Vera - 01.08.2001, Síða 26
Faldi sjúkdómurinn
ari því að „láta sig hafa það". Þær eru oft að reyna að
sætta sig við einhverjar aðstæður. Einnig koma konurn-
aroft úrbrotnum samböndum, jafnvel mörgum slíkum,
og velja sér menn sem þær drekka með. Það er oftar en
ekki mjög erfitt að komast út úr slfku sambandi.
Á Teigi er gefinn kostur á tveimur hjónaviðtölum,
eða fjölskylduviðtölum eftir því sem við á. Því það
breytist margt við að hætta að drekka og öll fjölskyldan
verðurvör við það. Öll mannleg samskipti breytast. Það
eru allir orðnir vanir sjúklegu aðstæðunum sem eru ekki
lengur fyrir hendi.
Drykkjan orðin meira áberandi
Þegar ég byrjaði í áfengisráðgjöf fyrir 23 árum var
drykkja kvenna ekki eins áberandi, nema í einstaka til-
felli. Þær drukku meira inni á heimilunum og áttu auð-
veldara með að fela þetta. En í dag eru þær orðnar
miklu meira áberandi. Þær koma meira til okkar í með-
ferð á öðrum forsendum en þær gerðu áður. Áður fyrr
fannst þeim að þær væru að drekka út af einhverju, t.d.
erfiðleikum í hjónabandi eða uppvexti. Núna taka þær
ábyrgð á neyslu sinni og tengja hana þvf að þær eigi við
sjúkdóm að stríða.
Svo þarf að leggja allt aðrar áherslur þegar talað er
við unga stúlku innan við tvítugt. Þær hafa allt önnur
markmið, þurfa allt öðruvísi hvatningu. Þær eru hrædd-
ar um að það sé ekkert gaman að vera edrú. Konur á
miðjum aldri eru flestar löngu búnar að gera það upp
við sig, þær eru búnar að fá nóg. Það er ennþá uppreisn
í ungu steipunum, út í fjölskylduna og fortíðina. Þær
sem eiga börn eru sumar í vandræðum með ábyrgðina
sem því fyigir."
u
<
A (kóhó
■■•g er í AA og það rann af mér fyrir átta og hálfu
ári síðan. Og síðan hef ég verið edrú. Ég gerði
4^plika það sem ég hafði ekki gert áður; ég tók til-
sögn. Ég vissi alveg að ég gæti þetta ekki upp á eigin
spýtur. Ég var búin að reyna að hætta að drekka sjálf.
Ég var búin að reyna allar aðferðir; skipta um tegundir,
reykja hass í staðinn fyrir að drekka. En minn vilji
dugði ekki til, þannig að ég ákvað að láta meðferðar-
aðila segja mér hvað ég ætti að gera. Þannig að ég fór
á Vog og þaðan á Vík. Svo gerði ég eins og mér hafði
verið kennt, ég fór á 90 AA- fundi á 90 dögum og fór
mjög mikið á fundi næstu tvö árin. Ég fór stundum á
fund á dag og stundum fleiri en einn. Ég gerði þetta
að mínu áhugamáli. Það voru aliir dauðfegnir í fjöl-
skyldunni og vinirnir líka, því það var ekkert gaman
þegar ég var komin í þriðja eða fjórða glas, það var yf-
irleitt byrjunin á harmleiknum. Ég hætti ekki að á-
stæðulausu og alls ekki vegna þess að mér þætti alkó-
hól vont á bragðið!
Ég var ekki búin í partýinu
Þegar ég var þrettán ára lenti ég í slysi og fékk morfín
og fannst að þannig vildi mér alltaf líða. Svo fann ég
mér vini sem höfðu svipað áhugamál og ég, að kom-
ast í vfmu.
í minni neyslu voru allskonar stílar og stefnur í
gangi. Fyrst var ég f þessum unglingapakka, var á
Hlemmi og í klíku. í menntaskóla kynntist ég
skemmtilegu fólki, m.a. barnsföður mínum, en ég á 15
ára dóttur. Þar var meira verið að reykja hass. Ég var
áfram fullust í partfum, en var farin að hafa áhuga á
að hætta þessu. Með hassreykingunum varð ég löt en
hafði áður verið sjúklega eirðarlaus. Ég tók alkóhól-
ismann minn með mér inn í skólann og gekk þ.a.l.
ekki vel í náminu. Mér gekk bara vel í því sem ég hafði
áhuga á og féll í öðru. Hafði enga einbeitingu. Svo
varð ég ólétt og fannst það góð ástæða til að hætta í
skóla. Fór að vinna, sem ég hafði gert mikið af með
skólanum og tókst að vera edrú á meðgöngunni.
Flutti svo til Hollands þar sem barnsfaðirinn var í
námi og við giftum okkur. Eirðarleysið helltist yfir mig
og ég fór að stinga af frá manni og barni. Stal pening-
um frá honum og fór á fyllerí. Komst svo inn f skóla.
Þetta var nokkuð gott tímabil, ég var einbeittari og
skýrari í kollinum en áður. Komin með þetta markmið
að vera f skólanum. Mér gekk vel í skólanum og var
uppáhald kennarana. Svo skiljum við og við búum í
sitthvoru lagi í eitt ár áður en hann ákveður að flytja
heim til íslands með dóttur okkar. Hann treysti mér
alls ekki til að vera eina með hana í útlöndum, ég get
vel skilið það í dag, þó ég samþykkti það auðvitað
ekki möglunarlaust. En neyslan togaði í mig. Ég var
ekki búin í partýinu. Svo fór partýið að taka stærri og
stærri hlut af lífi mínu.