Vera


Vera - 01.12.1996, Side 52

Vera - 01.12.1996, Side 52
Mál og menning kynnir • Forlagið kynnir • Mál og menning kynnir • Forlagið kynnir Regnbogi í póstinum efitir Gerði Kristnýju Hér er nýr tónn sleginn í íslenskum kvennabókmenntum, hinn íslenski kventöffari, viðkvæmur og háðskur, arkar fram á sviðið. Aðalsöguhetjan heldur út í heim í leit að sjálfsmynd - eða fjöri. Frá Reykjavík til Kaupmannahafnar og Parísar — sagan brunar áfram hispurslaus, ljóðræn og bráðfyndin. Valsar úr síðustu siglingu eftir Lindu Vilhjálmsdóttur „En það er ekki hægt að vera á móti sjómannavölsunum til lengdar, ... maður fellur fyrir þeim aftur og aftur," segir Linda í bráðskemmtilegum inngangi að þessari ljóðabók. Hún tengir valsana síðan siglingu sem hún fór í til Frakklands og heldur áfram: „Mig langaði að segja frá þessari siglingu, strákunum og lífinu um borð. Og það gerði ég.“ Lúðrasveit Ellu Stínu eftir Elísabetu Jökulsdóttur Örsögur Elísabetar fóru víða í Galdrabók EIlu Stínu. Hér heldur hún áfram ferðalaginu um ókunna staði og forn minni. Saga og ljóð tvinnast saman í margbreytilega harmóníu þar sem tónar lúðrasveitarinnar verða engir eftirbátar galdranna: glaðlegir, einmanalegir, mishljóma og undurfallegir. Spegill undir fjögur augu efitir Jóhönnu Sveinsdóttur Þegar Jóhanna lést í maí síðastliðnum lét hún eftir sig fullbúið handrit að þessum ljóðabálki. Ljóðin eru margslungin, Jóhanna skapar stemmningu sem á engan sinn líka og húmor og írónía er aldrei langt undan. Aðalviðfangsefni bálksins er þó tungumálið sjálft og undir niðri leynist sterkur ljóðrænn strengur. Kvennafræðarinn eftir Miriam Stoppard Allt sem þig langaði að vita um sálarlff og líkama konunnar en nenntir aldrei að leita að í mörgum bókum. Þetta er einkar aðgengileg og fræðandi bók um líf konunnar frá æsku til elli. Guðrún Svansdóttir þýddi. DR MIRIAM STOPPARD KVENNA FRÆJÐARINN. LEIÐARVISIR >UM LÍFIÐ ÍV , TlLFINNINGAR/* . Frjósemi AldursskeiðM L H EIL B RI G Ð I Tt li ! Líkamsbygcing 1 FegurðíLífsstIll * j Kynlíf tL-Hreysti Húm~^Loc Hár : SÁLARLÍF • NÆRING Líffarafraði Undir huliðshjálmi eftir Dóru S. Bjarnason Hér er sagt frá skini og skúrum í lífi mæðginanna Dóru og Benedikts um fimmtán ára skeið. Þó einkum baráttu móðurinnar fyrir að búa syni sínum mannsæmandi líf því hann er enginn venjulegur drengur heldur mikið fatlaður. Hér er sögð saga sem er háalvarleg, en skrifuð af fjöri og kímni. S A G A N A F B E N E D l Dagbók steinsins eftir Carol Shields Hér segir frá kanadískri konu, lífi hennar frá fæðingu til dauða, lífi sem við fyrstu sýn virðist harla venjulegt en reynist vera einstakt, leyndardómsfullt og umfram allt heillandi. Höfundi tekst að skrifa spennandi sögu sem grípur lesanda strax á fyrstu síðum enda varð bókin fljótt metsölubók og Carol Shields hlaut fyrir hana hin frægu Pulitzer-verðlaun árið 1995. Ólöf Eldjárn þýddi. iv/ :(<vhííiú , '•< -</. ■ -■ v - , GARDI. SHIKI.QS. 'í' fi-V'm ; ii. iR; Mál og menning FORLAGIÐ Hamingjan er huliðsrún eftir Bodil Wamberg Þessi saga er um einn frægasta gáfumann Danmerkur, Georg Brandes, og skáldkonuna sænsku, Victoriu Benedictsson, sem elskaði hann hömlulaust og fórnaði öllu á altari þeirrar ástar. Þetta er mögnuð saga um ást í meinum sem hrærir ærlega upp í tilfinningum lesandans. Björn Th. Björnsson þýddi. Mál og menning kynnir • Forlagið kynnir • Mál og menning kynnir • Forlagið kynnir

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.