemmtilegur og Palli. Hins vegar liafði fólk orð á því að ég væri miklu þekkari síðan Palli flutti. En hvað er að niarka fullorðna fólkið? Það skildi ekki æskuna þá frekar en það gerir enn í dag. GuMaug Narfadóttir. Leitað að orði Ég leitaði að orði og óskasteinum. Litfögrum blómum, laufguðum greinum. Ég fann sjaldnast orð í fögru máli. Og óskasteinarnir urðu að táli. Tungan á lofgjörð, er lýst getur þjóð. Oskin er viti á vonanna slóð. Laufey Sigurðardóttir frá Torfufelli. 12 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.