Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 20
Faldi sjúkdómurinn
meðferð að hætti AA? ]ú, það var
einmitt þannig sem niðurstöður rann-
sókna á árangri kvenna voru settar fram.
Það voru karlar sem framkvæmdu rann-
sóknir og þeir voru einnig meðferðarað-
ilar. Þetta ástand var hvarvetna þar sem
meðferð við alkóhólisma var í boði,
óháð menningu.
Þrátt fyrir að hin hefðbundna með-
ferð yrði síðar sveigjanlegri í garð
kvenna og að sérstakar kvennameðferðir
væru settar á laggirnar og að 12 spor AA
væru umskrifuð fyrir konur þá varð ár-
angurinn ekki sem skyldi.
Konur á batavegi
Það var árið 1975 að dr. Jean Kirkpatrick
stóð frammi fyrir þeirri staðreynd að
heilsa hennar væri á þrotum vegna
alkóhólisma. Hún var rúmlega fimmtug
og hafði doktorspróf í félagsfræði og fé-
lagsráðgjöf. Hún hafði þá þegar reynt að
styðja sig við AA samtökin og verið í
meðferð hjá geðlæknum og sálfræðing-
um. Hún hafði í raun eytt öllum fjár-
munum foreldra sinna í gagnlitlar með-
ferðir.
Hún vissi að enginn myndi ráða
hana í vinnu og sú staðreynd blasti við
að hún væri öreigi. Hvað átti hún? |ú,
hún átti reynslu. ]ean skar upp herör
gegn hinni hefðbundnu meðferð. Nálg-
un hennar á vandamálinu var í anda
feminisma. Hún gagnrýndi þær karllegu
forsendur sem AA kerfið er byggt á og
færði rök fyrir því að þetta kerfi hentaði
konum ekki. Meðferðarkerfi sem hentaði
konum yrði að vera byggt upp sam-
kvæmt reynsluheimi kvenna, stöðu
þeirra í samfélaginu, viðhorfum samfé-
lagsins til alkóhólisma kvenna og síðast
en ekki sfst út frá þeim andlegu og til-
finningalegu áföllum sem konur verða
fyrir af völdum þessa sjúkdóms. ]ean
stofnaði samtökin Women for Sobriety
sem þýða má á íslensku sem „Konur á
batavegi". Samtökin eru nú virk í a.m.k.
15 löndum og þar á meðal á íslandi. í
dag eru hér starfandi 4 hópar og 2 hópar
eru enn á brauðfótum þar sem konurnar
f þeim eru enn á því stigi að þær fara
aftur í neyslu af og til en koma aftur.
Kjarninn í hugmyndafræði WFS er
að konurnar verði sjálfbjarga, læri að
lifa með sjálfum sér og að meta eigin
hæfileika og persónuleika. Sektarkennd-
in og skömmin eru tekin sérstaklega til
meðferðar á fyrstu fundunum svo og
hlutverk kvenna í samfélaginu. Lögð er
á það áhersla að breyttur lífsstíll sé lyk-
illinn að batanum. Slíkar breytingar eru
mörgum erfiðar en þær eru nauðsynleg-
ar. Breyttur lífsstíll er svo dæmi séu tek-
in; breytt mataræði, svefnvenjur, tóm-
stundir, skemmtanir. Stjórnandi hópa
verður að hafa leyfi frá stjórnendum
samtakanna til þess að stofna hóp og
leiða hann af stað. Fundir eru hvort
tveggja hefðbundnir umræðufundir eða
í formi stuttra skemmtiferða. Það virðist
vera sameiginlegt með alkóhóliskum
konum að þær kunna ekki að skemmta
sér eða njóta augnabliksins en það geta
þær lært og slfk kunnátta fleytir konum
áfram á bataveginum. Það er ekki talið
skynsamlegt að konur setji allt sitt
traust á hópinn til langs tfma. Yfirleitt
eru konurnar í tvö ár á reglubundnum
vikulegum fundum en eftir það þá hitt-
ast þær einu sinni í mánuði eða á
tveggja mánaða fresti. Hugmyndafræðin
gerir ekki ráð fyrir því að konurnar geti
aðeins verið edrú ef þær stundi fundi
reglulega. Þær ná því að verða edrú ef
þær ná að læra á tilfinningalíf sitt og
NÝTT LÍF
1. Eg á við lífshættulegan vanda að etja sem eitt sinn réði lífi mínu.
2. Neikvæðar hugsanir eyðileggja aðeins sjálfa mig.
3. Hamingja er lífsstíll sem ég ætla að tileinka mér.
4. Vandræði ergja mig aðeins að því marki sem ég leyfi.
5. Ég er það sem ég hugsa.
6. Lífið getur verið hversdagslegt og það getur verið frábært.
7. Kærleikur getur breytt þeirri veröld sem ég lifi í.
8. Grundvöllur lífsins er tilfinningalegur og andlegur þroski.
9. Fortíðin er liðin og kemur ekki til baka.
10. Ef ég elska verð ég elskuð.
1 1. Eldmóður er dagleg iðja mín.
12. Ég er dugandi kona og hef mikið að gefa.
13. Ég er ábyrg fyrir sjálfri mér og gjörðum mínum.
læra að lifa með sjálfum sér. „Þetta er
hægt." Þá er einnig lögð mikil áhersla á
að fræðast um alkóhólisma og miðla
upplýsingum um nýjar rannsóknir. Þvf
meira sem konar vita um þennan sjúk-
dóm, því betur tekst þeim að takast á
við hann. Konurnar kynna sig ekki sem
alkóhólista heldur sem konur í bata.
Þegar kona hefur náð ári frá vímugjöfum
þá er hún í bata og hún var veik af alkó-
hólisma en ekki lengur en henni getur
slegið niður ef hún gætir ekki að sér.
Þ.e. einstaklingi getur batnað af þessum
sjúkdómi rétt eins og öðrum og getur
einnig slegið niður rétt eins og af öðr-
um sjúkdómum. Árangur af þátttöku
kvenna í þessum samtökum víða um
heim hefur skilað mjög farsælum ár-
angri. Hin síðari ár hafa meðferðastofn-
anir í Bandaríkjunum og í Kanada tekið
hugmyndafræði dr. |ean Kirkpatrick inn í
kvennameðferðir.
Eitthvað að þegar fólk nær
ekki bata
Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur
sem leiðir að lokum til dauða ef ekkert
er að gert. Nokkrar erlendar rannsóknir
sýna að 2/3 alkóhólista eru með vímu-
efni f blóði þegar þeir deyja. Talið er að
aðeins 4% alkóhólista nái bata og að
aðeins 25% þeirra leiti sér aðstoðar. Að-
eins 4% alkóhólista eru þeir sem ráfa
um á götunni heimilislausir eða lenda í
fangelsi. Það eru því u.þ.b. 96% alkó-
hólista sem eru við nám og störf í þjóð-
félaginu. Því er haldið á loft hér á landi
og víðar að árangur af hefðbundinni
meðferð nálgist 70%, þ.e. að þetta stór
hópur sé edrú ári eftir meðferð. Mun
færri eða u.þ.b. 30% eru edrú þrem
20