Ritmennt - 01.01.2002, Page 190

Ritmennt - 01.01.2002, Page 190
GAGNFRÆÐINGURINN RITMENNT Sumarstörf manna hér á landi Með vorinu leggja allir af stað, til að leita sér bjargar. Kaupstaðarbúarnir leita inn til sveita eða út til stranda, í norður eða suður, austur eða vestur. - Sumir og sumar í heyskapinn til bændanna, aðrir og aðrar í blessaða síldina og þvíumlíkt. Allir leggja af stað fullir af von, - von um góðan afla, og svo koma þeir aftur að hausti misjafnlega heppnir, sumir eins og hermað- urinn hjá Anderson, með elcki eingöngu vasana fulla af peningum, heldur einnig hattinn og stígvélin. Aðrir koma snauðir og daprir - síldin brugðist eða óþurkar spilt heyskapnum, þess vegna lítið kaup verið goldið - já, ýmislegt orðið til ama. Ég get fátt sagt um störfin við fiskveið- arnar. Þessvegna held ég, að það væri réttara að ég brygði mér upp í sveit, því um sveita- störfin kann ég þó ögn að segja. Ég ætla að komast í fylgd með góðum og gildum kaupstaðarbúa, sem er ráðinn upp á 35 krónur um viku hverja, á góðum bæ, - við skulum segja t.d. austur í Flóa. Hann leggur af stað skömmu fyrir sláttar- byrjun, á hesti sem hann hefur fengið með ferðamönnum að austan. Hann er all-laglega klæddur, við megum vafalaust gera ráð fyrir, að hann sé með höf- uðið skorðað af háum, snjóhvítum flibba - það minnir samt Flóamennina á gapastokk hef ég heyrt. Svo ferðast hann dagfari og náttfari, því þetta er áhugamaður og ráðinn upp á 35 krónur, um viku hverja, eins og við mun- um. Eftir tvö dægur, hefur hann komist á bæ- inn, og hann sér, að það er satt, þetta er allra reisulegasti bær. Svo sefur hann nú rólegur fyrstu nóttina. Um morguninn vekur bóndi hann, tekur hann með sér út í skemmu og fær honum orfið með ljánum í, leiðir hann út í hlað- varpann - því altaf er byrjað að slá í hlað- varpanum - og nýji kaupamaðurinn byrjar að „þenja sig". Það brakar í orfinu og grasið hrynur niður, - hann horfir með velþólcnun á múgana, sem óðum koma, - og svo slær hann og slær, og bóndinn horfir með aðdáun á nýja kaupamanninn. Við skulum nú gera ráð fyrir, að á bænuni sé ung og lagleg lcaupakona. Kaupamaðurinn tekur brátt að gefa henni auga, - svona eins og gengur, og það er elckert tiltökumál. Það fer hægt í fyrstu, og hann sjálfur er reyndar ekki viss um að það ætli að verða neitt al- varlegt, en að lokum kemst hann þó að því, að það er ekki tórnur flysjungsskapur hjá sér. En hann er heiðarlegur maður, og vill vita fyrir víst, hvort sér sé alvara, svo að það aldrei komist svo langt, að hann dragi stúlk- una á tálar. Og hann finnur t.d. að á hverj- um morgni, þegar hann gengur út á teiginn, verður hann miklu frekar var við stýrurnar í augum sínum og lúann í limum sínum, þegar hún er eklci með. Eða þegar hann er að slá. Hvað honum finnst grasið lítið, og ljár- 186
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.