Vera - 01.04.1999, Síða 37
stöðinni Punktinum, byggir að hluta á göml-
um íslenskum hefðum, að hluta á framandi
hefðum og að hluta á sköpunargleði einstak-
lingsins. Það er allt í senn sjálfstyrkjandi,
hagnýtt og skapandi.
* í gegnum myndlistina næst að tjá bæði það
sem augað sér og tilfinningarnar nema.
Tölvurnar brjóta múra einangrunar, van-
þekkingar og óöryggis.
* Skapandi skrif opna skáldinu leið, eru sjálf-
styrkjandi og skemmtileg, en líka leið til hag-
nýtrar tjáningar.,
Spunadansinn losar jafnt um vöðvahnúta
sem feimnishnúta. Hann er skapandi og
styrkir. Býr líkama og sál undir átök lífsins.
Draumavinna gefur konunum innsýn í al-
heimstáknmál, jafnt sem sitt eigið afar per-
sónulega innra skilaboðakerfi tilfinninga, lík-
ama og hugar.
Leikræn sjálfstyrking vinnur með einstak-
linginn og hópinn I senn og opnar dyr áður
rammlokaðra herbergja.
Námsþátturinn heimspeki, saga og trú
opnar leiðir inn I eigin hugarheim og að eigin
rótum, en einnig til þeirra sem byggja aðra
staði, aðra tima, aðra menningu.
í umræðunum um heilsu kvenna skapast
skilningur fyrir mikilvægi sjálfsvirðingar, auk
virðingar fyrir öðrum og fyrir umhverfinu.
* I gegnum námsþáttinn Peningarnir og lífið
hefur mörg konan í fyrsta sinn fengið góða
yfirsýn yfir fjárhagsleg réttindi sín og skyldur
í kerfinu, auk þess sem krónur sparast.
Lífsvefurinn, sjálfstyrkingarnámskeið fyrir
konur, býður upp á leiðir til að svara spurn-
ingunni: Hver er ég? sem er nátengd spurn-
ingum á borð við Hvaðan kem ég? Hvert
stefni ég? og Hvað vil ég?
í Menntasmiðju kvenna lærist lífsleikni og
hún smitar út frá sér á áhrifaríkan hátt, því
þessar konur eiga maka, börn, systur, bræð-
ur, mæður, feður, vini. Og þar sem þetta nám
snýst um lífið sjálft og er mótað að og af
þeirra skapi, þá er auðvelt að miðla því. Ár-
angur er hægt að mæla með ýmsu móti, þótt
sumt sé ómælanlegt. Af tuttugu nemendum
á haustönn 1998 eru nú fimm í framhalds-
námi í öðrum skólum, átta hafa síðustu vikur
stundað kvöldnám í ensku í Menntasmiðj-
unni, tvær eru erlendis að huga að fram-
haldsnámi. Engin er nú á atvinnuleysisskrá,
margar búnar að finna störf sem þær eru afar
ánægðar með, aðrar eru að leita fyrir sér í
tímabundinni vinnu.
Eftir fimm ára starfsemi hefur Mennta-
smiðja kvenna náð að sá fræjum sem nú
bera ávöxt. Ekki einungis í þeim 200 konum
sem hafa útskrifast úr skólanum, heldur eru
nýir Menntasmiðjusprotar nú að spretta
fram, bæði víða um land og utanlands. Kon-
ur á Norðurlandi vestra hafa þegar hafið til-
raunastarfsemi á svipuðum grunni og byggja
á sömu hugmyndafræði; á Akranesi er búið
að vinna mikið undirbúningsstarf; og konur á
Húsavík, Egilsstöðum, ísafirði og víðar eru
fullaráhuga. Konur í Litháen, Eistlandi, Lett-
landi og Rússlandi fréttu af Menntasmiðju
kvenna á Akureyri sem dæmi um skóla sem
gefur konum færi á að stunda skapandi nám
að þeirra skapi og nú vilja þær samvinnu.
Fengist hefur norrænn styrkur til að halda
námskeið, svokallaða þjálfun þjálfaranna,
fyrir konur frá þessum löndum og græn-
lenskum, færeyskum og samískum konum
hefur verið boðið að taka þátt í því verkefni.
Þar munu þær fá í sínar hendur mennta-
smiðjuleir til að móta að sínum þörfum og
sínu skapi. í haust eru svo fyrirhuguð fram-
haldsnámskeið í sumum þessara landa,
þ.á.m. íslandi.
Að virkja eigið atgervi nemenda
Menntasmiðja kvenna er alþýðuskóli. Þar
eru ekki gerðar kröfur til formlegs heima-
náms og þar eru ekki tekin próf. Konur með
nokkurra mánaða barnaskólanám að baki
sitja þar við hlið kvenna með háskólapróf.
Á árinu 1995-96 stundaði ég háskólanám
I heildrænum fræðum I Bandaríkjunum. Það
kom mér skemmtilega á óvart að í öllum
meginatriðum var námsinnihaldið það sama
og í Menntasmiðju kvenna, einungis mun ít-
arlegra og þar voru gerðar miklar kröfur til
heimanáms og verkefna. Þar sátu konur og
karlar hlið við hlið og námið var sniðið að
þörfum beggja kynja. í framhaldi af því
stundaði ég nám í trúarheimspeki kvenna
við sama skóla og þar mótuðum við nám-
ið til hins ítrasta að okkar skapi. Það er
hægt.
Það er mikilvægt - ekki síst fyrir okkur
konur sem höfum svo lítið mótað mennta-
kerfið að okkar skapi en höfum hreint
ótrúlega aðlögunarhæfni - að hafa í huga
eftirfarandi hvatningarorð úr Gullnu töfl-
unum, niðurstöðum Þankatanksins:
„Nám felst ekki eingöngu í að afla sér
þeirrar hæfni sem krafist er I þjóðfélagi í
örri þróun. Að búa okkur undir aðlögun og
gera okkur hæf til að takast á við breyt-
ingar. Það felst fyrst og fremst I að taka
þátt I breytingunum, þroska eigið atgervi
og búa sig undir að hafa áhrif á breyting-
arnar og ráða hvaða stefnu þróunin tekur.
Öll kennsla og allt nám þarf að vera þess
eðlis að það efli frumkvæði einstaklings-
ins, sjálfstyrk og trú á eigið gildi. Grund-
vallarkrafa er að námið virki eigið atgervi
nemendanna og styrki félagslegt tengsla-
net þeirra. Á þeirri kröfu verður skipulag
samfélagsins að byggja, starfsemi fyrir-
tækjanna og menntastofnanirnar og að-
ferðafræði þeirra.” (Gullnar töflur í grasi,
1995, bls. 15).
Helmingur þeirrar ábyrgðar hvílir I kjölt-
um okkar kvenna.
Leitarðu svara?
Vantar þig upplýsingar um þjónustu,
rekstur eða stjórnkerfi Reykjavíkurborgar?
Ef svo er, vinsamlega hringdu
í upplýsingaþjónustu Ráðhússins
í síma 563 2005 eða flettu uppá
heimasíðu Reykjavíkurborgar
*á Internetinu: http://www.reykjavik.is
Reykj avflairborg
UpplýsingafuRtríá
*Á heimasiðunni má einnig finna netföng borgarstarfsmanna.
37