Vera - 01.08.2001, Qupperneq 58
einelti
Til eru skilgreiningar á einelti
sem segja að eingöngu sé um
einelti að ræða ef margir sam-
einast um að níðast á einum
um lengri tíma. Eg er alger-
lega ósammála þessu: það
þarf bara einn til.
eigin spýtur, treysti aldrei sjálfri mér
til neins, þorði ekki að standa á eig-
in fótum í lífinu. Ég þurfti alltaf að
fá viðurkenningu, fá hrós. En ef ég
fékk hrós fannst mér ég ekki eiga
það skilið og kunni ekki að taka því.
Einelti á vinnustað
Svo fer ég í menntaskóla og læddist
þar með veggjum. Ég hafði ekkert
sjálfstraust og hélt að ég gæti ekki
lært en mamma stappaði í mig stál-
inu, hún rak mig áfram. Svo fór ég í
ensku í Háskóla íslands. Út á það
fékk ég sumarstarf sem þýðandi.
Forstjórinn var ánægður með mig
og bauð mér að koma aftur næsta
sumar. Þegar að því kom sagði ég
honum að ég væri að fara að gifta
mig og myndi fara í þriggja vikna
brúðkaupsferð en vildi samt taka
starfið. Þýðingar eru erfiðar og krefj-
andi en hann þekkti til starfa minna
og vildi fá mig þrátt fyrir að ég yrði
ekki mikið við fyrstu vikurnar, enda
mikið stúss við að undirbúa brúð-
kaup.
Um þetta leyti var fenginn yfir-
maður til að stjórna þessum hópi af
þýðendum sem ég tilheyrði. Mér
fannst strax eins og hún hefði horn
í síðu minni en taldi mértrú um að
ég væri að fmynda mér það. Síðan
fer ég að taka eftir að ég fæ ekki
sömu upplýsingar og hinir starfs-
mennirnir. Það er ýmislegt sem aðr-
ir vissu sem ég fékk ekki að vita. Og
þegar ég bað hana um leiðbeiningar
eða aðstoð hafði hún ekki tíma til
að svara mér. Ég skrapp talsvert frá
vinnu og hún var greinilega ósátt
við það. Þó vann ég um helgar til að
bæta fyrir tímann sem ég var í
burtu. Svo gifti ég mig og fer í brúð-
kaupsferð. Á meðan á henni stóð
var ég að velta fyrir mér hvort ég
héldi starfinu þegar heim kæmi en
reyndi þó að bægja þeim hugsunum
frá mér.
58
Milljón á dag
Þegar ég kem í vinnuna fyrsta dag-
inn eftir fríið fékk ég engin verkefni,
þó ég bæði um þau. Mér fannst það
með ólíkindum og trúði ekki að full-
orðið fólk hagaði sér svona. Daginn
eftir er ég kölluð á fund með yfir-
manninum og forstjóranum, sem
segir að ég verði að fara vegna þess
að fyrirtækið tapi milljón á dag á
mínum mistökum. Á meðan horfði
yfirmaður minn á mig vorkunnar-
augum og gefur með orðum sínu í
skyn að ég sé hreinlega ekki nógu
greind til að sinna starfinu, ég hafi
engan áhuga á því og ég ætti bara
að finna mér eitthvað sem henti
mér betur og ég hafi meiri áhuga á.
Hún vildi auk þess meina að búið
hefði verið að vara mig við, en það
var ekki rétt.
Ég fór aftur og talaði við for-
stjórann og sagði honum að svona
hagaði fólk sér ekki, og að starfsfólki
væri alltaf gefið tækifæri að þæta
sig áður en til brottreksturs kæmi.
Ég sagði honum að það væri ekki
rétt að ég væri ósamvinnuþýð, það
hefði engum fundist fram að þessu,
það væri ekki rétt að ég hefði ekki á-
huga á starfinu því mér þætti vænt
um það og þótti það erfitt en
skemmtilegt. Hann varsammála
mér um að mér hefði verið sýnd
slæm framkoma og baðst afsökunar
á að hafa rekið mig.
Þetta var gríðarlega vond tilfinn-
ing, eins og að vera kippt aftur í
grunnskóla með öllum þeim skelf-
ingum sem honum fylgdu. Það tók
mig tvö ár að jafna mig á þeirri geð-
lægð sem fylgdi í kjölfarið á þessu.
Blóraböggull
Þessi kona, sem var yfirmaður minn,
réði sennilega ekki við starf sitt og
þurfti því að finna þlóraþöggul. Hún
stóð ekki undir stressinu sem fylgdi
þvf að vera yfirmaður þó hún væri
góður þýðandi. Við unnum saman í
þrjár vikur og á þeim tíma þóttist
hún finna út að ég væri ósamvinnu-
þýð og hefði engan áhuga á starf-
inu. Ég trúði því ekki að fullorðin
kona gæti hagað sér svona. Á vinnu-
staðnum var alltaf komið fram við
mig eins og jafningja þangað til
þessi kona kom.
Ég leitaði til VR og þar var mér
sagt að atvinnurekandi þyrfti enga
ástæðu til að reka mig og ég gæti
ekkert gert í málinu. Hálfu ári
seinna var svo eineltisumræðan tek-
in upp hjá VR, en þá fannst mér að
of langt væri um liðið. Þá hafði ég
sótt fundi f Eineltissamtökunum um
nokkurn tíma og geri það enn. Þeir
hafa gert mér ákaflega gott og
hjálpað mér að takast á við þessa
reynslu."
Eineltissamtökin eru sjálfs-
hjálparsamtök sem byggja
á 12 spora kerfinu. Þau
funda í húsi Geðhjálpar
við Túngötu á þriðjudögum
kl. 20. "