Vera - 01.08.2001, Qupperneq 24
Faldi sjúkdómurinn
Frumkvödlavinna
í kvennamedferdum
Oddný Jakobsdóttir er ein þeirra sem hafa
unnið ötullega að þróun ófengismeðferðar og
telst til frumkvöðla ó því sviði. Hún hefur starf-
að hjó SAA fró órinu 1979 og er nú róðgjafi
ó Vík, meðferðarheimili SAA ó Kjalarnesi.
„Vísir að kvennameðferðinni er frá 1983 en þá fengum
við hjá SÁÁ áhuga á að vera með sér meðferð fyrir kon-
ur. Þá voru ég og maðurinn minn, Grettir Pálsson, ráð-
gjafar á Staðarfelli í Dölum. Ég fékk leyfi til að vera með
kvennagrúppur einu sinni í viku. Þetta voru grúppur
eins og Teigur er með í dag. SÁÁ byrjaði svo með
kvennameðferðir 1995 og ég hef verið með þær frá upp-
hafi. Þetta er orðið mjög skipulagt hjá okkur núna, enda
erum við langþróuðust hér hjá SÁÁ.
Upphaflega prófuðum við að vera með sérstakar
kvennagrúppur á göngudeildinni sem úrræði fyrir konur
sem voru að koma aftur í meðferð. Það kom svo í ljós
að þessum konum fór að ganga mjög vel, þær voru
þarna í ársmeðferð; mættu tvisvar í viku fyrsta árið og
síðan hálfsmánaðarlega næsta árið. Þessum konum
sem höfðu verið inn og út úr meðferðum fór að ganga
vel. Þetta varð vísirinn að því að kvennaprógrammið
varð til.
Geysilega gott og öflugt kvennaprógramm
Þetta prógramm er sniðið að konum og þörfum kvenna.
Rætt er um kynferðisofbeldi, sektarkennd vegna van-
rækslu á börnum og skömm vegna þess að hafa ekki
staðið sig í móðurhlutverkinu. Þetta eru mál sem er
mjög sársaukafullt að ræða og þá styrkja konurnar og
styðja hver aðra. Þær eiga það sameiginlegt að vera
konur og alkóhólistar, hafa misst stjórn á lífi sínu og
brotið gegn samviskunni.
í kvennameðferð eru hafðar saman konur sem eru
að koma í fyrsta sinn og þær sem hafa komið oftar en
einu sinni. Það smellur alveg saman. Prógrammið bygg-
ist á verkefnavinnu og er eitt verkefni á dag í fjórar vik-
ur. Dæmi um verkefni: Hvað á að gera ef ég fæ vínlöng-
un? Streita og síðhvörf. Að skemmta sér án vímugjafa.
*
Arsprógramm
Það er ekki sjálfgefið að konur á Vogi komist í kvenna-
meðferð á Vík, þær þurfa að vinna sér inn réttinn til að
komast þangað. í fyrsta lagi verða þær að sýna áhuga
og síðan að ná þvf stigi að viðurkenna sig sem alkó-
hólista. Það eru ráðgjafar og læknir sem meta hvaða
konur komast í kvennameðferðina. Þær konur sem ekki
ná áttum eiga ekki þar heima. Eftir útskrift af Vík mæta
konurnar á á göngudeildina í Síðumúla tvisvar í viku í
þrjá mánuði og svo í níu mánuði einu sinni í viku, alls í
eitt ár.
Það eru haldnir AA fundir hér á Vík og öllum er bent
á þá. Eftir meðferð fara allir f AA þar sem fólk talar um
bata sinn og hvað er að breytast hjá því. Batinn byggist
á því hjá öllum alkóhólistum að breyta lífsstílnum og
því sem þarf að gera til að viðhalda alsgáðu lífi. Ég er
mjög hlynnt AA og þá ekki síst kvenna AA fundum.
Kvennameðferðum hætt vegna fjórskorts
Kvennameðferðir er því miður ekki í gangi núna hjá
SÁÁ. Þeim var hætt í júní og er liður í niðurskurði
vegna fjármagnsskorts. Þó eru þeir hópar sem eru á
göngudeildinni ennþá virkir. Konur taka því ágætlega
að komast ekki í kvennameðferð, þær eru þá bara í
blönduðum hóp. Þær fá ágætis meðferð samt sem
áður. Þessi lokun er um óákveðinn tíma og ekkert hægt
að segja til um hvenær við byrjum aftur. En vonandi er
þetta ástand ekki til frambúðar."
24