Vera - 01.12.1998, Blaðsíða 57
sendan langan lista yfir konur í samtökunum sem eru í svipuðum við-
skiptum og þær konur sem fóru til írlands, auk vilyrðis um frekara
samstarf í framtíðinni ef óskað væri eftir því. Haft var samband við
nokkrar konur í samtökunum á meðan á írlandsdvölinni stóð og
tengsl Félags Brautargengiskvenna og Network Ireland verða vænt-
anlega efld frekar á næstu mánuðum.
Eiginleikar eigenda og stjórnenda smárra fyrirtækja
The Irish Business and Employers Confederation - IBEC (trska fyrir-
tækja- og vinnuveitendasambandið) bauð Brautargengiskonum til
fundar, þar sem fjallað var um niðurstöðu rannsóknar á eiginleikum
og hæfileikum eigenda og stjórnenda smá fyrirtækja, auk þess sem
starfsemi SFA var kynnt. Liam Doherty frá IBEC bauð Brautargengis-
konur velkomnar og sagði lauslega frá tilgangi og starfsemi IBEC.
Laura Phelan vinnusálfræðingur frá ráðgjafarfyrirtækinu Saville &
Holdsworth Ldt fjallaði um niðurstöður rannsóknarinnar „A Bench-
mark of Personal Excellence for the Owner-Manager“. Markmið
rannsóknarinnar var að styðja við og ýta undir stofnun lítilla og með-
alstórra sprotafyrirtækja á írlandi sem rekin eru af eigendum þeirra,
með því að kanna hvaða eiginleika er nauðsynlegt að hafa og rækta
hjá eigendum og stjórnendum fyrirtækjanna til að fyrirtækin blómstri.
Reynsla íranna er sú að flest fyrirtæki sem ekki eiga framtíð fyrir sér,
leggi upp laupana innan þriggja ára. Þau fyrirtæki sem komast yfir
þennan þriggja ára þröskuld koma hinsvegar yfirleitt til með að ganga
vel. Rannsóknin beindist því annars vegar að eigendum / stjórnend-
um smárra og millistórra fyrirtækja sem voru yngri en þriggja ára og
hinsvegar fyrirtækja sem voru orðin eldri en þriggja ára, í þeim til-
gangi að finna út hvað það væri í stjórnunarháttum eigenda / stjórn-
enda eldri fyrirtækjanna sem tryggði lífvænlegan vöxt og viðgang
fyrirtækja þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í Ijós að eig-
endur / stjórnendur smárra fyrirtækja þurftu að hafa góða hæfileika á
mun fleiri sviðum en eigendur/ stjórnendur millistórra og stórra fyrir-
tækja. Nokkrir eiginleikar eru þó mikilvægari en aðrir og því nauðsyn-
legt fyrir eigendur / stjórnendur að rækta þá eiginleika.
Þessir eiginleikar eru:
Staðfesta til að ná settu markmiði.
Þekking á markaðnum / samkeppnisaðilum og hæfileiki til að koma
auga á hagkvæm viðskiptatækifæri.
Eiga og viðhalda framtíðarsýn fyrir sjálfa sig og fyrirtækið.
Geta sett mál sitt fram á skýran og skiljanlegan máta, jafnframt þvi'að
vera góður hlustandi.
Geta skilið aðalatriði frá aukaatriðum og tekið ákvarðanir til stutts og
langs tíma byggðar á fyrirliggjandi upplýsingum.
Innsæi í viðhorf starfsmanna og viðskiptamanna, þannig að auðvelt sé
að byggja upp og viðhalda samböndum sem gefa af sér til beggja að-
ila.
Sannfæringarkraftur.
Staðfesta til eigin framþróunar. Stöðugt að læra af reynslunni.
Skilgreina og sækja nauðsynleg námskeið til að byggja upp eigin
þekkingu.
Ætla einkalffinu og fjölskyldunni nægan tíma.
Fyrirlestur þessi var afar athyglisverður að mati Brautargeng-
iskvenna, enda flestar undir þriggja ára markinu með sín fyrirtæki og
mikill ávinningur í því að átta sig á því hvað máli skiptir til að komast
farsællega í gegnum þennan byrjunarfasa.
