Vera - 01.08.2001, Side 12
Mér finnst...
Viltu VERA
memm??
Rangt nafn fylgdi með pistlinum
mér finnst' í síðasta blaði.
Höfundurinn heitir Kolbrún
Sævarsdóttir. Vera biðst
velvirðingar ó mistökunum.
Margrét María Sigurðardóttir,
héraðsdómslögmaður ó Húsavík
yrir rúmu ári vaknaði ég upp við vondan
draum þegar ég áttaði mig á að frá því ég
var barn hafði ég verið upptekin af því að
undirbúa líf mitt. Fyrst ætlaði ég í mennta-
skóla, þá í háskóla, ná starfsframa, gifta
mig, eiga börn, kaupa húsnæði og svo framvegis. Allt
var þetta þáttur í því að undirbúa líf mitt. Þegar allt
þetta og miklu meira væri í höfn þá ætlaði ég að fara
að lifa lffinu. Loks opnuðust augu mfn fyrir því að það
eina sem ég á í lífinu er augnablikið núna og því ekki
seinna að fara að lifa lífinu.
í dag þegar ég vakna hef ég eitt mikilvægt markmið
að leiðarljósi, en það er að VERA f nútíðinni. Ég veit í
rauninni ekkert hvernig framtíð mín verður, en ég veit
hvernig augnablikið er. Einnig hef ég eina staðreynd og
það er að einhvern tímann mun ég deyja. Allt mun
þetta taka enda. Ég tel að raunveruleg hamingja felst í
því að VERA í augnablikinu. Þegar ég var upptekin við
undirbúning lífs míns, var ég ýmist stödd mörgum
árum í framtfðinni í draumaheimi eða í þátíðinni, hugs-
andi um einhver tækifæri sem fram hjá mér fóru. Ég var
lítið sem ekkert í nútíðinni.
Þegar augu mín opnuðust var ég að horfa á ungan
son minn valhoppandi og syngjandi. Einu sinni var ég
svona eins og hann, hvað gerðist? Af hverju hætti ég
þessu? Þá kunni ég að lifa augnablikið. Ég var í nútíð-
inni. Núna reyni ég að læra af syni mínum það sem ég
kunni einu sinni að VERA hér núna. Hefur þú reynt að
valhoppa í vondu skapi? Ég fullyrði að það er ekki
hægt. Það er ekki hægt að valhoppa og vera með hug-
ann í fortíð eða framtíð. Ég skora á þig að prufa. Ef illa
liggur á þér núna eða á öðrum tíma, stattu þá á fætur
og valhoppaðu fram og til baka og syngdu með. Sann-
aðu til, þér líður miklu betur. Þú ert í augnablikinu.
Ég reyni nú orðið að fara valhoppandi í gegnum lff-
ið, það er ekki bara skemmtilegra, heldur heilsusam-
legra og brennir mun fleiri hitaeiningum. Þegar ég lifi
augnablikið þá gleðst ég yfir því sem fyrir ber, sólinni,
rigningunni, landslaginu, flugnasuðinu og fleiru. Allt
mitt nánasta umhverfi veitir mér mun meiri gleði. Áður
var ég kannski með fjölskyldu minni, en var með hug-
ann í framtíðinni við að skipuleggja þrif á heimilinu og
fleira í þeim dúr. Gera eitthvað sem hélt mér frá því að
vera með þeim.
Mig langar til að fleiri upplifi það sem ég er að tala
um og rifji upp gömul orð sem aldrei hafa haft jafn
mikla þýðingu fyrir mig og nú VILTU VERA MEMM???
Ég skora á Arnfríði Aðalsteinsdóttur, kvenskörung með meiru til
ac(láta okkur vita fivað fienni finnst. Adda dreifsig á fertugsaldri
með mann og börn frá Húsavík til Reykjavíkur til að læra félags-
fræði. Hiin fiefur lokið námi og er komin fieim aftur.
o
Kortasalan er hafin!
Leikárið 2001-2002
Stóra sviðið:
Vatn lífsins
Anna Karenina
Cyrano - skoplegur hetjuleikur
Strompleikurinn
Jón Oddur og Jón Bjarni
Hollendingurinn fljúgandi
Frá fyrra leikári:
Syngjandi í rigningunni
Með fulla vasa af grjóti
Laufin í Toscana
Blái hnötturinn
Litla sviðið - Smíðaverkstæðið
Vilji Emmu
Hver er hræddur við Virginíu Woolf?
Viktoría og Georg
Rakstur
Veislan
Lífið þrisvar sinnum
Áskriftarkort - þitt sæti! , ^
Með áskriftarkorti tryggirðu þér þitt s*e(T1
fimm sýningar, þar af eina valsýningu
þú getur valið hvenær sem er á leikah ^
Þú getur einnig skipt út föstum sýningu
Stóra sviðinu. Verð kr. 8.750
Opið kort - þitt val! ^
Með opnu korti velur þú á hvaða ^
sýningar þú vilt fara og hvenær en nýtu
öðru leyti sömu fríðinda og hand 3
áskriftarkorta. Verð kr. 8.750
Kortagestum sem ganga frá kortum sínum fyrir 15. september
gefst kostur á að fara á hinn vinsæla söngleik Syngjandi í rigningunni
á verði venjulegrar sýningar. Kortasalan hefst 1. september.
1 Áskríftarkort, fastar sýningar
Miðasölusími: 551 1200 Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is