Vera - 01.12.1998, Page 34
ur að taka hundrað prósent ábyrgð á öllu, vera við-
búin vondum veðrum og með nákvæmt skipulag
um það hvaða hlutverki hver gegnir ef upp kemur
neyðarástand. Ég held að margir gleymi að taka
þetta með í reikninginn í öllu þessu tali um frelsi."
En er það ekki hið fullkomna frelsi að vera ekki
komin uppá einn eða neinn annan en sjálfa þig?
„Jú, reyndar. En það er ekki andstæðan við ábyrgð
heldur þvert á móti, þannig að það er ekkert stökk
fyrir mig að vera í starfi þar sem ég ber mikla á-
byrgð.“
tækifæri. Þau eru algjörlega heilluð af landinu og ekki
síður fólkinu sem við hittum. íslensku sveitafólki sem
getur rætt um álfa og huldufólk og heimsbókmenntir og
alheimsstjórnmál, allt í sömu andránni og af sömu þekk-
ingu. Og þegar við vorum á leiðinni til baka var komið
gjörningaveður og vegirnir lokuðust jafnharðan að baki
okkar einsog fyrir álög. Þau eru bergnumin! Það er svo
gaman að upplifa þessa hrifningu útlendinga af landinu
en það gerir mann líka alveg æfan yfir þeirri skammsýni
sem ríkir hér í umhverfismálum. Að stjórnmálamenn
skuli láta sér detta í hug að leggja þetta land undir stór-
iðju er glæpur. Og grátbroslegt líka að það eina sem
heldur aftur af þeim við það skuli vera óttinn við að þá
skoðanir og er ekkert hrædd
við að láta þær í Ijós. Og mér
gremst þessi þröngsýni sem er
svo ríkjandi hérna, þessi ill-
mælgi um náungann og þessi
ótti við að einhver sé að gera
eitthvað sem gæti aflað honum
álits og tekna. Það eru allir svo
óskaplega hræddir við að
missa spón úr aski sínum að
það hugsar enginn um þann á-
vinning sem þjóðin hefur af
hlutunum til lengri tíma litið.“
Ég myndi vilja vera karlmaður í nokkra daga, bara til að prófa hvernig
það er. En þeir karlmenn sem ég hef rætt þetta við hafa ekki nokkurn
áhuga á því að prófa að vera konur
Það er komið fram yfir miðnætti og Unnur að leggja
af stað í ferðina eldsnemma morguninn eftir, en
enn eigum við margt órætt og ákveðum að hittast
aftur að viku liðinni þegar hún kemur til baka.
„Þetta var frábær ferð.“ Unnur kemur á móti
mér í anddyri Hótel Borgar í þykkri ullarpeysu og
með rauðan trefil og lítur út einsog ímynd hreysti
og lífsgleði. Við sökkvum ofan í dumbrauða hæg-
indastóla og pöntum, en Unnur getur ekki hætt að
tala um ferðina.
„Ég er búin að selja ísland rækilega í þessari
ferð. Bæði blaðamaðurinn og Ijósmyndarinn eru
yfir sig hrifin og ákveðin í að koma aftur við fyrsta
hætti ferðamenn að koma hingað. Það er svo sem ágætt
að eitthvað haldi aftur af þeim, en það á bara að vera öll-
um Ijóst að hálendið og önnur ósnortin landsvæði eiga
að vera þjóðgarður, sameign okkar allra sem allir eiga að
hafa rétt til að njóta. Þetta er sálin i okkur og ef við eyði-
leggjum hana getum við ekki haldist við í þessu landi.“
Þú talar einsog stjórnmálamaður ætti að tala. Ertu á
leiðinni í pólitíkina?
„Nei, nei, nei. Ég get ekki sætt mig við að tilheyra ein-
hverjum flokki og mega bara hafa eina stefnu, í stað
þess að taka alltaf skynsamlegustu ákvörðunina í hverju
máli fyrir sig, án tillits til þess hvað flokkslínan segir. Ég
er ekki pólitísk í þeim skilningi en ég hef mjög ákveðnar
001998
Krabbarnejnsfélagsins
Opel Astra 1600 Station Club,
sjálfskiptur, áigeið 1999.
Verðmæti 1.700.000 kr.
1 Bifreið eða greiðsla upp
i ibúð.
Verðmæti 1.000.000
156 Úttektir hjá ferðasl
eða verslun.
Hver að verðma
100.000 kr.^
158 skattfrjálsir vinningar
að verðmæti 18,3
milljónir króna
Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins
er stuðningur við mikilvægt forvarnarstarf
Upplýsingar um
vinningsnúmer i
símum 562 1516
(símsvari),
562 1414 ogá
heimasíðu
Krabbameins-
http://wwv/.
krabb.is/happ/
t rkd &
1 -- i
Nú ertu að tala um and-
stöðuna við gagnagrunninn,
eða hvað?
„Já, meðal annars. Sú and-
staða snýst öll um þrönga sér-
hagsmuni, þótt reynt sé að
skýla sér á bakvið umhyggju
fyrir einstaklingum. Það er með
ólíkindum að fólki skuli vera
talin trú um að það eigi að fara
að opinbera sjúkrasögur þess
undir nafni. Þetta snýst meðal
annars um það að skrásetja
sjúkdóma og reyna að finna út
hverjir eru í hættu, svo hægt sé
að grípa til fyrirbyggjandi að-
gerða og finna nýjar aðferðir til
að ráða niðurlögum sjúkdóma.
Þetta er auðvitað einföldun hjá
mér, en ég skil bara ekki hvaða
hvatir liggja að baki þessum
andróðri.1'
Ég vil tala meira um skoð-
anir þínar, ertu feministi?
„Úff, það veit ég ekki. Auðvitað
hef ég fylgst með kvennabar-
áttunni alveg frá barnæsku.
Svava föðursystir mín var iðin
við að fræða mig um ójafnrétt-
ið í þjóðfélaginu þegar ég var
unglingur og þegar ég var í
Kaupmannahöfn var kvenna-
hreyfingin þar mjög öflug og
maður hreyfst með. En ég hef
aldrei verið virk í baráttunni,
skil ekki hvernig það að vera
kona á sjálfkrafa að gera mann
fylgjandi ákveðnum viðhorfum
og skoðunum. Það eru svo
margir aðrir þættir sem þarf að
taka tillit til.“
Skiptir þá engu máli hvors
kyns maður er?
„Jú, jú, það skiptir öllu máli! En
mér finnst að við ættum að
gera meira af því að setja okk-