Vera - 01.08.2001, Qupperneq 48
Sagan hennar Silke er ótrúleg
og reyndar er konan sjálf
með ólíkindum. Hún býr yfir
óþrjótandi viljastyrk og vaskleik.
Hún er menntaður hjúkrunarfræð-
ingur og vann við sitt fag þegar hún
bjó í heimalandi sínu, Þýskalandi.
Fyrir röskum tuttugu árum veiktist
hún af krabbameini.
„Ég barðist með kjafti og klóm í
átta erfið ár við þennan illvíga sjúk-
dóm og hafði sigur að lokum. En af-
leiðingarnar voru m.a þær að ég gat
ekki eignast börn og þar á ofan
missti ég manninn minn." Rúin
starfskröftum og uppgefin á sál og
líkama ákvað hún að skipta um um-
hverfi og fluttist til Krítar árið 1988.
Þar ætlaði hún að verja seinni hluta
lífs síns í ró og næði. En enginn veit
sína ævina fyrr en öll er og örlögin
leiddu hana inn á nýjar og óvæntar
brautir.
Örlagaríkur páskadagur
Allt byrjaði þetta með særðum mávi
sem kvöld eitt flaug inn um eldhús-
gluggann hjá Silke og leiddi hana á
stað á vegum hins opinbera þar
sem veikum og slösuðum dýrum var
komið fyrir. „Ég fór þangað og við
mér blasti ömurleg aðstaða sem
minnti meira á vörugeymslu en
griðastað lifandi dýra. Skepnurnar
dóu þardrottni sínum unnvörpum
enda var nánast ekkert hugsað um
Kona með
HUGSJÓN
Fyrir þrettán árum fluttist þýska konan Silke Wrobel
til Krítar til að „hafa það náðugt". Síðan hefur hún
vart litið upp fyrir önnum við að hjálpa heimilislausum
dýrum. í dag rekur hún dýraathvarfið Orkina hans
Nóa sem er eitt hið umfangsmesta á öllu Grikklandi.
Þar bíða 400 hundar og 70 kettir nýrra eigenda.
Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti athvarfið á
Akrotiri höfðanum og var viðstödd kviðarholsuppskurð
á nýrnaveikum hundi.
Dýravinurinn Silke gat ekki litið
undan og látið þessa meðferð
óátalda. Hún tók myndir í „dýra-
geymslunni", fór með þær til yfir-
valda á Krít og talaði tæpitungu-
Iaust: „Ég fer með myndirnar í al-
heimspressuna ef þið gerið ekkert
til að bæta aðstöðu þessara dýra og
ef þið sjáið ykkur ekki fært að gera
það sjálfir þá krefst ég þess að þið
afhendið mér lykilinn að þessari
geymslu," sagði hún. í stuttu máli
sagt þá fékk hún hann og tók heldur
betur til hendinni og lagði sína eig-
in peninga í verkið. En yfirvöld
„verðlaunuðu" hana að mánuði
liðnum með því að senda henni 70
hunda af götunni. „Ég varð að taka
við hundunum, annað var ekki
hægt. Ég lét vana þá alla og bólu-
setja og svo þurftu þeir líka að
borða. Þetta varótrúlega mikil
vinna og kostaði heilmikið. Ég hélt
áfram í þessari baráttu á eigin veg-
um í fimm ár og allir mínir peningar
fóru í þetta. En að þeim árum liðn-
um hafði ég skapað mér góðan
orðstír erlendis og fékk fjárstuðning
frá alþjóðiegum dýraverndunarsam-
tökum til að koma Örkinni hans
Nóa á laggirnar. Athvarfið hefur vax-
ið og dafnað á þeim átta árum sem
liðin eru frá því það var opnað og í
dag er það að mestu rekið á styrkj-
um og framlögum frá samtökum um
allan heim sem láta sig varða vel-
ferð dýra, að ógleymdum einstak-
lingum og dýravinum sem leggja
okkur einnig lið."
Blæs á veraldleg gæði
Fundum okkar Silke bar fyrst saman
á skrifstofu hennar í Chania, höfuð-
borg Krítar. Að koma þangað inn er
þó nokkuð ævintýr því þar er vart
hægt að snúa sér við fyrir hundum,
köttum og fuglum sem eru á leið í
athvarfið. Vinnuaðstaðan er ekki
upp á marga fiska: ofhlaðið skrif-
borð þar sem glittir í fornfálega
tölvu, prentara og faxtæki. Á bak við
borðið er dýna á gólfinu og við eftir-
grennslan kemur í Ijós að þessi litla
skrifstofa er einnig heimili Silke.
Fletið á gólfinu er svefnaðstaða
hennar. Kona þessi gerir augljóslega
ekki miklar kröfur til veraldlegra
gæða.
„Ég þarf ekkert meira," segir hún
og brosir sínu breiðasta. „Heimili
mitt er fyrst og fremst í mér sjálfri.
Fólk þarf miklu minna en það held-
ur og það fer ósköp vel um mig
hérna og svo er Baby alltaf hjá mér,"
segir hin nægjusama Silke og klapp-
ar stórum belgískum fjárhundi sem
er lífsförunautur hennar. „Ég fékk
hann fyrir fimm árum síðan og hann
er besti vinur minn. Hann fylgir mér
hvert sem ég fer. Hann er mikill
mannþekkjari og stendur mér fram-
ar í þeim efnum."