Vera - 01.08.2001, Page 45
Klám er miklu viðurkenndara í samfélaginu nú en fyrir
nokkrum áratugum. Stafar það m.a. af því að
skemmtanaiðnaðurinn hefur upphafið klámið eins og
sést á kvikmyndunum Boogie Nights og The People vs.
Larry Flynt. Teijið þið að klám hafi haft einhver áhrif á
þá stefnu sem tónlistarmyndbönd hafa tekið?
:: |á, klám er í tísku og það kemur m.a. fram í tón-
listarmyndböndunum.
Hildur: Vesturlandabúar sækja í allt sem ertabú og
nekt og klám eru tabú. Það er því markaður fyrir klám
og þangað stefna tónlistarmyndböndin. Þar eru pening-
arnir. Hins vegar er athyglisvert að í Afríku hefur nekt
engan tilgang. Þar klæmast íbúarnir á mat í staðinn.
Rósa: Því má þó ekki gleyma að fólk er alltaf í upp-
reisn gegn því sem er við hæfi. Þannig breytist gildis-
matið lfka smám saman. Einu sinni þótti til dæmis
dónalegt ef sást í beran ökkla á kvenmanni. Tónlistar-
fólk tekur þátt í þessari uppreisn og þykir gaman að
ögra þótt ég efist um að það geri sér sérstaklega grein
fyrir því að það sé með því að hafa einhver sérstök áhrif
eða koma á framfæri einhverri sérstakri fmynd.
Af tónlistarmyndböndunum að dæma mætti ætla að
ekki væru til neinar „ófríðar" eða feitar poppsöngkon-
ur hvað segið þið um það?
Ása: Svo virðist sem miklu erfiðara sé fyrir konur að
ná samningum í tónlistarbransanum ef þær eru ekki
grannar. Sem dæmi þá heyrði ég eitt sinn svarta söng-
konu skýra frá því í viðtali að þegar hún hefði verið að
þyrja sinn feril hefði aðeins eitt fyrirtæki viljað hlusta á
rödd hennar án þess að fá mynd líka! Þegar hún var
síðan spurð að því hvort hún teldi að útlit sitt félli ekki
að kröfum markaðarins sagði hún þvert nei. Henni
fannst hún rosalega flott en vildi þó ekki verða grönn
sem spýta til að fá tækifæri.
Hildur Ég segi nú bara ef tónlistarmenn þurfa að
stóla á útlitið hvað þá? Ég er myndlistarkona og ef ég
þyrfti að stóla á útlitið væri það bagalegt. Það myndi
sennilega þurrka út stóran hluta stéttarinnar ef svo
færi.
Hefði Britney Spears náð svona langt ef hún væri til
dæmis feit?
Rósa: Það er náttúrulega ekki á færi hverrar feitrar
konu að hoppa og skoppa um á sviðinu eins og Britney
Spears gerir. Það væri sennilega ómögulegt!
iúlíus: Það er nú ekki einu sinni víst að Britney Spe-
ars hefði orðið fræg hefði hún ekki farið í skólastelpu-
búninginn. Þannig náði hún bæði til krakkanna og full-
orðna fólksins.
Rósa: Já, ég sá einmitt einu sinni afar vafasama mynd
af Britney Spears sem gerði mig svolítið reiða. Á mynd-
inni er hún f einhvers konar skólastelpubúningi með
fullt af böngsum í kringum sig. Ég velti því fyrir mér
hvað sé verið að fara með þessari mynd. Er verið að
gera börn að kynverum?
Ása: Svona myndir voru mjög áberandi f klámbransan-
um fyrir um það bil fjórum árum. Þá sá maður oft mynd
af fullorðinni konu í skólabúningi með sleikjó. Með slík-
um myndum er greinilega verið að ýta undir þá hugsun
að börn séu kynverur; þau viti að þau séu kynverur og
vilji kynlíf. ( sama tilgangi eru teknar myndir í klám-
bransanum af ungum og líkamlega óþroskuðum stúlk-
um. Þær eru sagðar átján ára en myndirnar eiga greini-
lega að vísa til yngri barna því þær eru ekki bara
óþroskaðar heldur er búið að raka á þeim kynfærin.
Myndirnar virka því sem hálfgert barnaklám þótt þær
séu það ekki formlega séð þvf búið er að taka fram að
stúlkurnar eru átján. Umrædd mynd af Britney Spears
er í samræmi við þessa stefnu. Með henni er verið að
höfða til þeirra sem vilja barnaklám.
Rósa: Eitt er víst að þessi mynd vakti athygli og þá var
tilgangnum væntanlega náð. Slæmt umtal er betra en
ekkert umtal í þessum bransa.
Kroppadýrkun í tónlistarmyndböndum hefur aðallega
beinsf að konum þótt karlpeningurinn hafi ekki farið
varhluta af henni. Til dæmis meðlimir hljómsveitanna
N'Sync, Westlife og Back Street Boys. Þeir eru saman-
safn af sykursætum strákum. Hvaða áhrif haldið þið
að þetta hafi á unglingspilta- og stúlkur?
Júlíus: Þetta eru bara mjög góðar fyrirmyndir. Tónlist-
in sjálf er alltaf smekksatriði en ef maður horfir á mynd-
böndin þá líta strákarnir út fyrir að vera heilbrigðir ung-
lingar.
Rósa: Það má ekki gleyma því að þetta snýst ekki bara
um ímyndina. Tónlistin sjálf skiptir líka máli. Þeir sem
eru til dæmis í þessum strákahljómsveitum eru ekki
bara sykursætir strákar heldur eru þeir líka hæfileikarík-
ir. Það hleypur ekki hver sem er f þeirra hlutverk. Og ef
við tökum Britney Spears líka sem annað dæmi þá hef-
ur hún náð ansi langt aðeins átján ára gömul. Það hlýt-
ur að teljast jákvætt.
En getur verið að karlkyns söngvarar þurfi ekki að
uppfylla eins miklar útlitskröfur og kvenkynssöngvarar?
Ása: Það virðast ekki vera gerðar neinar útlitskröfur til
þeirra söngvara sem eru f ákveðnum tónlistargeira eins
og til dæmis rappara en meðlimir strákahljómsveitanna
svokölluðu eru yfirleitt hálf naktir í tónlistarmyndbönd-
unum; berir að ofan í fossum og svona. Það er mjög ná-
lægt því sem stelpurnar eru að gera. Strákar búa því
ekki síður við útlitskröfur en stelpur. Hjá strákunum