Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 31
Ásdís Sigurðardóttir (35)
sálfræðinemi og fyrrverandi íslandsmeistari
kvenna í vaxtarækt.
„í dag æfi ég allt öðruvísi en fyrir fjórtán árum
þegar ég var að keppa í vaxtarækt. Þá var áherslan
á mikinn vöðvamassa og ég þurfti að mæla ofan í
mig matinn. Ég tek þetta ekki eins hátíðlega og
áður fyrr en þá æfði ég alla daga. Núna fer ég að
meðaltali fjórum sinnum í viku í líkamsrækt í
World Class því mér finnst tækin þar mjög góð og
andrúmsloftið hentar mér vel. Ég hita mig vel
upp á stigbretti og æfi í klukkutíma í tækjasal
með léttari þyngdir en áður. Hugarfarið er allt
annað, ég æfi ekki eingöngu til að halda mér f lík-
amlegu formi heldur ekki síður til að fylla mig
framkvæmdaorku og andlegri vellíðan. Ég hef
engan áhuga á að keppa aftur því áherslurnar eru
allt aðrar í lífi mínu í dag. Núna á ég þrjú börn og
er f krefjandi námi og líkamsræktin er ekki lengur
efst á forgangslistanum. Göngutúrar og skíðaferð-
ir með fjölskyldunni koma líka oft f stað mark-
vissra æfinga. Konur eiga ekki alltaf að horfa á
vigtina því hún segir ekki allt. Þær sem grennast
of mikið missa kvenlegu línurnar sem við eigum
að vera stoltar af. Þegar við breytum fitu í vöðva
þá þyngjumst við en það er þyngdaraukning sem
er af hinu góða." „
Dag- og kvöldnámskeið í Miðbæjarskóla, Mjódd og Grafarvogi
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
Dag- og kvöldnámskeið
íslenska fyrir útlendinga 1.-5. flokkur
(í 1. flokk er raðað eftir þjóðerni nemenda)
íslenska - talflokkar fyrir útlendinga. Ritun.
Innritun hefst 13. sept.
PRÓFADEILD
Grunnnám - Fornám
Upprifjun 8., 9. og 10. bekkjar. Undirbúningur fyrir
framhaldsskólanám.
Framhaldsdeild - fyrstu áfangar kjarnagreina, sem
suma er einnig hægt að taka í fjarnámi, auk sérgreina
á heilsugæslubraut.
Innritun hefst 30. ágúst
I boði eru einnig ýmsar greinar félagsliðabrautar.
ALMENNIR FLOKKAR
Erlend tungumál, verklegar greinar.
Innitun hefst 6. september.
Upplýsingar í síma: 551 2992
Netfang: nfr@namsflokkar.is
Heimasíða: www.namsflokkar.is
Kennt verður í Miðbæjarskóla, í Mjódd Þönglabakka 4
og í Miðgarði Grafarvogi.
SVO LENGI LÆRIR SEM LIFIR!