Vera - 01.12.1998, Síða 4
Efnisyfirlit
Hverju trúa konur? B
Trúarlíf og trúarleit er eitt af því persónulegasta hjá hverri manneskju og margt fólk á erfitt
með að koma trú sinni í orð. Vera bað fimm konur að glíma við það, en þær hafa allar velt
þeim málum mikið fyrir sér. Þetta eru þær séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Kristbjörg Krist-
mundsdóttir, Ása Hlín Svavarsdóttir, Guðrún Birna Hannesdóttir og Valgerður H. Bjarna-
dóttir.
Fátækt á 21. öldinni 1B
Ávarp suður-afriska rithöfundarins Nadine Gordimer sem hún flutti á Degi baráttu til út-
rýmingar fátækt, 17. október 1997. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur helgað einn
áratug baráttu gegn fátækt og gert orðin Útrýming fátæktar að kjörorði hans. Þau orð telur
Gordimer vera stríösyfirlýsingu og segir að aldrei áður hafi verið látin í Ijósi svo sterk trú á
mannkynið og því sem það getur áorkað.
Það borgar sig að bæta kjör folks 20
Viðtal við Hörpu Njáls félagsfræðing og umsjónarmann innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs
kirkjunnar. BA ritgerð Hörpu Fátækt í velferðarsamfélagi hefur vakið verðskuldaða athygli
og í mastersnámi sínu ætlar hún að fara dýpra ofan i saumana á því af hverju það eru
alltaf sömu hóparnir sem eru dæmdir til fátæktar.
Sagan af Gústaf sem býr í landi hins öfugsnúna 22
Smásaga eftir Sóleyju Stefánsdóttur sem stundar nám í guðfræði og kynjafræðum við HÍ.
Líf Gústafs getur verið erfitt enda er konan hans, hún Nína, önnum kafin forstjóri sem
stundum beitir Gústaf ofbeldi og tekur litið tillit til hans í kynlífi. Teikningar eftir Áslaugu
Jónsdóttur.
Kvenskörungar Heimspekiskólans 24
Mikilvægt er að börn læri að rökræða og hugsa heimspekilega, það geta þau m.a. lært í
Heimspekiskólanum. Kristín Heiða Kristinsdóttir leit inn á kennarafund í skólanum og
komst að því að um þessa mikilvægu kennslu sjá eingöngu konur.
Strokkvartettinn Anima 28
f stað þess að gróðursetja plöntur hjá borginni í sumar, fengu stelpurnar i Animu laun frá
Hinu húsinu til að æfa tónlistarprógram. Þær voru duglegar að markaðssetja sig og hituðu
m.a. upp á tónleikum hljómsveitarinnar Lhooq. Það kom mörgum á óvart enda er ungt fólk
óvant því að hlusta á klassíska tónlist við slík tækifæri.
íslensk erfðaprinsessa 30
( mörg ár sigldi Unnur Jökulsdóttir um öll heimsins höf á skútu og kynntist framandi þjóð-
um. En haustiö 1996 gerðist hún aöstoðarmaður forstjóra íslenskrar erfðagreiningar og
hefur tekið þátt í ævintýrinu sem uppbygging þess fyrirtækis er. Friðrika Benónýsdóttir
ræddi við Unni um líf hennar og starf.
Konan í allri sinni dýrð 38
Viötal sem Guðrún Dís Jónatansdóttir tók við Auði Ólafsdótur myndlistarkonu og mynd-
menntakennara. Auður hélt sýningu á Kvennasögusafninu sl. vor og sýndi eingöngu
„konumyndir" - myndir sem eiga að túlka upplifun konunnar á frjóseminni.
Hallærislegt að tala um jafnrétti kynjanna 42
Störf í nemendáfélögum framhaldsskóla er góð þjálfun fyrir stjórnmálastörf í framtiðinni.
En því miður eru stelpur í minnihluta í stjórnum félaganna þó þær séu virkir þátttakendur i
félagslífi. Brynhildur H. Ómarsdóttir og Sigurlina V. Ingvarsdóttir ræddu við Eyrúnu Magn-
úsdóttur úr Kvennaskólanum og Funa Sigurðsson úr MS.
Ungir, íslenskir fatahönnuðir 44
Nemenaur i fataiðn i Iðnskólanum i Reykjavík læra að sníða og sauma flíkur og námið er
strangt. f myndaþætti sem Berglind Hlynsdóttir tók eru flíkur sem nokkrir nemendur hafa
hannað og saumað sjálf.
Karlstýrt lýðræði Miðaustur-Evrópu 52
í siðustu Veru byrjaði Rósa G. Erlingsdóttir stjórnmálafræðingur í Berlín að segja frá því
hvaða áhrif breytingar á stjórnarháttum i Póllandi, Tékklandi og Ungverjalandi hafa haft á
konur. f þessari grein heldur hún því áfram og segir frá pólitfsku andófshópunum sem
komu þeirri keðjuverkun af stað sem leiddi til hruns járntjaldsins.
Bíó 51 Dagbók femínista 5B Tónlist 60
Bækur 57, G4, GG
Forsíðumyndin er
Strandarkirkju og vfs-
ar til þemaefnisins
Hverju trúa konur?
v ra
tímarit um konur
og kvenfrelsi
6/98-17. árg.
Austurstræti 16,
101 Reykjavík
s: 552 2188
og 552 6310
fax: 552 7560
vera@centrum.is
http://www.centrum.is/ver2
útgefandi
Samtök um kvennalista
ritnefnd
Agla Sigrfður Björnsdóttir,
Brynhildur Heiðar- og
Ómarsdóttir
Annadis G. Rúdólfsdóttir,
Heiða Jóhannsdóttir
Jóna Fanney Friðriksdóttir.
Ragnhildur Helgadóttir,
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir,
Sigrún Erla Egilsdóttir
Sigurlína V. Ingvarsdóttir
Sólveig Jónasdóttir,
Vala S. Valdimarsdóttir
ritstýra og ábyrgðarkone
Elisabet Þorgeirsdóttir
skritstofustýra
Vala S. Valdimarsdóttir
útlit og tölvuumbrot
Matthildur Björg
Sigurgeirsdóttir
Ijósmyndir Bára o.fl.
auglýsingar
Áslaug Nielsen
sími 533 1850
fax 533 1855
lilmuvinna
Offsetþjónustan hf.
prentun
Grafík
plastpökkun
Vinnuheimilið Bjarkarás
©VERA ISSN 1021-8793
ath. Greinar í Veru eru
birtar á ábyrgð höfunda
og eru ekki endilega
stefna útgefenda.