Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 70
Femínískt uppeldi
Mikils metinn modur
*
g hef í nokkur ár verið mjög
upptekin að skoða hvernig
menning og umhverfi mótar
kynjaða hegðun okkar. Ég hafna öll-
um hugmyndum um að „eðli"
kvenna og karla móti kynjaða hegð-
un þar sem menningamótunin hefst
strax á fyrsta degi lífs og endar við
dauðann. Til að finna „eðli" konu
þyrfti því að rekja alla atburði, alla
lífsreynslu, samræður og allt félags-
legt áreiti sem hún hefur orðið fyrir
á lífsleiðinni og aðeins að því loknu
væri hægt að meta eðli hennar.
Þetta er auðvitað óframkvæmanlegt
verk og því tilgangslaust að nota
eðlisávísun kvenna og karla til að
útskýra ójafna stöðu þeirra í samfé-
laginu
Ég lít því svo á að við lærum að
verða konur eða karlar útfrá öllum
þeim menningar- og umhverfisáhrif-
um sem á vegi okkar verða og var
staðráðin í að vera meðvituð um
áhrifaþætti sem koma til með að
gera dætur mínar að konum. í þeirri
von um að þær samþykki ekki þá fé-
lagsmótun sem skipa konum ávallt
lakari sess í samfélaginu a.m.k. ekki
gagnrýnislaust.
Fyrir rúmu ári síðan varð ég svo
heppin að ég eignaðist fimm ára
gamlan stjúpson og sá strax framá
kjörið tækifæri að skoða félagsmót-
un stráka sem gerist auðvitað á ná-
kvæmlega sama hátt og hjá stelp-
um. Ég áttaði mig á því hvað ég
þekkti í raun sárafáa stráka og var
hæstánægð að sjá fram á úrbætur í
þeim efnum. Ég tók eftir því að ég
kom öðruvísi fram við hann en ég
gerði við jafnöldrur hans. Við náð-
um vel saman frá upphafi og mynd-
uðum náin tengsl m.a. í gegnum
reynslu mína af búsetu í fjarlægum
heimshluta, stríði og borgarastyrj-
öld sem ég hef upplifað og vegna
þeirra skordýra og meindýra sem ég
hafði kynnst. Með þessum sögum
öðlaðist ég ákveðinn virðingarsess
hjá honum og hann sömuleiðis hjá
mér fyrir að vera fróðleiksfús og
hafa sérlega frjótt ímyndunarafl.
Þrátt fyrir augljósan „malebonding"
okkar á milli reyndi ég líka eins og
sönnum femínista sæmir að upp-
fræða hann um misrétti og ójöfnuð
í heiminum, t.a.m. þær kvaðir sem
lagðar eru á stelpur og stráka að
hegða sér eftir ákveðinni forskrift.
Við pældum í af hverju strákar
mættu ekki leika með dúkkur í friði,
setja í sig tíkó eða fara í pils, klæð-
ast bleiku ef þá langar. Hann áttaði
sig á óréttlætinu og kom eitt sinn
hneykslaður heim af leikskólanum
og sagði frá því hvernig gert var grín
af vini hans fyrir að leika með
stelpu og við ranghvolfdum augum
til skiptis til að lýsa vanþóknun á
slfkri hegðun.
Eftir að sinna stjúpmóður hlut-
verki í næstum ár með tilheyrandi
femíniskum töktum fór ég að taka
eftir nokkru stórmerkilegu sem ég
tel hafi veitt mér ómetanlega vit-
neskju um hvernig félagsmótuninni
tekst með ótrúlegum árangri að
staðsetja karla ofar konum í samfé-
laginu. Eftir fjölmargar heimsóknir
til vina og vandamanna ásamt
stjúpsyni, stjúpdóttur og dætrum
mínum tók ég eftir hvað hann fékk
mun meiri og öðruvísi athygli en
dæturnar. Hvert sem við komum
lagði fólk sig í líma við að heilsa
honum með handabandi og spyrja
hann í þaula um leikskólann,
íþróttaiðkanir og um almenn lífsvið-
horf. Ég varð steinilostin því aldrei
fyrr hafði ég upplifað þetta með
dæturnar, þeim var í mesta lagi
hampað fyrir fegurð og yndisþokka
en aldrei gefinn sá einstaklingsstat-
us sem stjúpsyni mínum er veittur.
Með þessum hætti fá strákar allt frá
blautu barnsbeini, ólíkt stelpum,
þau skilaboð úr samfélaginu að þeir
séu fullgildir einstaklingar og fólki
beri að virða skoðanir þeirra og
með sama hætti viðhelst hið rót-
gróna og ævaforna veldi feðranna.
o
Aukin ökuréttindi
<fi)
OKU
^KOLINN
IMJODD
Þarabakka3
109 Reykjavík
Sími 567-0300
okusk.mjodd@simnet.is
Kennsla til allra ökuréttinda.
Bifhjólapróf og almennt ökupróf (B.réttindi).
Kennsla á leigu- vöru- og hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn.
Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. (Áfangakerfi)
Endurbætt kennsluaðstaða. Reyndir kennarar og góðir kennslubílar.
Aukið við atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga.
Einnig kennsla fyrir ensku- og taílenskumælandi fólk!