Húsfreyjan - 01.01.1966, Side 9
semi við öll störf. Ekkert aldursskeið er
jafn viðkvæmt og barnsins og krefst jafn-
mikillar árvekni og aðgæzlu. öllum okkur
er taka að sér starf í barnaspítala verður
að vera þetta ljóst. Við erum með fjöregg
og dýrmætustu eign þjóðarinnar — fram-
tíð hennar. —
Okkur er líka ljóst að foreldrar trúa okk-
ur fyrir því dýrmætasta sem þau eiga. Á-
byrgð okkar er því mikil.
Hlutverk Barnaspítala Hringsins eru
fleiri en þetta. Annað veigamikið verk-
efni er kennsla, bæði hjúkrunarfólks og
lækna. Nú skapast aðstaða til að veita okk-
ar ungu mönnum svipaða menntun í þess-
ari grein og veitt er læknum annarra þjóða,
en mikið skortir nii á að svo sé. Hér eiga
ungu mennirnir að læra fræðin um barn-
ið, bæði það sjúka og heilbrigða, læra að
umgangast það og þykja vænt um það. Sá
er allt þetta kann er viss um árangur í
starfi.
Á þessari stundu liefir síðasli sjúklingur-
inn verið lagður í barnadeild Landspítal-
ans. Þeir urðu alls 5.321 á rúmum 8 árum.
Næsti sjúklingur verður skráður í Barna-
spítala Hringsins.
1 barnadeild Landspítalans bafa margir
fengið bót meina sinna og við sem þar unn-
um átt inargar ánægjustundir, en einnig
stundir vonbrigða og erfiðleika. En þegar
á allt er litið verða björtu bliðarnar svo
miklu minnisstæðari að enginn sér eftir að
hafa starfað þar.
Þessi deild befir líka verið okkur góður
skóli til undirbúnings því starfi er okkar
bíður í Barnaspítala Hringsins og við mun-
um öll gera okkar bezta.
Nú, þegar okkar gamla deild er öll, vil
ég leyfa mér að þakka starfsfólki mínu fyr-
ir frábær störf frá fyrstu stundu. Allir —
undantekningarlaust — liafa sýnt áliuga,
skvldurækni og dugnað — starfsgleðin hef-
ir verið snar þáttur og alltaf hefir verið
sjálfsagt að leggja á sig aukaerfiði, þegar
þess gerðist þörf. Með slíku fólki er gott
að starfa.
Ég vil líka þakka starfsfólki annarra
deilda og stjórn spítalans ánægjulegt og
HÚSFRETJAN
Chon.italclsens^éla^íö ní/iœlt
Elzta kvenfélag landsins, Thorvaldsensfé-
lagið í Reykjavík, átti á s. 1. ári níutíu ára
afmæli og minntist þeirra tímamóta mynd-
arlega á ýmsan liátt. Saga félagsins liefur
fyrr verið rakin all rækilega í „Húsfreyj-
unni“ og því verdur fátt eitt ritað nú, nema
árnaðaróskir ritsins, sem samfagnar þeim
dugmiklu konuin, sem í félaginu starfa og
halda áfram að láta gott af sér leiða.
Líknarstörf, munnleg og verkleg fræðsla
kvenna, matgjafir og jólatrésskemmtanir
voru meðal fyrstu verkefnanna, sem félag-
ið valdi sér. Um aldamót komu þær á fót
Thorvaldsensbazarnum, sem starfar enn af
miklum krafti og selur margs konar lianda-
vinnu.
Árið 1906 var stofnaður Barnauppeldis-
sjóður Tliorvaldsensfélagsins, sem síðan
liefur veilt margliáttaða aðstoð, þó lengst
verði að líkuin í minnum haft, er félagið
afbenti Reykjavíkurborg að gjöf vöggu-
stofu árið 1963. Aflienti félagið borgar-
stjórn eina milljón króna á níræðisafmæl-
inu til viðbótarbyggingar við vöggustofuna.
Margt fleira liefur félagið látið til sín taka,
þó ekki sé hér upp talið. Formenn félags-
ins liafa verið frá uppbafi: Þórunn Jónas-
son, María Ámundadóttir, Fransiska Olsen,
Ragnheiður Gíslason, Guðrún Jónsdóttir,
Svanfríður Hjartardóttir og Unnur Scliram,
sem nú gegnir formennsku.
„Húsfreyjan“ óskar Tliorvaldsensfélag-
inu allra lieilla og gæfu í framtíðarstörfum.
Þ*s#\r*srsrsrv#\rvrsrsrsrsr^s#srsr<*sr^s#s#'#srsrs*s#\rsr*^srsr*srs*v#'*v#
farsælt samstarf. Án þess liefði árangur
okkar oft orðið rninni en raun varð á. Ég
vona að þetta samstarf breytist ekki.
Að lokum vildi ég bera fram eina ósk
liinum nýja Barnaspítala Hringsins til
handa. Hún er sú, að sá andi er ríkt hefir
í gamla staðnum megi flytjast með börn-
unum yfir í nýju búsakynnin, — andi vin-
áttu og samstarfs, árvekni og trúmennsku,
slarfsgleði, dugnaðar og kunnáttu. Þá mun
vel farnast.
5