Að styrkja smáfyrirtæki
Patricia Callan frá The Small Firms Association - SFA hélt að lokum
erindi um þjónustu SFA við írsk smáfyrirtæki. Smáfyrirtæki eru skil-
greind sem fyrirtæki með 50 starfsmenn eða færri. SFA býður upp á
mjög fjölbreytta þjónustu, svo sem varðandi starfsmannamál, vinnu-
umhverfi, fjármál, gæði, útgáfumál o.fl. auk þess að vera smáfyrir-
tækjum innan handar við að skapa viðskiptatengsl og útvega þeim
hagstæð kjör á tryggingum, bankaviðskiptum o.fl. Einnig eru sam-
tökin mjög virk í að afla smáum og meðalstórum fyrirtækjum braut-
argengis hjá stjórnvöldum og Evrópusambandinu.
Að loknum fundinum hjá IBEC héldu Brautargengiskonur til skrif-
stofu Evrópusambandsins, þar sem þeim hafði verið boðið til mót-
töku í tilefni af upphafi rannsóknar á hlutdeild kvenna í styrkjum á
vegum Evrópusambandsins og stöðu kvenna á atvinnumarkaðinum
á írlandi og í stjórnum og ráðum. Fulltrúar frá National Women’s
Council of Ireland, ásamt Padraig Flynn umboðsmanni atvinnu- og
félagsmála á írlandi, kynntu verkefnið. Einnig gafst Brautargengis-
konum tækifæri til að ræða við þessa aðila að kynningum lokinni.
írlandsferðin var afar vel heþþnuð og fróðleg og mun án efa ýta
undir og styðja íslenskar athafnakonur til útrásar. í framhaldi af þess-
ari ferð hyggst Félag Brautargengiskvenna vinna frekar úr þeim upp-
lýsingum sem þar var aflað og hagnýta þær eftir bestu getu hérlend-
is. Meðal annars er áætlað að félagið standi fyrir fundum og nám-
skeiðum sem tengjast smáfyrirtækjum sérstaklega og fyrirtækjum
sem íslenskar konur eiga og reka ■
eftir Kristínu Ómarsdóttur
Ósk
Daginn sem ég vakna ekki
óska ég mér þess
að einhver verði nálægt.
Einhver sem þekkir Ifkama minn.
Nýja Ijóðabókin hennar Kristínar Ómarsdóttur
ber öll aðalsmerki höfundar síns. Hér er kímni,
vangaveltur um ástina, kynlífið og dauðann. Ó-
vænt hugmyndatengsl og óvenjulegar niður-
stöður. Það er hin ástfangna kona sem er í að-
alhlutverki, en ástin er hverful og hinir elskuðu
sífellt að kveðja, án þess þó að það valdi mikl-
um hjartasorgum því ástin er innan í manneskj-
unni sjálfri og hefur lítið með annað fólk að gera.
Líkaminn er musteri ást-
arinnar, en hann er álíka
fyrirgengilegur og ástin
er djúp. Og einsog í öll-
um góðum bókum eru
þau skötuhjú ástin og
dauðinn órjúfanlega
tengd og geta hvorugt
án hins verið. Samt er
hér ekkert myrkur, eng-
inn ótti, engin sorg, að-
eins gleði og lífsnautn,
en undir liggur Ijúfsár
tregi sem smýgur inn í hjarta lesandans og fyllir
það í senn einmanaleika og fögnuði yfir því að
vera á lífi, að vera hluti af hringrás náttúrunnar.
Ég minnist þess ekki að hafa komist í eins
annarlegt og upphafið ástand við lestur nokk-
urrar bókar. Maður sekkur inní hana og sogast
burt frá ísgráum raunveruleikanum inní heim lita
og hlýju og dimmblárra nátta með sítrónubragði
og sætri dýfu. Það er þroskað Ijóðskáld sem hér
heldur um stjórnvölinn og Ijóðin eru öguð og
orðfá en segja þó meira en mörgum tekst í fjög-
urhundruð síðna skáldsögum. Tvímælalaust
besta verk Kristínar og full ástæða til að mæla
með því við alla sem kunna að meta góðan
skáldskap. Já, og alla hina líka, sérstaklega þá
sem halda því fram að Ijóðlistin sé í andaslitrun-
um. Því það sem þessi Ijóð segja okkur umfram
allt annað er: Ég elska - þess vegna er ég - jafn-
vel þótt ég sé dáin.
Friðrika Benónýsdóttir
57