Húsfreyjan - 01.01.1966, Síða 36
botni, þar sem kopar leiðir vel hitann.
Slíkir pottar eru haldgóðir, en dýrir.
Margir pottar eru nú framleiddir með
mælistrikum að innanverðu, og jafnvel þótt
slíkt sé ekki nijög nákvæmt, er hægt að
hafa gagn af því.
Ef pottlokin eru flöt, má láta disk eða
fat eða annað, sem þarf að liita, ofan á þau
og nýta þannig betur hitann af hellunni.
Hraðsuðupottar spara tíma og rafmagn.
Er maturinn 6oðinn við þrýsting, og hækk-
ar þá hitastigið og maturinn soðnar fyrr.
Með hverjum potti fylgir leiðarvísir, sem
þarf að lesa vandlega áður en potturinn er
tekinn í notkun. Aðgætið að ventillinn á
pottinum stíflist ekki, og notið yfirleitt
slíka potta með gát.
Stundum má nota eldföst mót í staðinn
fyrir potta og er skemmtilegt að bera fram
mat í þeim. Sum mót má jafnvel láta á
eldavélarhellu, en flest mót má einungis
láta í heitan bökunarofn. Þessi ílát eru oft-
ast úr leir eða gleri og því ekki eins sterk
og venjulegir pottar. Þeir þola ekki snögg-
ar hitabreytingar.
Eldhússkálar eru til úr ýmsum efnum
eins og leir, postulíni, gleri, plasti, ryð-
traustu stáli o. s. frv. Vinnuskálar þurfa
að vera stöðugar á borði.
Hentugar eru smjörkrukkur ílangar í
laginu þannig að hægt sé að láta % kg
smjör beint í þær án þess að þurfa að búta
það í sundur.
SkurSarbretti:
Jafnvel þó að skurðarbretti sé í eldhús-
borðinu er þægilegt að eiga laust bretti
fyrir lauk o. fl. Skurðarbretti úr tré fer
vel með eldhúslinífana, sem fljótt verða
bitlausir, sé notað plast- eða glerbretti.
Rispuð plastbretti eru ekki sérlega þrifa-
leg í notkun.
Hnífar:
Beztu hnífarnir eru framleiddir úr ryð-
traustu stáli, sem hefur verið hert. Skaftið
þarf að vera úr harðri viðartegund, og
blaðið þarf að vera fest við skaftið með
linoðum, sem ekki ryðga.
Hnífar með öldumyndaðri egg (bylgju-
egg, ,,bölgeskær“) halda vel biti. Eru þeir
hentugir fyrir brauð og ýmislegt annað.
En til þess að skera kjöt og flaka fisk
þarf að eiga góðan hníf með beinni egg
og með frammjóu blaði.
Steikaraspaðinn verður að vera sveigjan-
legur í blaðendann. Nauðsynlegt er einnig
að eiga lítinn hníf til að flysja með kartöfl-
ur og einnig er hagkvæmt að eiga liníf með
rauf í blaðinu til að flysja með gulrætur,
epli o. fh, (t. d. kartöflur, ef á að sjóða
þær flysjaðar).
32
HÚSFREYJAN