Vera


Vera - 01.12.1998, Qupperneq 25

Vera - 01.12.1998, Qupperneq 25
Fleiri strákar í hópi nemenda f skólanum er strákum og stelpum blandað saman í hópa því það er lögð áhersla á sam- töl á milli kynjanna frá upphafi. Krökkunum er skipt í hópa eft- ir aldri, yngstu börnin eru sér og svo eru teknir saman einn eða tveir árgangar. Þegar litið er yfir línuna þá virðist vera meiri aðsókn stráka í skólann heldur en stelpna, en það telur Hreinn að segi meira um for- eldrana en börnin. í framhaldi af þessu sagði Kolbrún okkur frá skemmtilegri umræðu um karla og konur sem hún átti með 5 og 6 ára krökkunum í sínum hópi. „Það er svo skemmtilegt hvað lítil börn eru með sterkar og ákveðnar hugmyndir, þau taka bara af skarið. Strákarnir voru t.d hæst ánægðir með að vera strákar og vildu ekki vera neitt annað, en eina stelpan f hópnum var alveg til í að prófa að vera strákur. Það fannst mér dálítið merkilegt. Svo reyndi ég að fá þau til að velta fyrir sér muninum á kynjunum og spurði hvort konur gætu eitthvað sem karlar gætu ekki. Ég var að vonast eftir að þau segðu að konur gætu fætt börn, en niðurstaða þeirra var að konurnar kynnu að sauma en karlar ekki!“ Okkur fannst þó nokkuð sláandi að börnin hefðu þessar hugmyndir um kynin nú á dög- um jafnréttis en Kristín Þóra benti okkur á að þetta væri bara raunveruleikinn, þetta væri það sem börnin hefðu fyr- ir augunum á sér. Þær stöllur voru sammála um að börn væru óborganlegir snillingar og Kristín kom með dæmi því til staðfestingar: „í einum tímanum komst ég ekkert að til að lesa sögu dagsins því krökkunum lá svo margt á hjarta. Þau komust á algjört flug og aliur tíminn fór í að ræða eftirfarandi spurningar og vangaveltur sem runnu upp úr þeim: Heldur heimurinn alltaf áfram að snúast? Er eitthvað fyrir utan heiminn? Kannski erum við á dótahnetti fyrir risa. Kannski erum við hugsun einhvers annars. Hver er tilgangur lífsins? Hvernig varð heimurinn til? Og ef það varð fyrst sprenging, hvaðan kom þá efn- ið í það sem sprakk? Hvaðan kom fyrsta efnið? Ef Guð skapaði það, hvaðan kom hann þá? Það er ekki að spyrja að vangaveltum barnanna, þær slá öllum jarðbundnu hversdagshugsunum okk- ar fullorðnu við. Og þá kallaði þyrst afkvæmi mitt á mig [ gegnum píptæki á miðjum fundi og ég skautaði heim, sannfærð um að skólinn sem þessar kjarn- orkukonur kenndu við skilaði nemendum sínum vel undirbúnum til að takast á við Kfið. Þegar ég skömmu síðar horfði í augu sonar míns sem svalg ylvolga móðurmjólkina úr brjóstum mínum gat ég ekki stillt mig um að spyrja hvort hann langaði ekki til að koma kunnáttuleysi móður sinnar í saumaskap á framfæri í Heimspekiskólanum þegar hann yrði svolítið stærri ■ er sterkur leikur GJÖFIN SEM LIFNAR VIÐ! í ÞJOÐLEIKHUSIÐ s. 551 1200 Bruðuheimili 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.