Vera - 01.08.2001, Side 8
Skyndimynd
Vidhorf til kláms
Nú í sumar gerðu tveir nemendur við Háskóla íslands viðhorfskönnun á klámi.
Þorgerður Einarsdóttir félagsfræðingur og Irma Erlingsdóttir forstöðumaður
Rannsóknastofu í kvennafræðum, hafa umsjón með verkefninu sem styrkt er af
Nýsköpunarsjóði námsmanna og dómsmálaráðuneytinu.
Hugmyndin að könnuninni kom
upp innan Bríetanna fyrir
nokkrum árum. f samvinnu við
Irmu og Þorgerði sóttu Hildur Fjóla og
Gunnhildur um styrk til Nýsköpunar-
sjóðs, sem þær fengu nú í vor og hófust
þegar handa. Könnunin fór þannig fram
að spurningalistar voru lagðir fyrir 345
þátttakendur í 17 fyrirtækjum, stofnun-
um og félagasamtökum á höfuðborgar-
svæðinu. Heimtur voru 86%. Til þess að
hægt hefði verið að alhæfa út frá niður-
stöðum hefði þurft aðra úrtaksaðferð, en
ekki var tilefni til þess á þessu stigi.
Þessi frumkönnun hefur þó heilmikið
gildi og gefur skýrar vísbendingar svo að
auðveldara verður að gera umfangsmeiri
könnun í kjölfarið.
Gunnhildur og Hildur Fjóla fóru í fyr-
irtækin, töluðu við starfsmannastjóra og
fengu leyfi til að leggja könnunina fyrir
starfsfólkið og biðu meðan það fyllti út
spurningalistann. Móttökurnar við um-
leitunum voru góðar, bæði hjá starfs-
mannastjórum og starfsmönnum. Einn
og einn einstaklingur vildi ekki taka þátt.
Almennt tók fólk þessu þó vel og virtist
gefa sér góðan tfma til að svara. Sumir
voru sjokkeraðir vegna myndanna.
Könnunin er í formi spurningalista
sem er byggður á svokölluðu þægindaúr-
taki. Það er viðurkennt í grunnrannsókn-
um og er hentugt til að prófa hvaða að-
ferð hentar.
í spurningalistanum eru 31 spurning
um skilgreiningar á klámi, viðhorf til
þess efnis sem er til á markaðnum; hjá
erótísku verslununum, myndbandaleig-
um, bókabúðum og bensínstöðvum. Þá
var spurt um afstöðu til laganna og hvort
fólk vildi milda, herða eða á annan hátt
breyta þeim. Síðasti hlutinn er mynda-
hluti þar sem eru myndir úr klámblöðum
og af hulstrum myndbanda. En þeim
fannst mikilvægt að hafa myndir svo fólk
vissi um hvað var verið að ræða. Þær
lögðu áherslu á að fá alla listana til
baka: „ Við vildum fá þá til baka til að fá
ekki á okkur að við værum að dreifa
klámi," segja þær kímnar.
Enn er verið að lesa úr könnuninni og
heildarniðurstöður liggja ekki fyrir. Þær
verða kynntar á 10 ára afmæli Rannsókna-
stofu í kvennafræðum í október og í Veru.